Frjáls verslun - 01.03.1969, Page 19
FRJALS VERZLUtsí
15
SOVÉTRÍKIN
MINNKANDI HACVÖXTUR
í SOVÉTRfKJUNUM
Meiri áherzla lögð á að íramleiðslan sé gróðavœnleg en að
hún sé mikil að vöxtum.
Nýlega voru birtar efnahags-
skírslur fyrir árið 1968 yfir Sovét-
ríkin. Hagvöxtur hefur orðið
8,1%, en var 10% árið 1967. Þetta
er minnsti hagvöxtur síðan Bresh-
nev og Kosygin tóku við af Krus-
chev 1964. Þá er það athyglisvert,
að núverandi efnahagsáætlun fyr-
ir árið 1969 gerir ekki ráð fyrir
nema 7,3% hagvexti.
Þessar tölur gefa til kynna, að
Rússum hefur ekki tekizt að halda
þeim mikla hraða í hagvexti, sem
þeir höfðu fyrir um það bil tíu
árum, þegar þeir spáðu, að þeir
myndu fara fram úr Bandaríkjun-
um innan skamms í auði og fram-
leiðslu.
Þó að vöxturinn sé nokkru hæg-
ari, bendir margt til, að efnahags-
líf þeirra sé að færast í meira
jafnvægi en áður. Minni áherzla
er nú lögð á vöxt i þungaiðnaði
og meiri áherzla á vöxt í neyt-
endaiðnaði og landbúnaði, sem
hafa verið vanræktar greinarfram"
að þessu. Oft hefur verið talað
um að gera þessar breytingar, en
núna virðist loks hafa orðið úr
því.
Mikil áherzla hefur verið lögð
á það, að þróa háþróaðar tækni-
greinar, svo sem raftækni og efna-
iðnað, sjálfvirkni o. fl. Samkvæmt
opinberum tölum jókst verðgildi
þróaðra raftækja, sjálfvirknitækja
og tölva um 16% á árinu. Þó að
beinn samanburður sé erfiður, er
ekki ósennilegt, að aukningin sé
svipuð í prósentum í Bandaríkj-
unum, en verðgildi þessara tækja
er þar miklu hærra. Framleiðsla
alls kyns efnavara jókst um 12%.
Stöðugt breiðast út nýjungar í
fyrirkomulagi, svo sem ýmis kon-
ar leiðir til að greiða laun eftir
afköstum, meiri áherzla er lögð á
að framleiðslan sé gróðavænleg
en að hún sé mikil að vöxtum, og
stöðugt er forstjórum einstakra
fyrirtækja veitt meira frelsi til
að stjórna þeim eins og þeir telja
hagkvæmt. Þessar rekstraraðferð-
15%, bílum um 10%, sjónvörpum
um 16% og kæliskápum um 17%.
Þó að meira sé nú gert fyrir
neytendurna en fyrr, eru þeir
langt á eftir Bandaríkjunum og
Vestur-Evrópu. Þegar nýja Fiat-
bílaverksmiðjan verður komin í
gang, en hún eykur bílafram-
leiðslu þar um meira en helming,
Samanburður á framleiðslu stcrveldanna:
Fram-
leiðsla
Rússa
Vöru- 1968
tegund (ímillj.)
Stál (tonn) 118
Olía (bbl) 2.300
Plastefni (tonn) 1.4
Bílar 0.28
Sement (tonn) 96.5
Traktorar 0.4
Kjöt (tonn) 12.8
Sjónvörp 5.7
Kæliskápar 3.2
ir ná nú til um 72% allrar fram-
leiðslu í Sovétríkjunum. Ekki
hafa þó þessar breytingar haft
veruleg áhrif í þá átt að auka
framleiðnina. Má búast við, að ef
þær ekki gera það á næstunni,
verði vaxandi áhugi fyrir vest-
rænni sölutækni. Verður þá erfitt
að koma í veg fyrir, að forstjór-
arnir taki hana í þjónustu sína,
þar sem þeir hafa þegar hlotið
frelsi á mörgum öðrum sviðum.
Stál, sement og vélsmíðatæki
voru miklar vaxtariðngreinar á
dögum Stalins og Kruschevs, en
á síðasta ári var vöxtur í þeim
aðeins 2—4%. Hins vegar jókst
framleiðsla á heimilistækjum um
Aukning Fram- leiösla Bandar. Aukning
í prós. 1969 í prós.
frá 1967 (í millj.) frá 1967
4 131 3
7 3.300 3.8
16 7.8 19
11 8.8 19.4
3 77.7 6
5 0.2 0
0.3 17.4 3
16 11.4 6.8
17 6.3 8
verður framleiðsla Rússa af bíl-
um aðeins um 10% af framleiðslu
Bandaríkjanna, sem er álíka fjöl-
menn þjóð.
Enn er fátt um þenzínstöðvar,
,,motel“, veitingastaði við vegi og
annað það, sem fylgir öld bílanna.
Til dæmis voru í Moskvu til
skamms tíma aðeins sjö bensín-
stöðvar. Það er minna en í Reykja-
vík, auk þess sem þær voru flest-
ar minni en við eigum að venjast.
Gæði margra neytendavara eru
ekki næg ennþá, en þó er sjáan-
leg framför. Veldur þar miklu, að
valdhafar hafa gert sér grein fyr-
ir, að þessar vörur eru nauðsyn-
legar, ekki síður en þungaiðnaður.