Frjáls verslun - 01.07.1970, Blaðsíða 28
26
FRJALS VERZLUN
við orðið á að skipa starfsliði
sem getur tekizt á herðar hin
margvíslegustu verkefni, jafn-
framt því að menntunarleiðir
standa opnar hjá IBM, þar sem
bezt hentar. Það er okkar á-
nægja, að leiðbeina og aðstoða
í þessum efnum, og eiga sem
ríkastan þátt í batnandi rekstr-
urstækni og stjórnun hér á
landi. Þetta er sannarlega
hugsjónamál um leið og það
er viðskiptamál.
FRAMLEIÐSLA HUGSAN-
LEG
F.V.: Nú hefur IBM með
höndum margvíslega fram-
leiðslu, sem deilt er niður á
mörg lönd. Er hugsanlegt að
einhver framleiðsluþáttur geti
risið hér á landi?
O. A. M.: Já, vissulega er það
hugsanlegt. Við höfum talsvert
gælt við þessa hugmynd. Ný-
lega setti IBM upp verksmiðju
í Svíþjóð, sem framleiðir yfir-
breiðslur á IBM vélar fyrir
heimsmarkaðinn. Þessi verk-
smiðja framleiðir ekkert annað,
en hún er þó stór á okkar mæli-
kvarða. Hlutverk af þessu tagi
væri okkur kærkomið.
ÞRÍR DRAUMAR
Það má eiginlega segja, að
við eigum þrjá óskadrauma. í
fyrsta lagi að eiga sem stærst-
an þátt í umbótum á sviði
reksturs og stjórnunar, almennt
séð. f öðru lagi að eiga sem
stærstan þátt í eflingu vísinda,
rannsókna og tækni hér á landi.
í þriðja lagi að gerast á einn
eða annan hátt beinir þátttak-
endur að framleiðslu IBM. Það
má segja, að þetta séu stórir
draumar, hver fyrir sig, en
með hliðsjón af reynzlunni og
þörfum okkar íslendinga, tel
ég þetta hiklaust raunhæfa
drauma og verðug markmið.
ENGU FÓRNAÐ
F.V.: En var það ekki fórn
eftir á að hyggja, að leggja
æðstu völd í hendur útlend-
inga, þegar umboðið var lagt
niður og útibú stofnað í stað-
inn?
O.A.M.: Nei, það var engu
fórnað. Vissulega þurfum við
að fara með gát í erlenda fjár-
mögnun, en hræðsla við hana
er algerlega óþörf, ef rétt er
um hnútana búið. Ég hef þeg-
ar talið upp helztu kostina,
sem við hér hjá IBM á íslandi
njótum, og við það má bæta,
að enda þótt sá rammi sem
okkur er sniðinn, sé talsvert
strangur hvað vinnubrögð
snertir, kemur það sérstaklega
og fyrst og fremst fram í auknu
öryggi. Ég fæ ekki séð, hvernig
sú tækni, sem um er að ræða,
hefði getað náð hér fótfestu að
nokkru marki, nema með þess-
um hætti. Hins vegar hef ég
ekki orðið var við að nokkur
hafi beðið tjón af, nema síður
væri. Og þannig tel ég, að
þessu sé varið á mörgum fleiri
sviðum, þar sem um fjármagns-
freka tækniþróun er að ræða,
að við ekki aðeins getum haft
gott af samvinnu við útlend-
inga, heldur verðum að gera
það, til þess að standa okkur
í vaxandi og harðnandi sam-
keppni um gæði lífsins. Þar er
ekki um fórn að ræða, heldur
sjálfsögð klókindi.
ÖLL ELDIIINIARTÆKI
FYRIR HÓTEL, MATSTOFUR OG SKIP
• Ýmis konar „grill og griddle“.
• Kartöflusteikarpottar.
• Samlokuofnar.
• Infra-rauð-geisla ofnar fyrir pylsur.
• Örbylgjuofnar.
• Hraerivélar.
• Uppþvottavélar.
• ísmo'Iavélar og kæliskápar ýmis konar.
• Varmaborð.
Ennfremur innanhússkallkcrfi og hátalarakerfi frá þekktum framleiðendum.
Hafið samband við oss.
(iEORtil ÁMUIVDASON & CO.
SUÐURLANDSBKAUT 10 — IÍEYKJAVIK — SlMAR 81180-35277