Frjáls verslun - 01.03.1969, Side 35
FRJÁLS VERZLUN
31
föckc lauhífnifHjtuf
Tékkneskt postulín, diskar, bollapör o. f.l.
selt í stökum hlutrim. Byrjið að safna yður
í þessu fallega mynztri.
Fæst í búsáhaldaverzlunum.
Heildsölubirgðir:
JDNJÓHANNESSDN &CD
SKDLAVÖRÐUSTÍG 1,
SÍMI 15B21
DÝR
VOLSKWAGEN
Það má búast við, að sumum
þyki það nokkuð mikið að borga
nærri helmingi hærra verð fyrir
bíl, sem lítur út eins og venju-
Iegur Vo'lkswagen. Þetta gera
menn þó í hópum í Kaliforníu.
Fyrirtækið Empi í Riverside í
Kaliforníu selur Volkswagen-bíla,
sem þeir hafa breytt og endur-
bætt, fyrir meira en 3000 dollara,
þegar venjulegur Volkswagen
kostar um 1700 dollara. Alls eru
47 atriði, selm þeir breyta. Sum
eru minni háttar, svo sem króm
lilíf undir liurðarhúnana, en önn-
ur eru meiri, svo sem það að
auka sprengirúm vélarinnar í
1688 rúmsentimetra. Settur er á
vélina tveggja hólfa Solex blönd-
ungur, breiðari felgur og dekk
fylgja með, teppi á gólfið, nýtt
stýri, þrír mælar til viðbótar
þeim tveimur, sem fyrir eru, og
svo mætti lengi telja.
Mest áberandi er þó það, að
máluð hafa verið mjó strik imcð
jöðrum allra flata á bílnum, ekki
ósvipað því, sem tíðkaðist á fín-
um hcstvögnum til forna.
Eins og kunnugt er, selur Volks-
wagen um 60 prósent allra bíla,
sem fluttir eru inn í Bandaríkin.
Ilefur sala þeirra farið stöðugt
vaxandi. Lang mest hefur 'þó sal-
an alltaf verið í Kaliforníu. Er nú
svo komið, að á Los Angeles svæð-
inu selst meira af Volkswagen en
af Mustang, sem er þó mjög vin-
sæll bíll.
En það er fleira en útlitið, sem
breytist í Empi Volkswagen.
Hestaflatala hækkar í 75 til 80 og
hámarkshraði er um 150 kíló-
metrar.