Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1973, Side 94

Frjáls verslun - 01.06.1973, Side 94
Ilm hcima og gcima * • — Heyrðu vinur. Ekki get ég að því gert, en ég hef það eánhvern veginn á tilfinningunni að konan þín sé ekki langt undan. — ★ — — Heyrðu, má ég fara heim að laga mat handa konunni minn:? —• Er hún veik? —• Nei, hún er svöng. — ★ — Þau voru komin að útidyr- unum heima hjá henni og það var sama sagan: — Eg hátta ekki hjá strák sem ég fer út með í fyrsta sinn. — En ef það er síðasta sinn? — ★ — Við höfum heyrt að skatt- stofan ætli að einfalda mjög skattskýrsluformið fyrir næsta ár. Það verður svona: A. Hvað höfðuði þér í tekjur á síðasta ári? B. Hvað eigið þér mikið eft- ir? C. Sendið Gjaldheimtunni allt samkvæmt lið B. — ★ — — Hvað er „playboy“? — Það er náungi, sem hringir á hverjum morgni á fæðingardeildir borgarinnar og spyr hvort það séu skálaboð til sín. — ★ — Þegar hún kom heim með eiginmanninn, nýgift í fjórða sinn, stóð sonur hennar við dyrnar með gestabókina og rétti honum. — ★ — Hreggviður, byggángameist- ari, var þekktur fyrir fljót- virkar byggingaraðferðir enda gat hann reist hús með þrem- ur stigagöngum á skemmri tíma en aðrár byggja bílskúr. Dag nokkurn hringdi verk- takinn, sem hann starfaði fyr- ir, og sagði: — Jæja, við erum búnir að taka stillansana niður við ný- bygginguna þína á Háubrún, en húsáð hrundi bara í leiðinni. — Eruð þið kolvitlausir, eða hvað, öskraði Hreggviður. Hef ég ekki margsinnis sagt, að það má ekki taka stillansana fyrr cn búið er að líma vegg- fóðrið á. — ★ — — Nú eruð það þér? Ég sem hélt að þetta væri maðurinn frá rafveitunni. 94 FV 6 1973

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.