Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1972, Page 31

Frjáls verslun - 01.05.1972, Page 31
skiptavinurinn græðir raun- verulega á því, að hér eru fleiri en eitt skipafélag, sem keppa á markaðinum? Lægri farmgjöld? — Nei. Það er útilokað, að nokkurt skipafélag gæti boðið lægri farmgjöld en nú tíðkazt eftir að allur kostnaður hefur hækkað jafnmikið og raun ber vitni. Það væri þýðingarlaust að ætla að reyna undirboð. Slík útgerð væri dauðadæmd. Samkeppnin tryggir hins vegar betri þjónustu. Félögin keppa um viðskipti, og bætt þjónusta er helzta vopn þeirra. — Hvar hefur Hafskip fasta viðkomustaði utan Reykjavík- ur? — Þeir eru í Vestmannaeyj- um, í Neskaupstað, á Akur- eyri, ísafirði og Bolungavík og annars staðar eftir því, sem vörur eru skráðar á hafnir. Það er okkur mikið gleðiefni, að á síðustu tveimur árum hef- ur flutningur með Hafskip aukizt um 30%, bæði innflutn- ingur og útflutningur. Til út- landa flytjum við mest mjöl og saltfisk, og nú nýlega var gerður samningur til þriggja ára um flutning á öllum kísil- gúr frá verksmiðjunni við Mývatn. Það eru 24 þúsund tonn á ári, sem um er að ræða, og getur farið upp í 27 þúsund. Þessi samningur hefur tryggt okkur mjög vel rekstrarlega séð á næstu árum í útflutningi. — Er ekki vaxandi sam- keppni við flugfélögin um vöruflutninga? — Jú, það má segja. Að vísu er þar um að ræða vissar vöru- tegundir, dýran varning, eins og til dæmis heimilistæki og annað þess háttar. En núna að undanförnu hafa skipin alltaf verið kjaftfull og það á við um öll félögin, svo að enginn get- ur kvartað. — Ætlar Hafskip að bæta við sig skipi á næstunni? — Sem stendur erum við með í leigu skip, sem til málá kemur að kaupa. Um það verð- ur að taka ákvörðun fyrir næstu áramót. Við höfum að staðaldri verið með leiguskip í förum og tekið íslenzk skip fram yfir erlend. Þannig höf- um við leigt ísborgina og Suðra og fleiri innlend skip, þegar þau hafa legið á lausu, en annars er mjög auðvelt að verða sér úti um leiguskip er- lendis. Til þess þarf ekki nema eitt telex-skeyti og jákvætt Vöruskemmur Hafskips á Eiðisgranda í Reykjavík. Það er von þú spyrjir. Þegar þú hefur keypt hurðina, átt þú hana, ekki satt? En við erum jú allir mannlegir. Og við, hjá Sigurði Elíassyni, erum búnir að leggja okkur alla fram við að gera hurðina þína svo vel, sem fullkomin tækni og kunnátta fagmanna framast leyfir. Við erum stoltir af hurðunum ,,okkar“. Við viljum, að allir geti séð hvar þær eru gerðar. SE. INNIHURDIR - GÆÐ/ / FYRIRRÚMI AUÐBREKKU 52, KÓPAVOGi SÍMI 41380 Hversvegna við merkjum okkur hurðirnar þínarl FV 5 1972 31 argus auglýsingastofa

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.