Frjáls verslun - 01.05.1969, Síða 27
FRJÁLS VERZLUNf
Z7
ingamátt, sem ég hef grun um,
að fólginn sé í hveravatninu okk-
ar og öðru því, sem heitu lindirn-
ar hafa að bjóða. En sé svo ekki,
þá hefir landið sjálft ekkert það
að bjóða, sem önnur lönd eiga
ekki. Einhvers staðar á jarðskorp-
unni er allt það að finna, sem ís-
land hefir að bjóða og við erum
að auglýsa. Sum lönd hafa flest
það, sem okkur þykir sérkenni-
legast, tilkomumest og fegurst,
hraun, jökla, hveri, auðnir, græn-
ar vinjar. En þau hafa það ekki
hér — ekki á íslandi. Og ef við
getum fengið hingað til orlofsdval-
ar örlítið brot af öllum þeim
fjölda, sem byggir þann hluta
jarðskorpunnar, sem er í næsta
nágrenni við okkur, þá þurfum
við engu að kvíða í framtíðinni í
ferðamálum. Og ef Gísla Sigur-
björnssyni tekst að færa sönnur
á þær fullyrðingar sínar, að við
eigum hér meiri og betri heilsu-
lindir en þær, sem kunnar eru
annars staðar, þá verður móttaka
erlendra ferðamanna arðvænleg-
asta atvinnugrein fslands innan
fárra ára.
„Hafa Loftleiðir í hyggju að
leggja, út í enn frekari fram-
kvæmdir, til að auðvelda mót-
töku erlendra ferðamanna á fs-
landi?“
Já. Félagsstjórnin hefir skýrt
frá því, að hún hafi hug á að
byggja við hótelið, sem hér var
reist, einkum til að tryggja mót-
töku ,,SOP“-gestanna sem við
höfum kallað áningargesti. Hven-
ær þetta verður, veit áreiðanlega
enginn með neinni vissu, og ég
veit ekki betur en að þetta séu í
dag lítt mótaðar hugmyndir. En
félagsstjórnin hefir áreiðanlega
hug á þessu. Hún hefir með hótel-
byggingunni og viðdvalarboðun-
um, sem nú eru þegin af hér um
bil fjórða hverjum erlendum
ferðamanni, sannað það, svo að
ekki verður um villzt, að hún hef-
ir fullan hug á að stuðla að því, að
ísland verði ferðamannaland bæði
með því að verja árlega stórfé til
íslenzkrar landkynningar og að
búa þannig í haginn, að erlendir
gestir geti farið héðan ánægðir
eftir dvölina á þessu landi, sem
fyrsti búskussi þess gaf það heiti,
sem dýrt er, en gaman að sann-
færa heiminn um, að sé hið mesta
rangnefni.
APTON
Með hinu handhæga og fallega APTON kerfi
getið þér innréttað sjálf verzlanir yðar og
skrifstofur. Einnig mjög hentugt í útstillingar.
Fæst í svörtum og gráum lit.
Tvær stærðir af rörum, 19 og 25mm.
Leitið frekari upplýsinga.
LANDSSMIÐJAN
Sími 2 06 SO