Frjáls verslun - 01.02.1973, Síða 49
E pöntun eru 60 skip —
eriendar skipasmíðastöðvar
fá smíðar fyrir Islendinga í
vaxandi mæli
Á þessu ári eru 60 skip í pöntun eða smíð-
um hjá íslenzkum skipasmíðastöðvum um
land allt, sem samtals verða um 2.801 brúttó-
lest. Flest verða skipin afhent kaupendum á
þessu ári, eða í síðasta lagi fyrir lok næsta
árs. Fyrsta janúar í fyrra voru í smíðum og
pöntun 71 skip hjá sömu aðilum, samtals um
4758 brúttólestir, eða tæplega helmingi meiri
brúttólestafjöldi.
Erlendis eru í pöntun 33 skip fyrir Islend-
inga, samtals ca. 19.017 brl., og eru þau smíð-
uð hjá skipasmíðastöðvum í Noregi, Spáni,
Póllandi, Frakklandi og Japan. Á sama tíma
í fyrra voru aðeins 13 skip í smíðum erlendis,
samtals 7500 brl., en það bendir til þess, að
útlenzku skipasmíðastöðvarnar fá í vaxandi
mæli fleiri skipapantanir fyrir íslenzku út-
gerðina en hin innlendu fyrirtæki okkar.
Hér á landi starfa milli 25-30 aðilar að
skipasmíðum og eru þeir dreifðir um allt
land. Sumar skipasmíðastöðvar smíða ein-
göngu stálskip, en aðrar tréfiskiskip, eða
hvorutveggja. — Hér á eftir fer stutt yfirlit
yfir verkefni íslenzku skipasmíðastöðvanna,
sem Frjáls verzlun hefur aflað upplýsinga
um:
^lippstöAin á
Akureyri
Gunnar Ragnars, forstjóri,
sagði að 5 skip yrðu smíðuð
hjá Slippstöðinni á þessu ári og
verður fyrsta skipið afgreitt
eftir lVz rnán., en það er fyrir
Hraðfrystistöð Vestmannaeyja.
Alls verða fjögur stálfiskiskip
smíðuð á árinu, og eru öll 150
lestir. Tvö skip eru fyrir Hrað-
frystistöð V jstmannaeyja, eitt
er fyrir Mag;>ús Amlín á Þing-
eyri og það fjórða fyrir Björn
Kristjánsson á Ólafsvík. Þá er
verið að smíða eitt tréfiskiskip,
sem er 22 lestir og fer það til
kaupanda í Hrísey. Gunnar
sagði að útlitið í skipasmíða-
málum væri ekki gott fyrir inn-
lenda framleiðendur, en þó
væru nokkrir útgerðarmenn að
hugsa sig um.
M a i'M'llíus
ISrrn liarösson
ínafii'öi:
,.Við erum nýbúnir að af-
henda eitt stálskip, Jón Helga-
jon, 120 lesta og fór það
til Þorlákshafnar,“ sagði
Marsellíus á ísafirði. „Svo
erum við nú með seinna skip-
ið, sem er númer 49 hjá okkur.
Það er 150 lesta stálskip fyrir
kaupanda á Selfossi. Eftir það
er ekkert sem bíður og við
þyrftum þess vegna nauðsyn-
lega að fá a. m. k. eina pönt-
un.“ Marsellíus sagði að ekki
væri hægt að smíða skip fyrir
eigin reikning, þar sem eng-
in lán fengjust til þess. Hann
sagði að lokum að framundan
væru erfiðir tímar fyrir skipa-
smíðastöðvarnar að öllu ó-
breyttu.
l»ori**kir og Ellerl
Akranesi:
Þetta er eina skipasmíðastöð-
in á iandinu, sem er að smíða
ál-skemmtiferðabát, fyrir Hita-
tæki h. f. í Reykjavík, en það
kannar nú útflutning á slíkum
bátum til Bandaríkjanna og
Evrópu. Jósef Þorgeirsson tjáði
FV að útlitið væri dökkt fram-
undan, enda væri meiri áhugi
yfirvalda að láta smiða íslenzk
skip erlendis, en hér heima,
og auk þess væru lánafyrir-
greiðslur betri ef menn skiptu
við útlenda aðila. Aðspurður
sagði hann að ísl. skipafram-
leiðendur gætu ekki smíðað
skip fyrir eigin reikning sök-
um lánsfjárskorts. Þorgeir og
Ellert h. f. eru að smíða tvö
105 lesta stálskip, sem verða
afhent á árinu og er annað
fyrir kaupanda í Keflavík, en
hitt fer til Grundarfjarðar.
IKálalóii li.f.
Hafnarlirði:
Þorbergur Ólafsson, forstjóri,
sagði að tvö skip yrðu afhent
í febrúar og væri annað þeirra
50 lesta stálskip, Borgþór GK-
100, sem væri nýsmíði númer
400. Hann sagði að frá stofnun
fyrirtækisins, árið 1947, væri
búið að smíða samtals hátt í
3000 rúmlestir nýrra skipa. Þor-
bergur sagði að fyrirtækið
hefði skipt um nafn árið 1956 og
héti Bátalón síðan. Fyrsta stál-
skipið var smíðað árið 1970, en
það fór til Indlands. Tvö 70
lesta skip voru smíðuð fyrir
FV 2 1973
45