Frjáls verslun - 01.06.1973, Page 13
Póstgíróþ jónustan:
IMýtt orlofsgreiðslukerfi
Hinn 1. maí, á nýbyrjuðu or-
lofsári, kom til framkvæmda
nýtt fyrirkomulag á greiðslu
orlofsfjár, samkvæmt lögum frá
1971, og er |>að gíróþjónusta
Pósts og síma, sem annast mót-
töku orlofsskýrslna og af-
greiðslu þeirra til Skýrsluvéla
ríkisins og Reykjavíkurborgar,
þar sem endanleg vinnsla fer
fram.
Þetta nýja fyrirkomulag fel-
ur í sér mjög aukið öryggi fyr-
ir launþegann að sögn Þorgeirs
Þorgeirssonar, forstöðumanns
Póstgíróstofunnar, því að nú er
launagreiðanda skylt að skila
mánaðarlega skýrslu með or-
lofsupphæð og öllum nauðsyn-
legum upplýsingum um sig og
launþegann til Póstgíróstofunn-
ar og greiða þar orlofsupphæð-
ina, sem í dag er 81/3% af laun-
um.
Þannig eru úr gildi gengin
orlofsmerkin, sem notuð hafa
verið síðan 1943, en þeim fylgdí
ávallt sú hætta, að þau gátu
glatast eða skemmzt og feng-
ust þá ekki bætt. Afgreiðsla
þeirra og birgðahald var líka
í alla staði óhentugt fyrir
fyrirtæki. Hið nýja fyrirkomu-
lag er i framkvæmd mjög svip-
að og greiðslur til lífeyrissjóða.
Launþegi fær síðan ársfjórð-
ungslega yfirlit frá Póstgíró-
stofunni um innistæðufé sitt á
orlofsreikningi og er þá ætlast
til að hann yfirfari launaseðla
sína yfir þann sama ársfjórð-
ung þar sem orlofsgreiðslur
eru skráðar og beri saman að
rétt sé bókað.
í lok orlofsársins, 31. apríl,
fær hann svo senda ávísun
með innistæðuupphæðinni, sem
hann fær greidda við framvís-
un vottorða frá vinnuveitanda
og trúnaðarmanni síns verka-
lýðsfélags á næsta pósthúsi,
þegar hann tekur orlofsfrí.
Við notuðum tækifærið og
báðum Þorgeir um að segja
okkur örlítið frá starfsemi
Gíróþjónustunnar í leiðinni.
Hann sagði að nú væri komið
á samstarf milli Pósts og síma
og allra banka og sparisjóða
um gíróþjónustu og þau fyrir-
tæki og aðrar stofnanir, sem á
annað borð notuðu þessa þjón-
ustu, sendu greiðslubeiðnir sin-
ar til viðskiptavinanna á sér-
stökum eyðublöðum, sem við
framvísun mætti greiða í næsta
banka, pósthúsi eða sparisjóði
hvar sem er á landinu. Hann
sagði að æ fleiri aðilar not-
færðu sér þetta þó að enn væru
það mestmegnis stofnanir og
fyrirtæki. Þessi þjónusta er þó
ekki síður hugsuð fyrir ein-
staklinga, sem geta átt inni-
stæður á gíróreikningi og sent
þangað alla sína reikninga í
pósti án þess að þurfa nokkru
sinni að gera sér ferð á greiðslu-
stað. Þorgeir sagði að Póstur
og sími hefði riðið á vaðið með
að senda símareikninga á þess-
um gíróeyðublöðum, síðan
hefðu komið fleiri opinber fyr-
irtæki og m. a. happdrætti not-
færðu sér mikið þessa þjónustu.
Kostnaður við hverja einstaka
greiðslu á gíróreikning er kr.
10.00 og greiðist af þeim aðila,
sem eyðublað kaupir, t. d. af
Landssímanum og happdrætt-
inu.
Hlaut 150.000 kr.
í verðlaun frá SAS
Fyrir nokkru voru Bryndísi
Torfadóttur, skrifstofustúlku
hjá SAS-flugfélaginu í Reykja-
vík afhent 150.000 króna verð-
laun fyrir hugmyndir um hag-
ræðingu í rekstri félagsins, sem
hún hafði bent á.
Sá af forstjórum SAS í Kaup-
mannahöfn, sem hefur með
málefni íslands þar að gera,
Jörgen Svane-Christensen, kom
gagngert hingað til lands fyrir
nokkru til þess að afhenda
Bryndísi verðlaunin.
Aðdragandi þessa máls var
sá, að Bryndís hefur annazt
móttöku flugvéla, sem koma
við á Keflavíkurflugvelli á leið
SAS frá Kaupmannahöfn um
ísland til Grænlands. Oft verða
seinkanir á brottför frá Kefla-
víkurflugvelli vegna óhag-
stæðs veðurs í Grænlandi. Und-
ir slíkum kringumstæðum eru
farþegarnir jafnan látnir yfir-
gefa flugvélina og þeim boðið
upp á mat í veitingasölum flug-
stöðvarinnar á kostnað flugfé-
lagsins.
í tillögum Bryndísar var
gert ráð fyrir því, að farþeg-
arnir færu aftur um borð í vél-
ina meðan hún biði og borðuðu
matinn, sem bera átti fram á
leiðinni milli íslands og Græn-
lands, og geymdur var um borð
í flugvélinni meðan hún hafði
viðdvöl hér. Eru fyrirmæli um
að fleygja slíkum matarbirgð-
um, séu þær ekki bornar fram
innan ákveðins tíma.
Með leyfi íslenzkra tollyfir-
valda var líka borinn fram
bjór með matnum um borð í
flugvélinni, þar sem hún stóð
fyrir framan flugstöðina, og
hefur þessi hagræðing, sem
Bryndís átti hugmyndina að,
sparað SAS umtalsverðar fjár-
upphæðir.
Að sögn Birgis Þórhallsson-
ar, forstjóra SAS á íslandi,
hafa tillögur Bryndísar verið
til athugunar hjá sérstakri
nefnd í Kaupmannahöfn, sem
um slíkar hugmyndir fjallar af
hálfu SAS, og má búast við að
þær verði notaðar víðar á flug-
leiðum félagsins, þar sem um
svipaðar aðstæður er að ræða.
Sagði Birgir, að Bryndís
hefði með þessu sýnt mikið
frumkvæði og hugkvæmni.
Þess má geta, að í þeim til-
fellum, þegar maturinn er
snæddur um borð í flugvél-
unum á Keflavíkurflugvelli
vegna seinkana, er farþegum
boðið upp á sælgæti og drykk
á leiðinni til Gærnlands, enda
ekki nema um rúmlega klukku-
stundarflug að ræða.
FV 6 1973
13