Frjáls verslun - 01.03.1969, Side 56
4B
FRJÁLB VERZLUN
heimilið að Reykjalundi, en sá
staður hefur að langmestu leyti
verið byggður fyrir fé frá Vöru-
happdrætti SÍBS. Á Reykjalundi
er bæði sjúkraþjálfunardeild og
stórar vinnustofur meðfjölbreytta
framleiðslu, einkum úr plasti. Þar
er húsakostur allur og búnaður af
vönduðustu gerð, og hefur þessi
stofnun ævinlega vakið aðdáun
allra, er þangað hafa komið.
MÚLALUNDUR.
— Þá hefur happdrættið lagt
fram mikið fé til byggingar og
reksturs Múlalundar, sem er
vinnustofurfyrir öryrkja í Reykja-
vík. Á þessum tveim stofnunum
hinum almenna vinnumarkaði á
ný. Stofnun þá, sem ég á við,
þekkja allir íslendingar, Vinnu-
SÍBS er rúm fyrir 175 öryrkja í
senn, og alltaf er þar fullsetinn
bekkurinn og hvergi nærri unnt
að sinna öllum beiðnum um vist.
í fyrstu höfðu eingöngu berkla-
sjúklingar aðgang að endurhæf-
ingarstofnunum SÍBS, en með
rénandi berklaveiki var inntöku-
skilyrðum breytt, og er nú svo
komið, að hvers konar öryrkjar
eiga kost á dvöl þar.
— Þetta eru þau tvö fyrirtæki,
sem reist hafa verið og rekin að
miklu leyti fyrir hagnað af Vöru-
happdrætti SÍBS, en fé hefur ver-
ið lagt fram til ýmissa annarra
mála og má sem dæmi nefna
vinnustofu í Kristnesi og einnig
hefur öryrkjum verið veittur
ýmis konar félagslegur og fjár-
hagslegur stuðningur.
Velta happdrættisins s.l. ár nam
um það bil 44.5 millj. kr. og
greiðir það rúmlega 60% veltunn-
ar í vinninga. Fjöldi vinninga er
16.280, auk eins aukavinnings,
sem er sportbíll af vandaðri gerð.
Hæsti vinningur er 1 milljón kr.
og sá lægsti kr. 1.500.00.
Stjórn happdrættisins er hin
sama og fyrir SÍBS, en happ-
drættisráð, sem skipað er af Fjár-
málaráðuneytinu, er skipað Ein-
ari Bjarnasyni, ríkisendurskoð-
anda, Baldri Möller, ráðnueytis-
stjóra og Kristjáni Thorlacíus,
deildarstjóra.
HAPPDRÆTTI
DVALARHEIMILIS ALDRAÐRA
SJÓMANNA.
Baldvin Jónsson, forstjóriHapp-
drættis DAS, sagði, að happdrætt-
ið hefði verið stofnað með lögum
árið 1954 fyrir forgöngu Sjó-
mannadagsráðs í Reykjavík og
Hafnarfirði, sem samanstendur af
öllum yfirmanna- og undirmanna-
félögum sjómanna á þessum stöð-
um. Sala miða hófst á Sjómanna-
daginn í júní 1954, sama dag og
forseti íslands, hr. Ásgeir Ásgeirs-
son, lagði hornstein að Hrafnistu,
en þá var fyrsti áfangi Hrafnistu
fokheldur.
— í upphafi voru gefnir út
30.000 miðar og þótti það djarft.
Miðinn kostaði þá aðeins 10 kr. á
Baldvin Jónsson.
mánuði og aðeins einn vinningur,
bíll, var í boði, en samt fór svo,
að á fyrsta árinu seldust allir mið-
ar upp. Á öðru ári var miðum
síðan fjölgað í 50.000 og á því
þriðja í 65.000, eins og enn er.
Verð miða hefur aftur á móti
verið breytilegt eftir því, sem
vinningar í happdrættinu, bílar,
íbúðir og einbýlishús hafa hækk-
að í verði, og má geta þess, að
hæsti vinningurinn í happdrætti
ársins 1969 er einbýlishús að
Garðaflöt 25 að verðmæti 2.5
millj. kr.
— Velta happdrættisins árið
1968 nam tæpum 39 millj. kr. og
nú við lok 15. happdrættisárs hafa
selzt miðar fyrir um 340 millj.
kr. og hafa greiddir vinningar
numið um 215 millj. kr. Arði af
happdrættinu hefur verið varið
þannig, að til Byggingasjóðs aldr-
aðs fólks í vörzlu Tryggingastofn-
unar ríkisins eru gjaldfallnar
tæpar 11 millj. kr. og framlag til
Dvalarheimilisins hefur numið 54
millj. kr. af nær 80 millj. kr.
fjárfestingu við Hrafnistu og
Laugarásbíó.
Fréttamaður F.V. spurði Bald-
vin að því, hverja hann teldi aðal-
ástæðuna fyrir hinni almennu
þátttöku í happdrættum á borð
við Happdrætti DAS:
— Það hefur margoft sýnt sig,
að þjóð okkar er fljót til að rétta
hjálparhönd, þar sem þörf hefur
knúið á, jafnt utanlands sem inn-
an, og virðumst við vera þar
framarlega meðal þjóða. Þessi
furðu almenna þjóðarsamúðartil-
finning eða „lífssársauki“ með
einstaklingum sem hópum, er
verða fyrir skyndilegri, sárri lífs-
reynslu, tel ég, að sé með göfugri
einkennum okkar þjóðar, og þessa
hafa öryrkjar og aldraðir notið í
ríkum mæli.
— Ég ætla þó ekki að halda
því fram, að þessi ,,lífssársauki“
sé allsráðandi fyrir hinni almennu
þátttöku í happdrættum hér, er
starfa að mannúðarmálum, að
sjálfsögðu spilar vinningsvonin
þar allmjög inn í, en mér segir
svo hugur um, að án þessarar
skilningsríku samúðar almenn-
ings að undirstöðu hefði vart ver-
ið unnt að stofna til t. d. Vöru-
happdrættis SÍBS eða Happdrætt-
is DAS, né ná þeim árangri með
rekstri þeirra, sem orðið hefur.