Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1970, Blaðsíða 40

Frjáls verslun - 01.07.1970, Blaðsíða 40
3B Á markaðnum Skrífstofu- vélar og húsgögn Frjáls Verzlun hleypir nú hf stokkunum nýjum þætti, A markaðnum, og gerir sér góðar vonir um gagnsemi hans fyrir lesendur, sem og framleiðendur, innflytjendur og seljendur. Eru það vin- samleg tilmæli til síðar- nefndu aðilanna, að þeir leggi blaðinu iið við gerð þessa þáttar og sendi því upplýsingar, sem þeir vilja koma á framfæri, einkum um nýjungar á íslenzkum markaði, og þá ekki sízt ís- lenzka framleiðslu. Stuttorð- ar upplýsingar með til- greindu verði viðkomandi hluta og mynd af einhverju tagi, er það sem þægilegast er að fá til birtingar. Þátturinn Á markaðnum í þessu blaði er helgaður skrifstofuvélum og tækjum, svo og skrifstofu’húsgögnum, og er honum ætlað að veita hugmynd um úrval þessara nauðsynlegu hluta. Enda þótt meira hafi orðið úr þessu efni, en gert var ráð fyrir í upphafi, þar sem að- ilar brugðust sérlega greið- lega við, er það þó vitaskuld ekki tæmandi, og stendur það opið að auka við þetta efni í næstu þáttum, ef ósk- að verður. En að öðru jöfnu mun þátturinn hér eftir ekki endilega verða helgaður sér- stöku efni, heldur tekinn úr ýmsum áttum — fyrst og fremst um nýjungar. Hjá Einari J. Skúlasyni kennir margra grasa í skrif- stofuáhöldum, enda hefur FRJÁLS VERZLUN Einar stundað sölu og við- gerðir á skrifstofuvélum hvers konar í ein 30 ár. í spjalli við Einar kom fram, að hann hvetur alla, sem eru að kaupa skrifstofuvélar, til að gefa sér góðan tíma við val. á tækjum; kaupa ekki of flókin tæki, ef þess er ekki þörf og öfugt. Hann bendir líka á, að margir átta sig ekki á, að mikið álag er á fyrirtækjum þeim, sem framleiða skrifstofuvélar, og því lengist afhendingartím- inn fremur en hitt. Vél, sem þarf að sérbyggja á einhvern hátt eða laga að sérstökum aðstæðum, þarf að panta með a. m. k. hálfs árs fyrir- vara. Fyrirtækið reynir að sjálfsögðu að vera með allar almennar vélar á lager, en ræður ekki við að liggja með afbrigði, eins og gefur að skilja. Skrifstofuvélar eru misjafnar, rétt eins og bifreiðir, og sumir skrif- og reiknivélaframleiðendur ráða ekki við gagngerðar endiurbætur á sínum tegund- um, og eru því stöðugt að endurbæta vissa hluti í stað þess að byggja nýtt frá grunni. Framleiðendur PRE- CISA vélanna endurskipu- lögðu sínar vélar frá grunni fyrir nokkru, og enda þótt það hafi kostað óhemju fé, reyndist það margborga sig, því að salan jókst á einu ári eftir breytinguna um 300%. Einar taldi þekkingu margra þeirra, sem vinna við flóknari skrifstofuvélar, mjög ábótavant, og margir hefðu ekki hugmynd um hvað hægt væri að leysa mörg verkefni á sumar vél- ar. Þróunin á þessu sviði er mjög ör, og á þessum vett- vangi er mikil framtíð fyrir unga og áhugasama menn, og ætti það ekkert síður við eyðublaðatækni, sem er ná- skyldur liður. Það er alls ekki létt verk að vera sölumaður skrif- stofuvéla, og skýrði Einar frá einu atriði, sem varpar ljósi á þennan vanda. PRE- CISA 370 er mjög háþróað- ur kalkúlator, sem gefur feikimikla möguleika í úr* vinnslu. Þetta er vél, sem kostar tæplega 130 þúsund krónUr. En þegar slík vél er tekin til sölu, þá verður fyr- irtækið fyrst að skuldbinda sig til að kaupa varahluti fyrir um 100 þúsund krónur og senda mann til verk- smiðjunnar til að kynna sér viðhald og þjónustu í sam- bandi við vélina. Þannig er kannski ekki um neinn hagnað að ræða af slíkri vélasölu fyrr en seldar hafa verið einar 20 vélar, og hver er kominn til með að segja, að ekki verði kcmin enn ný gerð þegar loks hafa verið seldar 20 vélar í þessum verðflokki? Þegar litið er yfir véla- kost þann, sem Einar hefur á boðstólum, þá er rétt að nefna fyrst PRECISA reikni- vélarnar, sem kosta frá kr. 12 þús. upp í kr. 129 þús., alls 8 mismunandi gerðir. Mest er selt af gerðunum 164 og 166, sem kosta kr. 35.160,00 og kr. 55.475,00. HERMES 10 er rafmagns- ritvél, er kostar kr. 24.650,- 00. HERMES ritvélar aðrar kosta frá kr. 7.900,00 upp í kr, 50.000,00. Þetta er sviss- Einar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.