Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1970, Síða 21

Frjáls verslun - 01.07.1970, Síða 21
FRJAL5 VERZLUN 19 Ferðamál _______________ ___________ Lenging ferðamannatímans er aðalkeppikeflið í ferðamanna- þjónustunni um þessar mundir Gróðavænlegur atvinnuvegur, forsenda flugsamgangna yfir hafið. Viðtöl við þrjá aðila, sem vinna að ferðamálum á Islandi. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að augu manna eru nú óðum að opnast fyrir gildi nýrrar atvinnugreinar, þar sem er þjónusta við'ferðamenn; og það hefur komið á daginn, að starf þeirra, sem við ferðamál fást, hefur ekki einungis gildi sem ný atvinnugrein í tiltölu- lega fábreyttu þjóðfélagi, held- ur einnig sem mikilvæg leið til gjaldeyrisöflunar. Hvarvetna blasir við, að mik- ið hefur áunnizt í þessum efn- um á skömmum tíma, en sömu- leiðis blasa við óleyst verkefni, hvert sem litið er. Ný hótel taka til starfa, hvert öðru glæsilegra, en það er sífelld- ur höfuðverkur, á hvern hátt megi sem bezt nýta þau. Til að ræða þessi mál og fleiri skyld sneri FRJÁLS VERZLUN sér til þriggja aðila, sem starfa hér að þjónustu við ferðamenn. Fyrstur varð fyrir svörum Birgir Þórhallsson, skrifstofu- stjóri SAS hér á landi. SALIR FYRIR RÁÐSTEFNUHALD. F. V.: Standa okkur opnar einhverjar leiðir til að auka ferðamannastrauminn til Is- lands og jafnframt til að jafna honum niður á fleiri mánuði ársins, þannig, að nýting hótela verði betri? Birgir: Líklegasta leiðin til skjótra áhrifa á þessu sviði er, að mínu áliti, sú, að leggja aukna áherzlu á ráðstefnuhald hér á landi. Þó þarf ýmislegt að gera, áður en það getur orðið. Hér skortir til dæmis sali eða hús til ráðstefnuhalds, stór og lítil. Að vísu hafa framfarir í þessu máli verið miklar und- anfarið. Hótelrekstur hefur vaxið mikið, og þannig hefur skapazt aðstaða, sem áður var ekki fyrir hendi. Sömuleiðis hefur Norræna húsið gegnt mikilvægu hlutverki í hvers konar ráðstefnuhaldi. En þrátt fyrir þetta skortir enn mikið upp á, að aðstaðan sé fullnægjandi, og þess vegna fagna ég því, að til dæmis Loftleiðir skilja málið í orði og á borði, og verja nú milljónum til að auka við hótel sitt með hliðsjón af væntanlegu ráð- stefnuhaldi. ÞJÁLFAÐ STARFSLIÐ. F. V.: Fleira en húsnæði þarf þó væntanlega til þess að koma hér upp þeirri aðstöðu, að útlendingar kjósi að koma hingað með sínar ráðstefnur og fundi. Birgir: Vissulega þarf fleira til. Okkur vantar þjálfað starfs- lið til að aðstoða við ráðstefnu- hald. Fyrst og fremst túlka, sem geta samstundis þýtt af einu máli á annað, meðan verið er að flytja ræður eða erindi. Kannski er það ekki neinum vanda bundið að finna hér fólk, sem getur túlkað ensku og Norðurlandamálin, en senni- lega eru færri, sem geta túlk- að t. d. frönsku, þýzku og rúss- nesku. Þó ætti að vera hægt að finna lausn á þessu. LÍTIÐ ATHYGLISVERT ÞJÓÐFÉLAG, HREINT OG FAGURT LAND. F. V.: Hvernig förum við að því að sannfæra fólk um, að betra sé að halda ráðstefnur hér en í öðrum löndum, þar sem aðstaðan er þegar fyrir hendi? Birgir: Flugfélögin munu ör- ugglega taka virkan þátt í að kynna þá aðstöðu, því að lík- indum kæmu menn næstum eingöngu flugleiðis á ráðstefn- ur, auk þess sem flugiélögin hafa sérstaka aðstöðu til land- kynningar almennt. Þar fyrir utan höfum við upp á margt sérstætt að bjóða: lítið þjóðlé- lag, sem útlendingum finnst athyglisvert, og svo hreint og fagurt land, sem er laust við þá mengun, sem víðast erlendis er orðin meiri háttar vandamál. Þessi eftirsóknarverðu atriði kosta okkur ekkert, en það er hægt að búa til langan óska- lista yfir það, sem við gætum gert til að laða hingað ferða- menn. Hér er hægt að halda ráðstefnur, og möguleikarnir eru fleiri. SÝNINGAR í LAUGARDAL. í Laugardal höfum við sýn- ingarhöll og svæði, þar sem að undanförnu hver sýningin annarri glæsilegri hefur verið haldin. Þar er hægt að vinna að áframhaldandi þróun. VETRARÍÞRÓTTIR Á AKUREYRI OG ÍSAFIRÐI. Til dæmis á Akureyri og ísa- firði hefur verið komið upp að- stöðu til iðkana á vetraríþrótt- um, og sú byrjun gefur tilefni til vissrar bjartsýni. VÍN VEITIN G ABANNIÐ ÞRÁNDUR í GÖTU. Aftur á móti er það vafamál,

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.