Frjáls verslun - 01.03.1969, Síða 38
34
FRJAL5 VERZLUN
NÝJUNGAR
HEIMILDASKRÁRKÖNNUÐUR
ER NÝ BYLTING Á SVIÐI TÆKNI
REMINGTON RAND —
brautryðjandi í starfsaðíerðum og starfsþróun.
Öll mannleg viðleitni á sér ein-
hverja viðurkennda forystu, sem
markar stefnuna og ryður nýjar
brautir. í meira en sjötíu ár hefur
Remington Rand markað stefnuna
og rutt nýjar brautir í starfsað-
ferðum og starfsþróun í skrifstofu-
rekstri og stjórnun viðskiptafyrir-
tækja. Frá því fyrirtæki eru þær
hugmyndir komnar, sem valdið
hafa byltingu í skrifstofuvinnu og
tryggt örugga leiðsögn við eftirlit
og stjórnun — enda eru þær nú
þau viðurkenndu grundvallarat-
riði, sem flest nútíma skrifstofu-
kerfi byggjast á. Saga Remington
Rand hefst í rauninni á því vinnu-
tæki, sem ekkert skrifstofuhald
getur án verið, ritvélinni, því að
það var árið 1873, sem fyrsta sölu-
gerðin, „No. 1 Remington“, var
framleidd. Árið áður, 1872, kom
„lóðrétta spjaldskráin“ fyrst fram
á sjónarsviðið. Upphaflega var
hún einkum notuð við starfrækslu
bókasafna, en brátt kom í ljós. að
hún var einnig hentugasta hjálp-
artæki í skrifstofum verzlunarfyr-
irtækja sem viðskiptaspjaldskrá,
og þá var það „Library Bureau
Company“ — sem nú er ein deild
Remington Rand fyrirtækisins —
sem ruddi henni braut í við-
skiptaheiminum. Á þessari sömu
hugmynd byggðist svo lóðrétti
Viðskiptabréfa-Raðinn, sem í dag
er talinn svo sjálfsögð tækni, að
mönnum gleymist oft nauðsyn
þess, að hún sé sérhæfð til þeirr-
ar notkunar, sem henni er ætluð
á hverjum stað.
Árið 1915 kom James H. Rand
fram með endurbætur á þessari
tækni, sem nefndist „The Visible
Record", sem nú er hverjum
stjórnanda ómetanleg hjálpar-
tækni við daglegt eftirlit og yfir-
lit rekstursins. Fyrir notkun þeirr-
ar tækni verður öll skráning að-
gengileg og handhæg til notkun-
ar, hvenær sem á þarf að halda
til leiðbeiningar við reksturinn,
auk þess sem hún gerir alla upp-
lýsinga- og heimildaskráningu
stórum einfaldari og sparar mikla
skrifstofuvinnu. Áratugum saman
hafa sérfræðingar Remington
Rand fyrirtækisins svo unnið
að því að fullkomna þetta kerfi
samkvæmt rannsóknum á notk-
unarhæfni þess og reynslu, og
getur Remington Rand því boð-
ið þar ómetanlega og einstæða
þjónustu í sambandi við allt
skipulag og stjórnun hinna ólík-
ustu viðskiptafyrirtækja.
Þá hefur tæknileg þróun og
framleiðsla á tækjum til eld-
traustrar skjalavörzlu verið mik-
ilvægur þáttur í starfsemi Rem-
ington Rand fyrirtækisins. Sívax-
andi mikilvægi skjala og skjal-