Frjáls verslun - 01.05.1972, Blaðsíða 47
tali daglega. Þá seldust um
1800 eintök á dag i götusölu
og 2600 í lausasölu.
17000 EINTÖK DAGLEGA.
Eftir að Vísir varð svo off-
settprentaður nú fyrir fjórum
mánuðum, færðist gífurlegur
kippur í söluna og er blaðið nú
prentað í 17000 eintökum á
dag og taldi Sveinn, af þeim
tölum sem nú liggja fyrir, að
götusalan í ár verði ekki und-
ir 3000 eintökum á dag og
3500 eintökum í lausasölu í
verzlunum, og áskriftum fjölg-
ar um 200 á mánuði.
Það er síður en svo sparn-
aður í offsetprentun, því bú-
izt er við að prentunarkostn-
aður Vísis aukist um 50% á
þessu ári miðað við í fyrra, en
blaðið hefur að vísn stækkað,
síðurnar eru stærri og fieiri
auk þess sem letrið er þéttara
á þeim.
Með tilkomu offsettprent-
tækninnar, er hægt að prenta
myndir og auglýsingar í litum
og sagði Sveinn að talsvert
væri gert að því þrátt fyrir að
það væri meira en helmingi
dýrara. Auglýsendur hafa tek-
ið þessu mjög vel, sagði
Sveinn.
Möguleikar í auglýsingum
eru nú mun meiri en áður þar
sem nú þarf ekki lengur að
nota klisjur, heldur er nú
hægt að klippa út myndir og
teikna með þeim og hagræða
á alla vegu.
Ofísetprentunin er dýrari.
AUGLÝSINGAR
ÓDÝRARI HÉR.
Auglýsingar í dagblöðum
hér, eru ódýrari en erlendis
auk þess sem meiri afsláttur
er veittur hér. Sveinn sagði
að þær væru í raun og veru
of ódýrar. Þrátt fyrir tilraun-
ir blaðanna til þess að koma á
ákveðnu auglýsingaverði, hef-
ur það ekki_tekizt og taldi
Sveinn það einkum stafa af
því hvað blöðin eru misstór.
Auglýsingastofur fá allt að
40% afslátt, stórir viðskipta-
vinir allt að 25% og almennir
viðskiptavinir allt að 15%.
Það færist nú mjög í vöxt að
fyrirtæki láti auglýsingastofu
sjá um auglýsingar fyrir sig,
enda eru þær auglýsingar yf-
ir leitt betur unnar og fallegri.
Dagblaðið Vísir dreifist að-
allega um Suð-vesturland, en
lítið út fyrir það nema í stærri
bæi út um land. Sveinn sagði
að engin áform væru uppi um
að dreifa því meira út í dreif-
býlið að svo stöddu, þar sem
enn væri óplægður akur á
Reykjavíkursvæðinu. sem rétt
væri að nýta fyrst.
Rafreiknir við bók-
hald Iðnaðarbankans
Iðnaðarbankinn fékk fyrir
nokkru mjög fullkominn raf-
reikni af IBM gerð' og hefur
hann verið reyndur að undan-
förnu við góða raun. Þetta er
reiknir af gerð System-3, og er
hann einhver sá fullkomnasti
hér á landi.
Guðjón Reynisson, deildar-
stjóri í rafreiknideild bankans,
sagði, að reiknirinn gerði nú
upp daglega alla ávísanareikn-
inga, sparisjóð og hlaupareikn-
inga, og væri hann fljótur að
því. Annars getur hann gert
nær hvað sem er varðandi
reikningsfærslur, ef hann fær
fleiri „prógröm“.
Reiknirinn er fyrirferðarlít-
ill, en þrátt fyrir það hefur
hann 1600 minniseiningar, og
með því að fá á hann auka-
hluti, er hægt að auka mögu-
leika hans til muna. Hann
skrifar 200 línur á mínútu og
les 250 spjöld á sama tíma.
Við reikninn vinna að meðal-
tali tveir menn við að mata
hann og þrjár götunarstúlkur,
því að hann fær allar færslur
á gataspjöldum. Tæki sem
þessi eru geysi dýr, og afskrif-
ast ekki fyrr en á sjö til átta
árum. Því valdi bankinn þann
kost að taka reikninn á leigu,
enda sagði Guðjón, að fram-
farir á þessu sviði væru svo
örar, að reiknir þessi yrði ef
til vill úreltur eftir þrjú til
fimm ár. Þá getur bankinnauð-
veldlega endurnýjað, því að
tækið er aðeins til leigu, og
hann þarf því ekki að nota það
þar til það er full afskrifað.
FV 5 1972
47