Frjáls verslun - 01.05.1969, Blaðsíða 13
FRJALS VERZLUN
13
EÐLILEG ÁLAGNING!
Laugavegur að kvöldi: Ys og þys verzlunartímans er liðinn hjá.
— Hverjar eru helztu breyting-
arnar á verzluninni við Laugaveg-
inn á undanförnum árum? Þessa
spurningu lögðum við fyrir sölu-
stjóra heildverzlunar, sem hefur
mikil viðskipti við Laugavegs-
kaupmenn. Svör hans voru eitt-
hvað á þessa leið :
— Þegar losað var um böndin
á verzluninni, var sama upp á ten-
ingnum á Laugavegi sem annars
staðar. Verzlunin glæddist og
margir höfðu þar von um skjótan
ágóða. Með hverju árinu spruttu
upp nýjar búðir í gömlu íbúðar-
húsunum. Þetta kom í bylgjum,
eins og þegar snyrtivörurnar voru
gefnar frjálsar. En það var líka
misjafn sauður í mörgu fé, og
sumir voru fljótir að kippa að sér
hendinni, þegar harðnaði á daln-
um.
Ósamstæð hús einkenna Laugaveg.
Margir hafa láð kaupmanna-
stéttinni í heild þessa óeðlilegu
þenslu, sem mátti glöggt líta í gor-
kúlunum, sem spruttu upp á
hverju horni. Þeir sömu gæta ekki
að því, að það var vegna óeðli-
legra verðlagshafta, sem jarðveg-
ur skapaðist fyrir ofvöxtinn. Það
átti að bæta upp lága álagningu
með því að gefa einstakar „lúxus-
vörur“ frjálsar. Afleiðingin var
búðaskari, sem verzlaði eingöngu
með slíkar vörur og virkaði aftur
sem snýkjujurt fyrir alla heil-
brigða verzlun.
Samdrátturinn í verzluninni á
tveimur síðustu árum. hefur, að
því er virðist, ekki sízt komið
fram í fjölgun fjölskylduverzlana.
Starfsfólkinu hefur verið sagt upp,
og verzlanirnar eru síðan starf-
ræktar eingöngu af fjölskyldumeð-
limum. Slíkar búðir standa sig
hvað bezt á þessum síðustu og
verstu tímum. Allt tal um sam-
runa og stækkun fyrirtækja við
Laugaveg, sem annars staðar, er
fánýtt hjal, meðan það, sem að
ofan kemur, hnígur í þveröfuga
átt. Þetta kemur m. a. fram í því,
að við Laugaveg gengur verst að
leigja út stærri verzlunarhúsnæð-