Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1969, Blaðsíða 80

Frjáls verslun - 01.05.1969, Blaðsíða 80
72 FRJALS VERZLUN Frh. af ritstjórnargrein: Þessum sjóði var ætlað það hlutverk að styrkja innlendar framkvæmdir, en framlögin hafa verið mjög við nögl skorin og orðið fáum til góðs. Þeir örðugleikar, sem að steðja á íslandi, verða til þess, að augu manna opnast fyrir nýjum atvinnurekstri og fullnýtingu í þeim greinum, sem þegar eru fyrir hendi. Móttaka erlendra ferðamanna hefur verið stunduð um ára- tuga skeið. En nú hafa orðið nokkur tímamót. Þó að landkynning hafi ekk: verið stunduð að neinu teljandi marki, nema helzt fyrir tilstilli Loftleiða og Flugfélags íslands, hafa skapazt þær aðstæður, að gistirýmið í landinu, sem er afar takmarkað, reynist ekki fullnægjandi yfir háannatímann, þ. e. a. s. í júní, júlí og ágúst. Er svo komið, að útlendingum, sem hugðu á íslandsferð í sumar, hefur verið vísað frá á sama tíma og Það er brýnt fyrir þjóðinni, að gjaldeyrisöflun verði að auka. Hvernig verður úr þessu bætt? Ferðaskrifstofurnar vilja bæta við gisti- rými yfir hásumarið svo engum gestum þurfi að vísa frá. Hóteleigendur viija fá gestina á öðrum tímum en í þessum þremur áðangreindum mánuðum. Þeir vilja nýta vor og haust betur en gert hefur verið. Til þess að leysa ur þessum vanda, þarf skipulegt átak þeirra, sem að ferðamálum starfa og ríkisvaldsins í sameiningu. Ef gistitímann á að lengja, þarf öfluga áróðurs- herferð og landkynningu erlendis, til að hvetja útlenda aðila til fundahalda á íslandi. En það Þarf líka að fjölga gistihúsum í höfuðborginni og úti á lands- byggðinni, svo að bezti árstíminn verði fullnýttur þannig, að landsmenn geti hýst alla þá útlendinga, sem hingað vilja leggja leið sína, eftir þaulhugsaða auglýsingaherferð íslenzkra aðila í líklegustu markaðslöndunum. Ný gistihús verða tæpast byggð nema með aðstoð ríkisvaldisns. Fjárfesting er slík, að hún reynist íslenzkum einkaaðilum ofviða, nema fyrir hendi séu opinber stórlán. í arnnan stað kemur erlent fjármagn til greina, þ. e. a. s. að stjórnvöldin heimili erlendum gistihúsaeigendum að fjárfesta hér samkvæmt sérstöku sam- komulagi. Það er hins vegar hættulegt og ástæðulaust að krefjast alls af ríkis- valdinu. Þeim einkaaðilum, sem að ferðamálum starfa, ber líka skylda til að leggja sitt af mörkum.Þeir gætu hæglega sameinazt um markaðskönnun erlendis og landkynningu, sem fram til þessa hefur farið fyrir ofan garð og neðan. Sem stendur hlýtur það að vera einkaframtakinu í ferðamálum verð- ugra viðfangsefni að skapa sjálfum sér og þjóðarbúinu öllu tækifæri til að fullnýta þessa drjúgu tekjulind fremur en að leggja allt kapp á skefjalausa samkeppni um hugi þeirra fáu, sem hafa fjárhdgslega getu til að spóka sig á erlendum sólarströndum í sumar. SVERRIR HALLGRÍMSSON SMIÐASTOFA SF„ SKIPHOLTI 35 SÍMAR: 3 6938 - 51751 SMIÐUM ALLT TRÉVERK - LEITIÐ TILBOÐA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.