Frjáls verslun - 01.07.1970, Side 65
FRJAL5 VERZLUN
63
MJÓLK OG ÁFENGI SAMAN
Áður en langt um líður munu
Kaupmannahafnarbúar eiga
þess kost, að kaupa nýja flösku-
drykki með mjólk að uppistöðu.
Ekki hefur ennþá verið ákveð-
ið hverju verður blandað í
mjólkina, en það getur m.a.
orðið ávaxtasafi eða áfengi, t.d.
romm eða viský. Hugmyndin
er að bjóða einnig tilbúna
mjólkurrétti.
Tilgangurinn með þessu er
sá, að jafna nýtingu á mjólk-
inni, en neyzlumjólk selzt mjög
misjafnlega í Kaupmannahöfn,
meðalsala á dag er 500 þús.
lítrar, en allt niður í 200 þús.
lítrar fyrir helgidaga.
FERÐAMANNASTRAUM-
URINN STÓREYKST Á
ÞESSU ÁRI
Upplýsingar um ferðamanna-
straum til meðlimaríkja OECD
(Efnahags- og framfarastofnun-
arinnar) fyrstu mánuði þessa
árs, benda til þess að hann auk-
izt enn meira á þessu ári en
síðustu tvö ár, en þá varð aukn-
ingin mikil. Hvergi er um sam-
drátt að ræða, nema til Skandi-
navíu-landa, en ferðamanna-
komur þangað urðu 7—8%
færri fyrstu mánuðina í ár en
í fyrra. Mest aukning varð til
Japans, 37.4%, þar næst til
Grikklands, 24.4%, og síðan til
íslands, 24.0%.
SMÍÐA NÆST
ATLANTIC III
Austur-Þjóðverjar hafa á
undanförnum árum smíðað
verksmiðjutogara, sem þeir
kalla Atlantic I og II. í fram-
haldi af því búa þeir sig undir
að smíða verksmiðjutogarann
Atlantic III, eða „Super-Atlant-
ic”. Atlantic III á að verða 100
m á lengd, 15 m á breidd, dýpt-
in frá aðalþilfari 9.5 m. í tog-
aranum verða margvísleg tæki
til vinnslu á fiskinum, en unnt
verður að frysta 54 tonn á dag,
6 tonnum meira en í fyrirrenn-
urunum.
600 SKIP FRÁ JAPAN
Á 5 ára tímabili, 1965—1969,
seldu Japanir öðrum þjóðum
600 fiskiskip, stór og smá. Mesta
árssala var 1967, 166 skip.
FENGU 12.3, EYDDU 11.8
Tekjur meðlimaríkja OECD
(Efnahags- og framfarastofnun-
arinnar) af ferðamönnum, þ.e.
beinar gjaldeyristekjur skv.
gjaldeyrisskilum banka, urðu
árið 1969 12.318 milljónir doll-
ara. Þegnar sömu ríkja eyddu
hins vegar á ferðalögum annars
staðar en heima hjá sér 11.805
milljónum dollara.
Mestar tekjur af ferðamönn-
um fengu Bandaríkjamenn,
2.058 millj. dollara, en þeir
eyddu einnig mestu í ferðalög,
hvorki meiru né minnu en 3.390
millj. dollara. ítalir fengu 1.632
millj. dollara, og eyddu aðeins
493 millj. dollara á móti. Og
Spánverjar fengu 1.311 millj.
dollara, og eyddu ekki nema
einum 86 millj. dollara í stað-
inn. Frakkar, Þjóðverjar og
Kanadamenn fengu einnig yfir
1.000 millj. dollara hver þjóð,
en eyddu nokkru meira.
Gjaldeyristekjur Íslendinga
af ferðamönnum urðu í fyrra
4 millj. dollara, 1 millj. meiri
en 1968. Hins vegar eyddu ís-
lendingar aðeins 3 millj. doll-
ara í gjaldeyri vegna ferðalaga,
og var það 1 millj. minna en
1968.
STRAUMURINN TIL OG
FRÁ EXPO ’70
í sambandi við Expo ’70 hef-
ur ferðamannastraumur milli
japönsku borganna Tokyo og
Osaka verið gífurlegur, eins og
nærri má geta. Tvö japönsk
flugfélög, Japan Air Lines og
All Nippon Airways, geta flutt
6.000 farþega daglega milli
borganna, í 36 ferðum samtals.
en ferðin tekur 55 mínútur með
þotu. Japönsku járnbrautirnar
geta hins vegar flutt 106.000
farþega á dag í 88 ferðum.
Hraðlestin er rúma 3 tíma á
leiðinni en venjulega lestin er
rúma 4, vegalengdin er 553 km.
Þessi flutningsgeta er talsverð,
en dugir varla til, og hefur JAL
t.d. oft þurft að senda 234 sæta
DC-8-61 þotur í stað 129 sæta
Boeing 727, sem venjulega eru
notaðar á þessari flugleið.
KOI.OK
KOLOKFILM
ekta kalkipappír fyrir
vélritun. — Smitar ekki
— hrein afrit — hrein
frumrit.
KOLOK leturborðar
í allar tegundir rit- og
reiknivéla.
Superfine-Silki-Nylon.
Litir: Svartur-Svart/rautt
-Blátt-Blátt/rautt-Grænt
-Brúnt.
KOLOK PLASTIC FILM
leturborðar fyrir I.B.M.
vélar.
HAUSER
kúlupennar — Margar
gerðir.
HAUSER
kúlupennafyllingar —
alltaf nýjar.
HANSA bréfaklemmur og
skjalaklemmur — ekta
stál.
ÚRVALS VÖRUR Á
HAGSTÆÐU VERÐI.
AGNAR K. HREINSSON
XJmboOs- og heildverzlun
Bankastrceti 10 — Reykjavik
Pósthólf 651f — Sími 16382