Frjáls verslun - 01.06.1973, Blaðsíða 50
Byggingaframkvæmdir úti á landi:
AIKs staðar er húsnæðisvandinn
knyjandi urlausnaretm
Tíðindamaður Frjálsrar verzlunar hafði samband við bæjarstjóra eða sveitarstjóra í kaup-
stöðum og kauptúnum í öllum kjördæmum Iandsins utan Reykjavíkur og innti þá frétta
af byggingamálum á viðkomandi stöðum, hvað fyrirhugað væri í þeim efnum á vegum
einstaklinga og sveitarfélaganna sjálfra.
Akranes:
Á Akranesi eru nú um 150
íbúðir alls í smíðum. Eru það að
miklum hluta einbýlishús, þar á
meðal 10 hús, sem Viðlagasjóð-
ur hefur fengið til ráðstöfunar.
Einnig eru í þessari tölu 2 blokk-
ir og er áætlað að önnur verði
fullbúin á þessu ári.
Ástandið í húsnæðismálum
Akurnesinga er mjög slæmt að
sögn bæjarst.jórans, Gylfa ísaks-
sonar. Sagði hann m. a. í viðtali,
að í vor hefði ein fjölskylda
neyðzt til að búa í tjaldi í eina
viku þar sem ógerlegt reyndist
að útvega henni húsnæði. Akra-
neskaupstaður hefur nú nýlega
úthlutað lóðum undir 64 íbúðir
og eru undirbúningsfram-
kvæmdir við þær að hefjast.
Á árinu er fyrirhugað að hefja
vinnu við viðbyggingu sjúkra-
hússins sem áætlað er að verði
lokið árið 1976. Einnig á að
vinna að stækkun gagnfræða-
skólans og seinni part sumars
er áætlað að steypa upp elli-
heimili Akraness sem rúma á 40
vístmenn og auk þess veita ýmsa
þjónustu öldruðu fólki, er býr
annars staðar í kaupstaðnum. Þá
er unnið að byggingu íþrótta-
húss á Akranesi og mun inni-
vinna við það hefjast í sumar.
Tilfinnanlegur skortur er á iðn-
aðarmönnum á Akranesi og tef-
ur það framkvæmdir verulega.
Isaf jörður:
Ástandið í húsnæðismálum á
ísafirði er slæmt eins og víðar.
Mikill skortur er á húsnæði og
það sem fyrir er er orðið gam-
alt. Um helmingur húsa í kaup-
staðnum er byggður fyrir 1930.
Nú stendur yfir bygging 20
íbúða í verkamannabústöðum í
bænum og auk þess eru um 30
íbúðir í smíðum í ein- og tví-
býlishúsum.
í janúar síðastliðnum var út-
hlutað á ísafirði lóðum fyrir 16
einbýlishús og auk þess fyrir 4
stallahús svokölluð, en í hverju
þeirra eru 4 íbúðir hver upp af
annarri. Þetta er nýjung í fyrir-
komulagi húsa hérlendis, þó það
sé þekkt víða um lönd, í bratt-
lendi líku því sem er á ísafirði.
Þá hugsar bæjarstjórnin sér að
sækja um leyfi til að byggja 120
íbúðir til að leigja út, samkvæmt
lögum sem nýlega voru sam-
þykkt á Alþingi.
Af öðrum framkvæmdum,
sem í gangi eru á Isafirði, má
nefna að verið er að byrja á
Líkan af stallahúsum, sem fyrirhugað er að reisa í brattanum í ísafjarðarkaupstað.
50
FV 6 1973