Frjáls verslun - 01.11.1972, Blaðsíða 59
á götuna frá kr. 383.143. Þá
er mikil sala á Moskvitsh-bíl-
um, sem kosta frá kr. 257.844.
Mikil eftirspurn er eftir Mosk-
vitsh sendiferðabílum, en um-
boðið fær ekki nógu marga
bíla frá framleiðandanum.
Hinn frambyggði jeppi UAZ
452 rennur út og er vinsæll,“
sagði Jón, ,,og kostar frá kr.
399.782.“
Ilílaborg li.f..
Hverfisgötu 76:
Þetta er nýjasta bílaumboð-
ið hér, en það hóf bílainnflutn-
ing í vor á japönsku bílateg-
undinni Mazda, sem selzt hef-
ur mikið, bæði í Evrópu og
Ameríku á undanförnum ár-
um. Lárus Jónsson, fram-
kvæmdastjóri, sagði, að reikn-
að væri með því, að 200 bílar
yrðu afgreiddir fyrir áramót
og að þegar væri búið að af-
greiða rösklega 160 bíla. Við-
gerðaþjónusta fyrir Mazda er
á bílaverkstæði Friðriks Þór-
hallssonar, Ármúla 7.
Cliryislcr-unilioðið
Vökull i.X.
Ánnúla 36:
Umboðið er flutt í nýtt hús-
næði að Ármúla 36, þar sem
starfsmenn þess eru að koma
sér fyrir þessa dagana. Jóhann
Scheither, framkvæmdastjóri,
sagði, að 1973 árgerðir af
Dodge Dart og Plymouth Vaii-
ant væru væntanlegar um
þessar mundir, en þeir eru
meðal vinsælustu bílanna frá
Bandaríkjunum hér á landi. Þá
eru til fáeinir Valiant ’72 á
hagstæðu verði. Von er á send-
ingu af Simca 1100, sem er 5
manna bíll frá Frakklandi, og
sem náð hefur miklum vin-
sældum á meginlandinu á und-
anförnum árum.
Duvíð SígurðisiiSioii
Síðumúla 35.
„Þetta verður mjög gott sölu-
ár hjá okkur, sagði Davíð Sig-
urðsson, forstjóri, og við erum
búnir að afgreiða um 370 Fiat-
bíla, en reiknum með að þeir
verði alls um 400 um áramót.“
Von er á sendingu eftir nokkra
daga. Alls er hægt að fá 27
útgáfur af Fiat-bílum, en sá ó-
dýrasti kostar um kr. 215.000.
Eftir áramót kemur lítill og
ódýr bíll, sem kostar um
160.000 kr. og nýr 132-gerð,
sem tekur við af Fiat 125 og
kostar frá kr. 420.000.
Dráttarvélar h.f.„
Fyrirtækið hefur umboð fyr-
ir vestur-þýzku vöru- og
fólksflutningabílana Hanomac-
Heinschel, sem voru fram til
ársins 1970 tvær óskildar bíla-
tegundir, en það ár sameinuð-
ust framleiðendurnir í eitt fyr-
irtæki, sem er dótturfyrirtæki
Gleðistund. Skoðunarmerkið
límt á nýja bílinn.
Mercedes-Benz. Verksmiðjurn-
ar framleiða vörubíla frá 3
lestum og upp í 26 lestir, auk
þess úrval af sendiferðabílum
og litlum hópferðabílum.
Egill
Vilhjáliii§Kon li.f..
Laugavegi 118:
Fyrirtækið, sem er eitt elzta
og þekktasta bílafyrirtæki
landsins, hefur umboð fyrir
ensku Chrysler-verksmiðjurnar
og Jeep International Corp.,
sem er dótturfyrirtæki Ameri-
can Motors. Salan hefur verið
góð, en samt ekki eins mikil
og 1 fyrra, segja þeir í sölu-
deildinni. Vinsælasti bíllinn er
4ra manna Sunbeam og síðan
Hunter, báðir frá Bretlandi.
Frá Jeep koma hinir fi'ægu
jeppar CJ-5, en salan á þeim
hefur dregizt saman, vegna
þess hve dýrir þeir eru, en
Jeep Wagoneer sækir á jafnt
og þétt, enda góður fjórhjóla-
drifsbíll fyrir íslenzkar að-
stæður.
Ilatfratfdl li.tf..
Grettisgötu 21:
Frönsku Peugot-bílarnir hafa
þótt kjörbílar hér um árabil.
Sigurþór Margeirsson, fram-
kvæmdastjóri, sagði, að salan
hefði verið góð á árinu, og að
1973 árgerðin væri komin. Vin-
sælasti bíllinn er Peugot 404,
en síðan kemur 504, sem sæk-
ir ört á, jafnt hér sem annars
staðar í Evrópu. Þar á eftir
kemur minni útgáfa, eða
Peugot 204 og 304, og á bíla-
sýningunni í haust vakti nýj-
asti bíllinn, 104, sem er sá
minnsti frá Peugot, mikla at-
hygli.
Ilekla h.tf..
Laugavegi 170-72:
Þetta er stærsta bifreiðaum-
boð landsins, og selur hinn vin-
sæla vestur-þýzka fjölskyldu-
bíl Volkswagen og brezku
Land-Rover jeppana. í sölu-
deildinni var okkur sagt, að
salan í ár á VW yrði rösklega
900 bílar og einnig, að salan
á Range-Rover hefði verið
mjög góð, en þessi nýja teg-
und hefur náð miklum vin-
sældum á skömmum tíma með-
al jeppaeigenda. Þá er salan á
hinum „klassíska“ Land-Rover
góð. Ný gerð er komin af 1300
FV 11 1972
59