Frjáls verslun - 01.05.1972, Síða 77
að hinir mörgu aðilar, sem
um teikningar hafa fjallað,
hafa ekki notað sama tákn-
mál. Munu Rafmagnsveitur
ríkisins og Rafmagnsveita
Reykjavíkur gera kröfur til
þess þegar á þessu ári, að all-
ar teikningar, sem til þeirra
berast, verði frágengnar í
samræmi við staðal þennan.
Húsnæðismálastjórn mun
gera kröfur til þess, að fjöl-
býlishús, sem hún veitir lán
út á, verði byggð í mátkerfi,
sem er meðal hinna nýju
staðla. Þá er líklegt, að um
leið og allir staðlar liggja fyr-
ir um t.d. vindálag bygginga,
eigið álag og jarðskjálfta álag
verði byggingarsamþykktum
breytt með tilliti til þeirra,
þannig að vísað verði í þeim
beint til þessara staðla varð-
andi kröfur um gerð bygginga.
Fjárskortur Byggingarsjóðs ríkisins
Rúmlega 1000 umsóknir um lán hjá Húsnæðismálastofnun
Rúmlega eitt þúsund aðilar
eiga nú lánsumsóknir hjá Hús-
næðismálastofnun ríkisins og
gerast nú óþreyjufullir í bið-
inni eftir afgreiðlu lána.
Vandamál stofnunarinnar eru
hins vegar mikil og ekki enn
útséð um þa.S, hvernig hún á
að veita umbeðna fyrirgreiðslu,
þar sem hana skortir 350—500
milljónir króna til lánveitinga
á þessu ári, eftir því hver
byggingarhraði reynist vera.
Til ráðstöfunar vegna nýrra
lánveitinga hefur stofnunin nú
aðeins um 50,4 milljónir.
Innborganir til Byggingar-
sjóðs ríkisins eru áætlaðar
957,7 milljónir á árinu, en
segja má, að 907 millj. kr.
þar af hafi þegar verið ráð-
stafað fyrir síðustu áramót.
Framkvæmdanefnd bygging-
aráætlunar höfðu verið áætl-
aðar 260 milljónir, sjóðurinn
hafði skuldbundið sig til að
endurgreiða Seðlabankanum
115 millj. með vöxtum vegnr.
bráðabirgðaláns, 63 millj. átti
að draga frá lögbundnum
skuldabréfakaupum sjóðsins
vegna skuldabréfakaupa at-
vinnuleysistryggingasjóðs, ýms-
ar útborganir voru fyrirsjáan-
legar 82 millj., vegna lána
til kaupa á eldri íbúðum höfðu
verið áætlaðar 50 millj. sam-
kvæmt heimild í lögum, gefin
höfðu verið lánsloforð upp á
120 millj. til aðila í bygginga-
iðnaðinum, seinnihluta greiðsla
lána, sem veitt voru í nóv-
ember og desember í fyrra,
nemur 217 milljónum. Þannig
höfðu tekjur Byggingarsjóðs
á þessu ári að mestu verið
festar um síðustu áramót.
Á árinu 1971 komu til
greiðslu hjá Húsnæðismála-
stjórn lánveitingar til einstakl-
inga samtals að upphæð um
670 milljónir. Við áramót lágu
fyrir hjá stofnuninni 840 full-
gildar umsóknir frá einstakl-
ingum og miðað við þá tölu
var reiknað með að 504 millj.
króna þyrfti ef um full lán
væri að ræða.
Húsnæðismálastjórn er þeirr-
ar skoðunar, að vandinn, sem
við er að fást, verði ekki leyst-
ur til neinnar hlítar eða fram-
búðar með lántökum til
skamms tíma, heldur feliet
lausnin í auknum tekjustofn-
um Byggingarsjóðsins fyrst og
fremst og að hinu leytinu lil
með skuldabréfasölu tii iangs
tíma.
Innborgað ráðstöfunarfé
Byggingarsjóðs ríkisins hefur
verið síðari árin þannig: 1966:
372 millj., 1967: 538 millj.,
1968: 612 millj., 1969: 605
millj., 1970: 712 millj. og 1971:
929 millj.
NÆRRI EINN
MILLJARÐUR í LÁN.
Árið 1971 veitti Húsnæðis-
málastjórn hátt í einn milljarð
í lán, sem skiptist þannig: E-
lán til smíði 1107 nýrra íbúða
samtals 857,5 millj. í fyrra
mun hafa verið lokið við 1400
íbúðir á öllu landinu, þannig
að Húsnæðismálastjórn hefur
veitt lán út á u.þ.b. 80% allra
nýbyggðra íbúða. G-lán til
kaupa á eldri íbúðum komu til
greiðslu á síðasta ári að upp-
hæð samtals 75,5 millj. vegna
kaupa á 450 íbúðum. Upphæð
þessi var svo há vegna þess
að úthlutun 1970 kom ekki til
greiðslu fyrr en í fyrra. C-lán,
til smíði leiguíbúða á vegum
bæjarfélaga námu 2,8 millj.,
alls 12 lán.
Eins og fram hefur komið
áður hefur ríkisstjórnin snúið
sér til stjórna lífeyrissjóðanna
í landinu og farið fram á að
þeir leggi fram fé til Bygging-
arsjóðs ríkisins nú vegna þeirra
vandræða, sem að steðja. Mun
það ætlun viðkomandi stjórn-
valda, að fá frá þeim fjár-
magn allt að 230 milljónum,
og eru allar horfur taldar á
að lífeyrissjóðirnar verði við
óskum stjórnvalda í þessu efni.
l.aiKlNÍIlS gT’ÓÖUl*
- vóa i* liróóiu*
BÚNAÐARBANKI
ÍSLANDS
FV 5 1972
77