Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1973, Qupperneq 83

Frjáls verslun - 01.06.1973, Qupperneq 83
skal þess einnig að allt þetta úrvals fólk sé full- nýtt, því að ekki er hægt að geyma dugnað og kraft á lag er. Hætt er við að dugmikill maður, sem ekki fær næg verk- efni við að glíma, leiti sér að betri vinnustaði, þar sem hann fær rneira að gera eða að öðr- um kosti noti þennan afgangs- kraft sinn til að koma af stað einhvers konar vandamálum innan fyrirtækisins. Þetta þarf ekki að þýða, að fyrirtækið eigi að vera eins- konar þrælabúðir heldur að menn sjái sér hag og ánægju í að vinna vel jafnvel með það í huga að þeim verði boð- in hærri staða eða hærra kaup. Allir stjórnendur innan fyrir- tækisms eiga að vera alúðleg- ir við undirfólk sitt og hvetja það til að ræða hugmyndir sínar og vandamál í starfi við sig. Ein leið til að ná í gott fólk er sú að biðja úrvalsfólkið, sem innan fyrirtækisins er, um ábendingar. Þaði er mjög upp- örvandi fyrir þann sem leitað er til. Það á að segja honum að verið sé að reyna að „hækka standardinn“ meðal starfsfólks- ins, og þar sem hann eða hún hafi reynst mjög vel í starfi hafi verið ákveðið að grenns- last um hvort viðkomandi þekki einhvern, mann eða konu, sem ætla megi að skili svipuðum afköstum og biðja þá þann aðila að koma og ræða við viðkomandi yfirmann. Sá starfsmaður, sem sýnt er slíkt traust og virðing, mun leggja sig fram um að finna úrvals- mann og stefna honum á fund yfirmannsins og má þá öruggt telja að það sé raunverulega úrvalsmaður. AUGLÝSINGIN Þegar auglýst er eftir starfs- fólki hefur það geysimikið að segja hvernig auglýsingin er orðuð. í henni á að vera eins mikið af upplýsingum um sjálft starfið og fyrirtækið og mögulegt er. Bezt er að hún sé í léttum dúr og gefi þá hug- mynd að þetta sé bráðskemmti- legur vinnustaður og að starfið sé fyrir mann eða konu sem vilja vinna sér til ánægju. Önnur aðferð, sem mikið hef- ur verið notuð t.d. í Banda- ríkjunum er að láta fráfarandi starfsmann auglýsa starfið og lýsa því í auglýsingunni undir nafni. Síðan ræðir hann við um- sækj endur og er ráðgefandi um hver umsækjanda skuli ráðinn. Skoðanakönnun í Bretlandi meðal fólks í atvinnuleit leiddi í ljós, að fólki finnst mjög oft skorta upplýsingar í auglýsing- ar um laus störf. Það, sem fólk- ið vildi að fælist í auglýsing- unni voru aðallega fimm atriði: Skilgreining á ábyrgð sem í starfinu felst, starfsstaður, byrjunarlaun, hvaða reynslu umsækjandi þyrfti að hafa og hvaða hæfileika og menntun hann þyrfti að hafa. Það, sem fólkið kvartaði mest undan i sambandi við afgreiðslu um- sókna, var hversu langan tíma úrvinnslan tæki. Því fannst boðaði til viðtala með of stutt- um fyrirvara og það kvartaði yfir. að hringt væri til þeirra á vinnustað, sem gæti verið mjög óþægilegt. Þá fannst því ófært hve seint það væri látið vita um niðurstöðu, þ.e. hvort það 3'engi starfið eða ekki, og jafnvel stundum heyrðist ekki neitt frá fyrirtækjum, sem það hefði sent umsóknir til. VINGJARNLEG MÓTTAKA Stjórnendur fyrirtækja skyldu hafa í huga að um- sækjandi um starf er einnig að skoða þá og fyrirtækið, þegar hann kemur í viðtal. Það er þess vegna áríðandi að vel og vingjarnlega sé tekið á móti þessu fólki og t.d. þegar því er ge>-t að taka hæfnispróf eða því um líkt er áríðandi að hafa brosmilda og vingjarn- lega stúlku, sem leiðbeinir því. Hún á að hafa kynnt sér nöfn þeirra, sem von er á, og taka á móti hverjum einum eins og nýjum starfskrafti. Berist margar góðar umsókn- ir frá fólki sem ekki er hægt að ráða í augnablikinu, er mjög gott fyrir fyrirtækið að koma upp spjaldskrá yfir þessa umsækjendur. Getur það spar- að mikið umstang síðar, þegar nýtt fólk vantar, að geta feng- ið þessa fyrri umsækjendur til starfa. Þeim skyldi sagt að nöfn þeirra verði geymd í slíkri spjaldskrá, ef þeir koma ekki til greina strax. Ef þessum leiðbeiningum er fylgt í fyrirtækinu í nokkur ár, má öruggt telja, að þar starfi þá úrvalsfólk eingöngu og að það sé allt ánægt í starfi og að ekki ráðist þangað framar nema úrvalsfólk því það mun sækjast eftir að vinna á slíkum úrvalsvinnustað. Og hagur fyrirtækisins mun blómgast. TWYFORDS hreinlætistæki • HANDLAUGAR f BORÐ. • HANDLAUGAR Á FÆTI. • BAÐKÖR, stál og pott, fáanleg í fimm litum. • TWYFORDS hreinlætistækin eru í sérflokki. BYGGINGAVÖRUVERZLUN TRYGGVA HANNESSONAR, SUÐURLANDSBRAUT 20 — SÍMI 83290. FV 6 1973 83
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.