Frjáls verslun - 01.07.1970, Page 16
14 FRJALS VERZLUN
Lög og réttur
Firmað og réltarvernd þess
IVIörg íslenzk fyrirtæki bera osjálfstæð nöfn, sem njóta engrar réttar-
verndar, þegar á reynir.
Miklu máli skiptir fyrir fyr-
irtæki, að réttilega sé gengið
frá firmaskráningu þess, en
firmað er sem kunnugt er það
nafn, sem fyrirtæki er rekið
undir og notað er við undir-
skriftir undir skjöl þess. Hver
sá, sem rekur verzlun, hand-
iðnað eða verksmiðjuiðnað, er
skyldur að fara eftir ákvæðum
firmalaga um firmanafnið, en
einn megintilgangur þeirra laga
er að koma í veg fyrir, að firma-
nafn gefi rangar eða villandi
upplýsingar um það, hvernig
ábyrgð er háttað hjá fyrirtæki
því, sem firmanafnið á. En við
firmað eru líka bundnir marg-
víslegir aðrir hagsmunir fyrir-
tækis. Það er jafnframt það
heiti, sem það kynnir starfsemi
sýna undir og því beinist veru-
legur þáttur allrar auglýsinga-
starfsemi fyrirtækja að því að
kynna firma þeirra. Firma fyr-
irtækis, sem búið er að starfa
lengi með góðum árangri, hef-
ur mikið gildi í sjálfu sér og
því skiptir það miklu máli, að
firmað sé verndað á þann hátt,
að hver og einn geti ekki tekið
það upp og hagnazt þannig á
kostnað fyrirtækisins, sem
firmað á eða spillt fyrir því.
Fyrir þessu er firmanu veitt
réttarvernd.
Enginn má hafa í firma sínu
nafn annars manns eða nafn á
fasteign annars manns án hans
leyfis. í firma má ekki heldur
nefna fyrirtæki, sem ekki
standa í sambandi við atvinn-
una og eigi má halda firma,
sem tilgreinir ákveðna atvinnu-
grein, óbreyttu, ef veruleg
breyting verður á atvinnu fyr-
irtækisins.
í firma einstaks manns skal
vera fullt nafn hans, þó má
skammstafa skírnarnafnið. í
firmanafninu má ekki vera
neitt, sem bendir á félagsskap
eða takmarkaða ábyrgð. Getur
eigandinn undirritað með
firmanafninu einu saman, þó
að það sé ekki einkanafn hans.
Firma félags með ótakmarkaðri
ábyrgð skal að minnsta kosti
vera nafn eins félagsmanns með
viðauka, sem bendir á félags-
skap (t.d. Jón Jónsson & Co.),
svo framarlega sem nöfn allra
félagsmanna eru ekki tekin
upp í það.
Firma hlutafélags skal til-
greina, að félagið sé hlutafélag,
skammstafað h.f., og önnur fé-
lög með takmarkaðri ábyrgð
skulu í firmanu hafa orð, er
gefa til kynna starfsemi félags-
ins (t.d. Kaupfélag Reykjavík-
ur og nágrennis, Sláturfélag
Suðurlands). í þeim má ekkert
mannsnafn vera.
VERZLUNARSKRÁR
Um firmu skulu haldnar
verzlunarskrár. Skal tilkynning
til innritunar í verzlunarskrá
fara fram i því umdæmi, þar
sem skrifstofa atvinnunnar er
og annast lögreglustjórar hver
í sínu lögsagnarumdæmi skrá-
setninguna ( í Reykjavík borg-
arfógeti). Hlutafélög skal rita
í sérstaka skrá, hlutaíélagaskrá.
Skylt er að tilkynna til skrá-
setningar firmu allra félaga.
Einstökum manni er hins veg-
ar heimilt að tilkynna firma
sitt, en ekki er honum það
skylt, nema firmanu sé valið
sérstakt heiti, annað en nafn
eigandans. í firmatilkynning-
um eiga að vera allýtarlegar
upplýsingar um firmað. Skal
auglýsa þær tafarlaust í Lög-
birtingablaðinu á kostnað til-
kynnanda og við hver árslok
lætur ríkisstjórnin birta í B-
deild Stjórnartíðindanna skrá
yfir allar þær tilkynningar, sem
auglýstar hafa verið á árinu.
Það, sem skrásett hefur ver-
ið í verzlunarskrár og auglýst
í Lögbirtingablaðinu, skal talið
kunnugt almenningi, nema at-
vík séu svo vaxin, að ætla megi
að menn hvorki hafi haft vitn-
eskju um það né til þess verði
ætlazt af þeim. Meðan auglýs-
ingin hefur ekki farið fram,
hefur tilkynningin ekki þýð-
ingu gagnvart öðrum, nema,
sannað verði, að þeir hafi haft
vitneskju um hana. Heimilt er
mönnum að heimta upplýsing-
ar úr verzlunarskrá. Verði
breytingar á skrásettu firma,
er að jafnaði skylt að tilkynna
þær, sömuleiðis ef skrásett
firma hættir eða verður gjald-
þrota.
RÉTTUR FIRMAEIGANDANS
Með skrásetningu firma-
nafnsins öðlast firmaeigandinn
alla jafnan einkarétt til nafns-
ins, sem felst í því, að öðrum
er óheimilt að nota firmanafn
ið eða annað nafn, sem líkist
því á þann hátt, að um rugl-
ingshættu geti verið að
ræða. Einn helzti tilgangur
firmanafnsins er að aðgreina
firmað í samkeppninni við önn-
ur firmu. Enda þótt firmalögin
setji ekki sjálf nein lagaskil-
yrði fyrir því, að firmanafnið
hafi í sér fólgin þann hæfi-
leika, sem til þessa þarf, þá
hafa dómstólar gert þetta sem
skilyrði fyrir lagavernd firma-
nafnsins og einkaréttar þess.
Þannig hefur kröfunni um sér-
kenni firmanafns ekki þótt
fullnægt, ef aðalorðið í firmanu
er almennt vöruheiti.
Hér má nefna einn dóm
Hæstaréttar þar sem málavext-
ir voru þannig: Hinn 1. marz
1930 var tilkynnt til skrásetn-
ingar í Reykjavík hlutafélagið
Fiskimjöl. Starfaði félag þetta
síðan að framleiðslu fiskimjöls.
Hinn 31. marz 1944 eða 14 ár-
um síðar, var skrásett í hluta-
félagaskrá Gullbringu- og Kjós-
arsýslu hlutafélag með nafninu
Fiskimjöl Njarðvík. Reykjavík-
urfélagið, sem taldi sig hafa
öðlazt einkarétt á heitinu Fiski-
mjöl, krafðist þess, að dæmt
yrði óheimilt að nota nafnið
Fiskimjöl Njarðvík. Hæstirétt-