Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1970, Blaðsíða 14

Frjáls verslun - 01.07.1970, Blaðsíða 14
12 FRJÁLB VERZLUN Kjaramál Skiptir litlu, hvort kjara- rannsóknarnefnd er til .... Kjararannsóknarnefnd var stofnuð 1963, en hefur aldrei hlotið traust aðila að vinnumarkaðnum... tveir af þrem fulltrúum launþega liafa aldrei haft tengsl við verkalýðshreyfinguna. Fyrir nokkru leitaði ríkis- stjói’nin eftir því við samtök atvinnurekenda og launþega, að þessir aðilar ræddust við um leiðir til úrbóta varðandi kjara- ákvarðanir, til þess að skapast megi meiri vinnufriður og traustari þróun í kjara- og verðlagsmálum. Þessar við- ræður eru hafnar, en enginn veit hvort þær hafa nokkra þýðingu, enda þótt allir hafi viðurkennt, að úrbóta sé þörf. f umræðum um þessar viðræður hefur það að mestu legið á milli hluta, að nú þegar hefur staðið yfir tilraun til samstarfs milli atvinnurekenda og laun- þega, sem ætlað var að ná þess- um framangreindu markmið- um. Kjararannsóknarnefnd hefur starfað í 7 ár, skipuð þrem fulltrúum frá hvorum pól. En samkv. þeim upplýsingum, sem FV hefur aflað sér og fara hér á eftir, hefur nefndin ann- að hvort aldrei hlotið traust að- ila eða verið sniðgengin. Meg- inorsökin virðist vera sú, að formgalli hafi verið á skipun nefndarinnar í upphafi, en hann hefur loðað við hana alla tíð síðan. Tveir af þrem full- trúum launþega hafa aldrei haft tengsl við verkalýðshreyf- inguna . . . STOFNUN OG STARFSSSVIÐ Kjararannsóknarnefnd var stofnuð árið 1963 með sam- komulagi milli samninganefnda Alþýðusambands ísl., Vinnu- veitendasambands fslands og ríkisstjórnarinnar. Ástæður fyrir því, að nefndinni var komið á fót, voru fyrst og fremst deilur um raunveruleg kjör verkamanna og iðnaðar- manna og var markmiðið með stofnun nefndarinnar að fylgj- ast með kjörum þessara stétta á hverjum tíma í því skyni að reyna að fyrirbyggja og greiða fyrir lausn vinnudeilna. Kostn- aðurinn af starfi nefndarinnar skyldi greiddur af Atvinnuleys- istryggingarsjóði. Ákveðið var í þessu sam- komulagi, að í nefndinni skyldu vera sex menn þrír frá Alþýðu- sambandinu og þrír frá at- vinnurekendum, þ. e. einn frá Vinnuveitendasambandi ís- lands, einn frá Félagi ísl. iðn- rekenda og einn frá Vinnu- málasambandi samvinnufélag- anna. Kjararannsóknarnefnd tók að nokkru leyti við störfum Vinnutímanefndar, sem til- nefnd hafði verið af Alþingi og hafði það hlutverk að kanna vinnutíma verkafólks og benda á leiðir, sem leitt gætu til stytt- ingar vinnutímans. Kjararannsóknarnefnd tók þó ekki við nema einstökum verkefnum Vinnutímanefndar- innar. Meginverkefni Kjara- rannsóknarnefndar hefur frá upphafi verið að semja skýrsl- ur um kaup og kjör verka- manna og iðnaðarmanna. í upp- hafi var nær eingöngu stuðzt þar við skattaframtöl, en frá ársbyrjun 1966 hefur verið stuðzt við upplýsingar frá um 60 fyrirtækjum í Reykjavík, sem hafa í þjónustu sinni um 4000 verka- og iðnaðarmenn. Það eru breytingar á kjara- samningum, hvert skráð kaup- gjald er á hverjum tíma ásamt heildar vinnuaflskostnaðinum, sem nefndin beitir sér einkum að, þ. e. hvernig þetta breytist og hvernig samsetning þess er. Þá hefur nefndin stuðlað að því, að fylgzt verði með at- vinnuleysi um land allt og birt opinberlega skýrslu um það, en upplýsingasöfnunina hefur fé- lagsmálaráðuneytið haft með höndum frá árinu 1969. Einnig hefur nefndin gert athugun á því, hversu margir vinnudagar hafa tapazt sökum verkfalla á sl. áratug o. fl. Þá er það ekki minnsta hlut- verk nefndarinnar, að hún læt- ur vinna sérstök verkefni, þeg- ar vinnudeilur eiga sér stað, til lausnar slíkum deilum svo sem gagnasöfnun og skýrslugerð og auk þess taka starfsmenn nefndarinnar beinan þátt í fundum sáttasemjara með deilu- aðilum í vinnudeilum, einkum til þess að útskýra skýrslur, sem þar hafa verið lagðar fram til þess að sinna verk- efnum, sem einstakir fundar- menn telja nauðsyn á, að unn- in séu til þess að flýta fyrir lausn deilunnar hverju sinni. Úrdráttur úr skýrslugerð nefndarinnar er birtur í frétta- bréfi, sem gefið er út öðru hverju Þá tíðkast það mjög, að alls konar aðilar leiti til Kjara- rannsóknarnefndar varðandi margvíslegar upplýsingar, sem þá er reynt að láta í té, eftir því sem frekast er kleift. ÁRANGUR Ekki er unnt að' segja, að Kjararannsóknarnefnd hafi með störfum sínum tekizt að koma í veg fyrir vinnudeilur, sem þó var höfuðverkefni henn- ar. Hins vegar má segja, að hún hafi lagt grundvöllinn að breyttum vinnubrögðum og við- horfum í þessu tilliti. Nefndin getur ekki knúið neinn aðila til þess að nota þær upplýsingar, sem hún hefur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.