Frjáls verslun - 01.05.1969, Blaðsíða 51
FRJÁLS VERZLUM
43
SKEMMTIFERDIR MED
NÝJU SNIDI
Eimskipafélag íslands hefur hafið IT-ferðir í sambandi við
ferðir Gullfoss.
Eimskipafélag íslands skipu-
leggur í sumar ferðir um Bret-
land og Danmörku, svonefndar IT-
ferðir í sambandi við ferðir Gull-
foss. Miðast þessar ferðir við 13
daga og geta farþegar keypt far-
miða í þær, um leið og þeir kaupa
miða með Gullfossi. Hefur sérstök
áætlun verið prentuð fyrir ferðir
þessar, með stuttri ferðalýsingu
og verðskrám.
Meðal þessara IT-ferða er 13
daga ferð til Edinborgar. Verða
farnar 8 slíkar ferðir í sumar, á
tímabilinu 4. júní til 10. septem-
ber og er siglt til Leith með Gull-
fossi, en síðan búið á hóteli í Ed-
inborg í 5 daga, en farið þaðan
í kynnisferðir um nágrenni borg-
arinnar. Fargjöld í þessum ferð-
um eru frá 12.700,00 upp í 18.-
900,00.
í öðru lagi býður Eimskipafé-
lagið farþegum sínum upp á ferð
um Skotland. Þá er siglt með Gull-
fossi til Leith, en síðan varið 5
dögum til skoðunarferða um Skot-
land. Fargjöld í þessari ferð eru
frá 13.530,00 upp í 20.400,00 kr.
TIL
KAUPMANNAHAFNAR
Eimskipafélagið efnir einnig til
8 þrettán daga ferða til Kaup-
mannahafnar á tímabilinu frá 4.
júní til 10. september. Er siglt til
Kaupmannahafnar með viðkomu
í Leith, en höfð er viðdvöl í tvo
og hálfan dag í Kaupmannahöfn
og þá aftur siglt áleiðis til Reykja-
víkur með viðkomu í Leith. Verð
í þessum ferðum er frá 11.454,00
krónum og upp í 16.416,00 krón-
ur. Þá er innifalið: ferðin með
Gullfossi, þar innifalið fargjald,
fæði, þjónustugjald og söluskatt-
ur, og gisting og morgunverður
um borð í Gullfossi meðan staðið
er við í Kaupmannahöfn.
Farþegum gefst að sjálfsögðu
kostur á skoðunarferðum í Kaup-
mannahöfn, og eru farseðlar seld-
ir í skrifstofu skipsins. Meðal þess-
ara ferða er tveggja og hálfs tíma
skoðunarferð um Kaupmannahöfn,
níu og hálfs tíma Svíþjóðarferð.
Er þá farið til Malmö og höfð þar
nokkur viðstaða, en þaðan til
Lundar, þar sem hin fræga dóm-
kirkja er skoðuð. Þá gefst Gull-
fossfarþegum einnig kostur á að
ferðast norður Sjáland, í 7 tíma
ferð, og heimsækja Krónborgar-
og Friðriksborgarkastala auk ann-
arra staða. í fjórða lagi er öku-
ferð um Kupmannahöfn og sigl-
ing um höfnina á báti; alls tekur
þetta ferðalag tvo og hálfan tíma.
TIL
LUNDÚNA
í framhaldi af ferðum Gullfoss
til Leith, skipuleggur Eimskipa-
félagið ferðir með áætlunarvögn-
um til Lundúna. Fyrst er höfð
eins dags viðdvöl í Edinborg, eft-
ir komu Gullfoss til Leith, og far-
in skoðunarferð um borgina, en
morguninn eftir er lagt af stað
með áætlunarvagni í tveggja daga
ferð suður um England og Chest-
er. Að kvöldi annars dags er kom-
ið til Lundúna og haldið þar kyrru
fyrir daginn eftir og farið í hálfs
dags skoðunarferð um borgina.
Frá Lundúnum er svo farið með
járnbrautarlest að morgni og kom-
ið til Edinborgar síðdegis, þar sem
Gullfoss er búinn til heimferðar.
Verð á þessum ferðum er frá 15.-
530,00 krónum.
Drengja - unglinga - og
karlmannafatnaöur í úrvali
KLÆÐSKERAÞJÓNUSTA
HERRATIZKAN
Laugavegi 27
Sími:12303.