Frjáls verslun - 01.03.1969, Síða 23
FRJALS VERZLUN
1*3
VÉLAR — TÆKNI
ÖRT VAXANDI NOTKUN
Á TÖLVUM
Sjónarmið stjórnenda hafa tafið fyrir útbreiðslu tölva í Evrópu.
Telja þeir kaup á tölvu óþarfa útgjöld, þegar Bandaríkjamenn
telja það arðbœra fjárfestingu.
Evrópumenn voru seinir tii að
taka tölvur í notkun og voru þær
svo til eingöngu notaðar í Banda-
ríkjunum framanaf. Nú er að
verða á þessu mikil breyting. Það
er ekki fyrr en á síðustu fjórum
til fimm árum, sem nokkur mark-
aður að ráði var fyrir tölvur í
Evrópu, borið saman við fimmtán
til tuttugu ár í Bandaríkjunum.
Árið 1967, um mitt ár, voru í
notkun 3.400 tölvur í Vestur-
Þýzkalandi og aðrar 2.000 í pönt-
un. Á sama tíma voru 2.100 í
notkun í Frakklandi, um 450 í
Hollandi og 380 í Sviss. Eins og
stendur er talið, að 12.000 tölvur
séu í notkun í Evrópu, samanbor-
ið við 40.000 í Bandaríkjunum.
Þetta er mikill árangur, þegar
haft er í huga, hversu stutt er
síðan notkun þeirra hófst.
Nú eru 22 ár síðan tölvan var
fundin upp. Tölvur eru notaðar
til að geyma upplýsingar og fram-
kvæma margs konar reiknmg
með gífurlegum hraða. Þær eru
af tveimur megin gerðum, „ana-
log“ tölvur og „digital“ tölvur.
Digital tölvur eru miklu algeng-
ari, enda fjölhæfari en analog
tölvur, sem venjulega eru gerðar
með eitt verksvið í huga, Segja
má, að abacus reiknistokkar frá
Austurlöndum og nútíma sam-
lagningarvélar séu forfeður Digi-
tal tölvunnar, en reiknistokkar
séu forfeður analog tölvunnar.
Tölvur eru nú orðnar svo mikil-
vægar í iðnvæddum þjóðfélögum,
eins og t. d. í Bandaríkjunum, að
ef þær væru skyndilega teknar úr
notkun, myndi framleiðsla og
viðskiptalíf stöðvast. Flugferðir
myndu truflast alvarlega, iðnaður
myndi flestur leggjast nið'ur,
bankar myndu fyllast af óbók-
færðum pappír og margt af þeim
þægindum, sem fólk telur sjálf-
sagt að hafa, myndi ekki lengur
vera fyrir hendi.
Það, sem hefur tafið fyrir út-
breiðslu tölva í Evrópu, eru sjón-
armið stjórnenda, sem ekki hafa
allir skilið gildi þeirra. Flestir
þeirra líta á kaup á tölvu sem
óþarfa útgjöld, þegar bandarískir
starfsbræður þeirra telja það arð-
bæra fjárfestingu.
Annað, sem er ólíkt í Evrópu,
er stærð markaðarins. Fyrir til-
tekna tölvu er kannski markaður,
sem skiptir tugum eða hundruð-
um, samanborið við þúsundir í
Bandaríkjunum. Þá hefur það
nokkuð að segja, að fyrirtæki í
Evrópu eru almennt minni.
I Bandaríkjunum eru tölvur
sjaldan keyptar eftir verðlista,
heldur mótaðar að þeim notum,
sem ætlunin er að hafa af þeim.
Sem dæmi má nefna Roblin Steel
Company. Forstjóri þess lét búa
til tölvu eftir eigin fyrirsögn til
að uppfylla viss skilyrði. Hann
vildi hafa á borðinu sínu á hverj-
um morgni upplýsingar um skuld-
ir og inneign fyrirtækisins, pen-
ingaeign, vöruafhendingu og vöru-
móttöku, og framleiðslutöflur fyr-
ir alla þætti framleiðslunnar.
Þessar tölur þurfa að vera fyrir
daginn áður, vikuna áður, mánuð-
inn áður og árið áður. Segir sig
sjálft, hversu mikið gildi slíkar
upplýsingar hafa fyrir stjórnand-
ann.
Ein af ástæðunum fyrir, að
Evrópumenn gera þetta ekki, er
sú, að þeir hreinlega vita ekki,
hvað tölvur geta gert. Þeir hafa
sumir kynnt sér það, en hafa þá
tilhneigingu til að nota þær við
óbreyttar aðstæður, í stað þess að
nota þær til endurskipulagningar.
Þá er einnig mjögalvarlegur skort-
ur á þjálfuðu fólki í meðferð á
tölvum. Menntakerfi Evrópu hef-
ur verið seint til að bregðast við
þessu og árangurinn er sá, að
meginhluti allra tölvu-verkfræð-
inga verða að sækja menntun sína
til Bandaríkjanna, þar sem fjöldi
háskóla og tækniskóla hafa slíka
kennslu.
Til að finna lausn á vandanum
með skort á starfsfólki, hefur ver-
ið tekið upp kerfi, þar sem fyrir-
tæki geta verið mörg saman um
eina tölvu. Hver situr á sinni
skrifstofu og hefur samband við
tölvuna um símalínur. Hver hefur
sitt leturborð, ekki ósvipað og er
með Telex, og fær svar strax um
hæl. Hefur þetta sérstaklega
mikla þýðingu fyrir smærri fyrir-
tæki, sem geta þannig ráðið við