Frjáls verslun - 01.06.1973, Blaðsíða 37
GUNNAR GUÐMUNDSSON H/F
TRANAVOGI 1
ÞUNGAFLUTNINGAR ERU
SÉRGREIN OKKAR . . .
Leigjum út dróttarbifreiðar
með mörgum stærðum
tengivagna til þungaflutninga.
Leigjum út lcranabifreiðar
af ýmsum stærðum,
Seljum og mokum rauðamöl
og hrauni á bíla.
t
GUNNAR GUÐMUNDSSON H/F
TRANAVOGI 1
PÓSTHÓLF 5161 — SÍMI 32841
nauðsyn þess að halda eigninni
við og í góðu verði.
— Hafa Breiðholtsfram-
kvæmdirnar valdið þýðingar-
miklum kaflaskilum í þróun
byggingarmála á Islandi að
þínu mati?
— Verkefni framkvæmda-
nefndarinnar hafa stuðlað að
aukinni samkeppni og kröfurn-
ar hafa harðnað. Vélvæðing hef-
ur aukizt og þar með bygginga-
hraðinn líka. Það hafa enn-
fremur risið upp stórfyrirtæki,
á íslenzkan mælikvarða, í
framledSslu á innréttingum.
Svona stórverkefni gerði t.d.
það að verkum að framleið-
endur eldhúsinnréttinga gátu
keypt kantlímingarvél, sem
vann á við 30 menn. Eldhús-
innréttingar og annað tréverk
hefur lækkað hlutfallslega í
verði á hinum almenna mark-
aði af þessum sökum. Enn aðr-
ir hafa síðan leitað að nýjum
aðferðum til að standa sig í
samkeppninni og fundið miklu
hagrænni lausnir fyrir sinn
rekstur.
— Hverjum augum lítur þú
sem verktaki á framkvæmd
útboða og mat á tilboðum í hin
ýmsu verkefni, sem unnin eru,
t.d. á vegum opánberra aðila?
— Stærsta alvarlega atriðið
í þessu sambandi eru alls kyns
kvaðir, sem verktakanum eru
settar. Verkkaupar hérlendis
hafa mikla tilhneigingu til að
koma vafasömu orðlagi inn í
útboðslýsingar og gera sér ekki
grein fyrir hver áhrif þetta
hefur á verðmat, þegar tilboð
er gert. Mikil framför hefur
samt orðið í verklýsingum og
vilji til að gera betur er
greinilega fyrir hendi. Fyrir
nokkru var í útboði frá
Reykjavíkurborg gert ráð fyr-
ir verðbótum samkvæmt Dags-
brúnartaxta, Þróttartaxta og
sementshækkun. Vita þó allir
að sement hefur nýhækkað en
steypa á eftir að hækka. Þetta
þjónar ekki tilgangi verðbóta
og því varð að reikna hugsan-
legar hækkanir inn í tilboð.
Eftir því sem undirbúningur-
inn er betri af hálfu verk-
kaupa fær hann betri og betri
tilboð.
í þessu sapabandi vil ég
nefna tvö atriði, sem ég tel
mjög íhugunarverð fyrir okk-
ur. Það er í fyrsta lagi, að verk-
kaupi fá tryggingu fyrir því,
að verktaki ljúki verki fyrir
hann. í Bandaríkjunum tíð-
kast það að verkkaupi geri
FV 6 1973
37