Frjáls verslun - 01.02.1973, Blaðsíða 85
Svo voru það hjónin, sem
ætluðu að skilja. Konan var
kvödd til fundar við lögfræð-
ing mannsins hennar. Lög-
fræðingurinn sagði: — Já, svo
að þér og eiginmaður yðar
hafið orðið ásátt um að fara
hvort frá öðru — og maður-
inn býður yður 5000-kall á
hvern kílómetra.
— ★ —
— Er þetta í Borgarbúð-
inni?
— Já.
— Þetta er Jóna Sveinsdótt-
ir. Ekki gætuð þér sent mér
eitt bréf af kardimommum?
— Þvi miður, frú Jóna.
Sendiferðabíllinn var að
leggja af stað út í bæ með
stokk af eldspýtum.
— ★ —
Tveir refsifangar gengu um
gólf í klefanum og röbbuðu
saman.
— Heyrðu, hvað segir
almanakið?
— Janúar.
— Engin smáatriði. Ártalið,
maður.
— ★ —
— Þjónn. Farðu með súp-
una aftur fram í eldhús og
gáðu hvort uxinn sé ekki til
í að reka halann ofan í hana
einu sinni enn.
— ★ —
Og hér er einn danskur.
Tátan bað um að fá að sitja
á stönginni hjá stráknum, sem
var að fara heim af balli á
reiðhjóli.
Þcgar þau voru næstum
komin heim til stúlkunnar
spurði hún: — Hefurðu virki-
lega ekki tekið eftir því, að
ég er buxnalaus í kvöld?
— Jú. En hefur þú ekki
uppgötvað, að þetta er kven-
mannshjól, sem við eriun á?
— ★ —
— Æ. Aldrei getur maður
verið í takt við tímann, sagði
gamlinginn við félaga sinn,
þar sem þeir sátu á bekk í
skrúðgarði og spjölluðu um
daginn og veginn.
— Hvað er nú að? spurði
félaginn.
— Þegar kynlífsbyltingin er
loksins hafin lítur helzt út
fyrir að maður sé búinn með
öll skotfærin.
— ★ —
Aðstoðarfólkið á skurðstof-
unni var að ræða við yfir-
lækninn.
— Hve lengi getur maður
lifað án heila? spurði ein
stúlkan.
Yfirlæknirinn leit upp yfir
gleraugun og sagði:
— Tja. Bíðið þér bara og
sjáið til.
Má bjóða yður miða í Lögreglu-
happdrættinu?
CUMMINS
er kraftur, sem kemur að
notum, enda eru ís-
lenzkir skipstjórnarmenn
í auknum mæli að taka
CUMMINS í sína
þjónustu sem aflvélar og
ljósavélar í skip og
báta af öllum stæi’ðum.
CUMMINS býður yður:
• Aflvélar 130-550 Hö.
• Ljósavélar 95-300 Kw.
• 2ja ára ábyrgð eða
3600 klst.
• Öryggi í rekstri.
• Örugga viðgerða- og
varahlutaþjónustu.
Allar upplýsingar og tæknilega þjónustu veita
einkaumboðsmenn fyrir CUMMINS á
Islandi:
Björn & Halldór hf.
SíiÐUMÚLA 19 — REYKJAVIK — SlMI 36930
FV 2 1973
81