Frjáls verslun - 01.05.1969, Blaðsíða 38
3B
FRJALS VERZLUN
FÆREYJAR
Ört vaxandi ferðamannastraumur.
Útlendingar gera sér mjög ann-
arlegar hugmyndir um Færeyjar
og fólkið, sem eyjarnar byggir.
A þetta engu síður við um ís-
lendinga en aðra nágranna Fær-
eyinga, þó að 1 ýmsu séu við-
skipti okkar við þá meiri og kynn-
in af þeim nánari en annars stað-
ar gerist.
Margir halda, að Færeyjar séu
aðeins grátt þverhnýpi með gras-
tóm á stöku stað og mátulegu slétt-
lendi niðri við sæinn til að reisa
á yfirlætislaus sjávarþorp. En á-
hugi á að heimsækja Færeyjar og
komast að hinu sanna er vaxandi.
Á síðustu árum hefur erlendum
ferðamönnum í Færeyjum fjölgað
stöðugt.
FYRIR ÍSLENDINGA
Ferðamannastraumurinn hefur
vaxið ört síðan flugsamgöngur við
eyjarnar urðu reglulegar, en sem
kunnugt er, hafði Flugfélag ís-
lands frumkvæði að Færeyjaflugi
fyrir 6 árum og rekur það nú í
samvinnu við SAS. Er flogið til
Færeyja frá Reykjavík á miðviku-
dögum og býður Flugfélagið ís-
lendingum upp á sérstök kjör í
ferðum þangað nú í sumar. Kost-
ar ferðin fram og til baka 5.649
krónur með söluskatti og gildir
farseðillinn í 6—14 daga.
PARADÍS
NÁTTÚRUSKOÐANDANS
í Færeyjum gefst náttúruskoð-
endum einstakt tækifæri til að
virða fyrir sér fjölskrúðugt fugla-
líf í björgunum, og þeir, sem ekki
veigra sér við að leggja á bratt-
ann, geta fundið þar margan fjalls-
tindinn til að sigrast á, en af
hæstu brún er stórbrotið útsýni yf-
ir þrönga dali. firði og flóa. Sam-
göngur á sjó milli eyjanna 18 er
með ágætum og sennilega gefst
ekki betra tækifæri til að skoða
þær en einmitt af sjónum. Fært
er að sigla mjög nærri ströndum
og virða fyrir sér grösugar hlíðar
og stórfenglega hella, sem brimið
hefur brotið í björgin. Við Enni-
berg á Viðey, nyrzta skaga Fær-
eyja, rísa klettaveggirnir 665
metra yfir sjávarmál og er Ennis-
berg einn hæsti höfði í heimi.
Hefur hafrótið sorfið hella og sill-
ur í vegginn í þúsund ár. f marga
þessa hella má komast af sjó. Af
sundunum milli eyja má líka
fylgjast með fuglalífi í bjarginu
úr návígi og þar er paradís þeirra,
sem unun hafa af töku ljósmynda
eða kvikmynda.
TIL
ÞÓRSHAFNAR
Allir erlendir gestir í Færeyj-
um verða vitanlega að leggja leið
sína til höfuðborgarinnar, Þórs-
hafnar, sem er menningarmiðstöð
og aðsetur landsstjórnarinnar. Þar
er Tinganes niðri við höfnina, að-
setur hins forna þings Færeyinga,
sem þeir segja eldra en Alþingi
íslendinga. Á Tinganesi hefur nú-
verandi þing Færeyinga aðsetur í
einu af húsum hinnar konunglegu
dönsku einokunarverzlunar, sem
eyjaskeggjar þurftu að búa við
á sínum tíma eins og íslendingar.
f Þórshöfn er safnhús, þar sem
getur að líta fornleifar og sýnis-
horn úr jarðsögu eyjanna. Fugla-
safn er þar sömuleiðis og bátar
og seglskip sem nátengd eru allri
sögu fólksins á eyjunum. Við
þröngan stíg skammt frá höfninni
er lítið hús, þar sem Niels Finsen,
upphafsmaður ljóslækninga, var
fæddur 1860. Hefur verið reistur