Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1969, Blaðsíða 27

Frjáls verslun - 01.05.1969, Blaðsíða 27
FRJÁLS VERZLUNf Z7 ingamátt, sem ég hef grun um, að fólginn sé í hveravatninu okk- ar og öðru því, sem heitu lindirn- ar hafa að bjóða. En sé svo ekki, þá hefir landið sjálft ekkert það að bjóða, sem önnur lönd eiga ekki. Einhvers staðar á jarðskorp- unni er allt það að finna, sem ís- land hefir að bjóða og við erum að auglýsa. Sum lönd hafa flest það, sem okkur þykir sérkenni- legast, tilkomumest og fegurst, hraun, jökla, hveri, auðnir, græn- ar vinjar. En þau hafa það ekki hér — ekki á íslandi. Og ef við getum fengið hingað til orlofsdval- ar örlítið brot af öllum þeim fjölda, sem byggir þann hluta jarðskorpunnar, sem er í næsta nágrenni við okkur, þá þurfum við engu að kvíða í framtíðinni í ferðamálum. Og ef Gísla Sigur- björnssyni tekst að færa sönnur á þær fullyrðingar sínar, að við eigum hér meiri og betri heilsu- lindir en þær, sem kunnar eru annars staðar, þá verður móttaka erlendra ferðamanna arðvænleg- asta atvinnugrein fslands innan fárra ára. „Hafa Loftleiðir í hyggju að leggja, út í enn frekari fram- kvæmdir, til að auðvelda mót- töku erlendra ferðamanna á fs- landi?“ Já. Félagsstjórnin hefir skýrt frá því, að hún hafi hug á að byggja við hótelið, sem hér var reist, einkum til að tryggja mót- töku ,,SOP“-gestanna sem við höfum kallað áningargesti. Hven- ær þetta verður, veit áreiðanlega enginn með neinni vissu, og ég veit ekki betur en að þetta séu í dag lítt mótaðar hugmyndir. En félagsstjórnin hefir áreiðanlega hug á þessu. Hún hefir með hótel- byggingunni og viðdvalarboðun- um, sem nú eru þegin af hér um bil fjórða hverjum erlendum ferðamanni, sannað það, svo að ekki verður um villzt, að hún hef- ir fullan hug á að stuðla að því, að ísland verði ferðamannaland bæði með því að verja árlega stórfé til íslenzkrar landkynningar og að búa þannig í haginn, að erlendir gestir geti farið héðan ánægðir eftir dvölina á þessu landi, sem fyrsti búskussi þess gaf það heiti, sem dýrt er, en gaman að sann- færa heiminn um, að sé hið mesta rangnefni. APTON Með hinu handhæga og fallega APTON kerfi getið þér innréttað sjálf verzlanir yðar og skrifstofur. Einnig mjög hentugt í útstillingar. Fæst í svörtum og gráum lit. Tvær stærðir af rörum, 19 og 25mm. Leitið frekari upplýsinga. LANDSSMIÐJAN Sími 2 06 SO
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.