Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1972, Page 82

Frjáls verslun - 01.05.1972, Page 82
Frá ritstjórn Mikilvægi byggingariðnaðarins Þetta tölublað Frjálsrar verzlunar er að verulegu leyti helgað byggingarmálum. Svo sem fram kemur í viðtölum við aðila í bygg- ingariðnaðinum er mikil gróska í fram- kvæmdum innan hans um þessar mundir, og virðast allir vera að flýta sér að koma upp þaki yl'ir höfuðið. Það horfir vel um sinn, en undirtónn allra yfirlýsinga um næga vinnu og mikil áform í sambandi við húsbyggingar er óttinn við það, að á næstu misserum verði svo miklir erfiðleikar á vegi þeirra, að annað hvort sé að liefjast lianda strax eða eiga yfir liöfði sér þrengingar og fyrirhyggjandi ráðstafanir stjórnvalda. Takmörkun á greiðslufresti erlendis var einkanlega látin taka til byggingarefnis. Þetta bitnar mjög harkalega á þeim, sem eru að koma sér upp húsnæði, ])ví að inn- flytjendur geta af þessum sökum ekki veitt sömu fyrirgreiðslu í lánakjörum og oft áður. Menn bera líka kvíðboga fyrir framhaldinu, því að mjög sterklega hefur kvisazt út, að sérstakt innflutningsgjald verði sctt á bygg- ingarvörur eða sérsöluskattur lagður á þær. Aðgerðir þær, sein þegar hafa verið framkvæmdar, og eins það umtal, sem orð- ið hefur um enn þrengri kosti húsbyggj- enda, sýna, svo eklci verður um villzt, að núverandi rikisstjórn stefnir að því að brjóta niður hægt og sígandi einn þann gleggsta vott um einkaframtak, er vart hef- ur orðið á Islandi hin síðustu ár, það er að segja vilja fólksins og getu til að eignast eigið húsnæði í svo almennum mæli, að fáar eða engar þjóðir Evrópu hafa náð jafn langt. Verður því að líta mjög alvarlegum aug- um sérhverja tilraun til að gera mönnum erl'iðara um vik í byggingaframkvæmdum vegna þess mælikvarða, sem þær eru á sjálf- stæði einstaklingsins og viðleitni hans til að skapa sér efnahagslegt öx-yggi. Þess vegna rná segja, að mikilvægi byggingar- iðnaðarins sé ef lil vill meira og táknrænna á Islandi en margir lxafi áttað sig á. Hið frjálsa frumkvæði Fyrir skömmu efndi Lions-hreyfingin á Islandi til almennrar söfnunar til kaupa á tækjum, sem nota á i baráttunni gegn blindu. Viðbrögð almennings við þessu frumkvæði Lions-félaga voru mjög lofs- vei’ð, enda söfnuðust fimm milljónir króna á tveimur dögum. Á þessu er vakin athygli hér til að sýna, hversu mikilsverðu hlut- vei’ki samtök einstaklinga í hinum svo- nefndu þjónustuklúbbum eins og Rotary, Lions og Kiwanis svo að dæmi séu nefnd, ásamt öflugum kvennasamtökunx, gegna í félagslegum unxbótum á tslandi. Öflugt starf þessara aðila verður aklrei að fuílu Jiakkað. Þau hafa af dugnaði styrkt sjúkrahúsabyggingar, kaup lækna- tækja, rekstur heimila fyrir vangefin börn og ýmsar fleiri framkvæmdir, sem stuðlað hafa að betra mannlífi á landi liér. Samtök þessi hafa haft frumkvæðið, en jákvæð viðbi'ögð hins almenna boi'gara hafa líka átt sinn drjúga þátt í því, að hugmyndir hafa oi'ðið að veruleika. Þetta sannar bezt, hvernig einstaklingurinn get- ur með frjálsum framlögum sinum og starfi fengið miklu áorkað lil að bæta hag þeirra meðhi'æðra sinna, sem um sárt eiga að binda. Þó að tíðarandinn sé sá, að gera sifellt auknar kröfur til foi'sjár opinberra aðila, rikis og sveitai'félaga í velferðai'inál- um, lifir enn liið frjálsa frumkvæði, sem er og verður ein grundvallai'forsenda fé- lagslegra framfara þessarar ]xjóðar. 82 FV 5 1972

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.