Frjáls verslun - 01.05.1969, Blaðsíða 79
FRJÁLS VERZLUN
71
víkurflugvallar. Það hefur beitt
sér fyrir endurbótum á veitinga-
og gistihúsum með því að mæla
með lánum úr Ferðamálasjóði.
Gefin hefur verið út landkynning-
arbæklingur í 400 þúsund eintök-
um. Það hefur beitt sér fyrir að
koma upp fullkomnum tjaldstæð-
um með aðstöðu, sem tíðkast er-
lendis. Vonandi verður slík að-
staða að veruleika á þessu sumri
á Laugarvatni.
— Hefur ráðið mætt þeim skiln-
ingi hjá yfirvöldum, sem þér
teljiðl nauðsynlegan, til þess að
árangur verði af störfum þess?
Ferðamálaráð fékk breytt lögum
um almennar ferðaskrifstofur,
bæði með því að fá hækkað trygg-
ingarfé ferðaskrifstofa sömuleiðis
til að hægt sé að fylgjast betur
með rekstri hinna almennu ferða-
skrifstofa en áður var. Samvinna
á milli Ferðamálaráðs og Sam-
göngumálaráðuneytisins hefur
verið með ágætum. Hins vegar
mundi ég kjósa margt með öðrum
hætti en er. Á ég þá sérstaklega
við, að Ferðamálaráð hefði meiri
fjárráð og Ferðamálasjóður yrði
efldur, en þetta stendur til bóta.
Þó má segja, að ráðuneytið hafi
aldrei bundið hendur okkar, þvert
á móti hefur það ævinlega kom-
ið til móts við okkur og sýnt okk-
ur mikinn skilning. Að sjálfsögðu
er haldið í við okkur í sambandi
við fjármál, enda sparnaðarstefna
nú ríkjandi.
— Á ríkisvaldið að beita sér meira
í ferðamálum en það gerir nú?
Að sjálfsögðu á ríkisvaldið að
beita sér meira í ferðamálum en
það gerir. Á það við um ferðamál
eins og aðrar gjaldeyrisaflandi at-
vinnuvegi landsmanna, að ríkis-
valdið verður að leggja þar hönd
að, ekki sízt þegar gjaldeyristekj-
ur af erlendum ferðamönnum
nema allt að 10% af heildarút-
flutningsverðmæti landsmanna,
enda staðreynd, að engar gjald-
eyristekjur fær þjóðin með jafn-
hagstæðum hætti og eyðslueyri er-
lendra ferðamanna.
— Hvað er efst á baugi hjá Ferða-
málaráði um þessar mundir?
Nú er efst á baugi að fá hingað
erlendan sérfræðing í ferðamál-
um, til að gera tillögur um ferða-
mál okkar fram í tímann, og er
von á slíkum sérfróðum manni í
sumar. Þá þarf einnig að efla
Ferðamálasjóð til mikilla muna og
afla fjár til landkynningar, en
landkynning er forsenda þess, að
ferðamenn komi til landsins.
— Hverjar breytingar teljið þér
nauðsynlegar, til þess að mót-
taka erlendra ferðamanna
verði rótgrónari atvinnuveg-
ur á Íslandi en verið hefur
hingað til?
Við þurfum að skipuleggja silungs-
og sjóbirtingsveiði. Víða um land-
ið vantar boðleg gistihús. Hér þarf
að athuga vel, hvort ekki er hægt
að koma upp lækningastöðvum við
hverasvæðin. Það vantar aðstöðu
til að hýsa gesti inni í óbyggðum,
við sjálft hjarta landsins, losa
menn um tíma við þrúgandi há-
vaða og skarkala stórborganna.
Hér er hægt að selja þreyttum
sálum kyrrð, eins og Sigurður
Magnússon hjá Loftleiðum orðaði
það. En til þessa dugar ekkert
nema stórfé. Það lögmál gildir
um ferðamál eins og aðrar at-
vinnugreinar, að til að afla fjár
verður að eyða fé. Landið er fag-
urt og frítt, og það verður það
áfram. Nóttlaus voraldar veröld,
laxár og veiðivötn, kyrrð og frið-
ur, náttúra landsins hrikaleg, á
stundum hrjúf og kaldranaleg,
stundum blíð og mild eins og bezta
móðir, allt þetta er í samræmi við
mannlegt eðli. Hér geta menn
fundið kjarkinn í sjálfum sér. ís-
land er og verður forvitnilegt
land, og hingað streyma erlendir
ferðamenn, þegar þeir uppgötva,
að ísland er öðru vísi en öll hin
löndin.
FERÐAMENN
• Verzlun vor í Reykjahlíð við Mývatn bíður
yður úrval vörutegunda ásamt fyrsta flokks
þjónustu.
ALLT TIL FERÐARINNAR:
Matvörur — Fatnaður — Sportvörur
Minjagripir — Veiðarfæri.
• Þvottaplan við lilið verzlunarinnar. Alltaf opið.
• Verzlunin er opin til kl. 18 á laugardögum í
júlí—ágúst, annars venjulegur lokunartími.
KAUPFÉLAG ÞINGEYINGA
HÖTEL BIFRÖST,
Borgarfirði.
• Vinsœlt og gott
sumarhótel.