Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1973, Blaðsíða 15

Frjáls verslun - 01.09.1973, Blaðsíða 15
Verkalýðsmál: Launamismunur kynjanna mestur í afgreiðslustörfum hér á landi Enn. vantar nokkuð á, að launamismunur kynjanna sé úr sögunni. Samkvæmt niðurstöðum Kjararann- sóknarnefndar kemur í ljós, að úr honum hefur heldur dregið á síðustu árum. Nefndin lagði til grundvallar launaskýrslur frá fyrirtækj- um í Reykjavík og nágrenni og við samanburð á beim kemur meðal annars í Ijós, að í fiskvinnu voru laun kvenna 95,9% af launum karla á árinu 1966 en 1971 voru laun kvennanna 97,5% b.e. launamismunurinn liafði minnkað um 1,6% miðað við árið 1966. Konur^í verk- smiðjuvinnu höfðu hins veg- ar 80,3% af Iaunum karla við verksmiðjustörf 1966 og 82,7% 1971, eða mismunur launanna hafði minnkað um 2,4%. I greinargerð Kjararann- sóknarnefndar segir, að launamismunur kynjanna stafi einkum af eftirfarandi: hefðbundinni verkaskiptingu kynjanna á yinnustað, karl- menn eru frekar yfirborgað- ir en konur, konur eru yfir- Ieitt óstöðugri vinnukraftur. Verkaskipting á vinnu- stöðum er oft á tíðum hefð- bundin, b-e-a-s. konur vinna störf, sem eru álitin vera „kvennastörf“ við beirra hæfi og eru oft verr launuð. Konur eru óstöðugri vinnu- kraftur vegna bess að í mörgum tilfellum er um giftar húsmæður að ræða, sem vinna í ígripum t.d. í frystihúsum og verksmiðj- um. í samanburði á vinnutíma verkamanna og verkakvenna við sömu störf kemur í Ijós, að karlmenn vinna lengri vinnudag en konur. Var eft- irvinna og næturvinna hlut- fallslega af heildarvinnu- tíma mest í fiskvinnu árið 1966 eða 36,1% hjá körlum og 25,0% hjá konum. Sama ár var eftir- og næturvinna við verksmiðjustörf 20,3% af vinnutíma karla og að- eins 5,9% af vinnutíma kvenna. Ef tekinn er samanburð- ur úr nokkrum starfsgrein- um annars vegar frá árinu 1968 og hins vegar 1971 verður útkoman sú, að í fiskvinnu var tímakaup verkakvenna 95,5% af kaupi karla árið 1968 en 97,5% 1971. Við af- greiðslustörf höfðu konurn- ar 70,7% af tímakaupi karla fyrra árið en 73,5% bað seinna. I verksmiðjuvinnu var lilutfallið árið 1968 81,5% af kauni karla en 82,7% árið 1971 og í bæj- arvinnu 86,8% 1968 en 87,9% 1971. Þessar tölur samkvæmt úr- taki Kjararannsóknarnefnd- ar gefa bví til kynna, að launamismunur sé mestur milli kynjanna við af- greiðslustörf af beim fjórum starfsgreinum, sem hér hafa verið nefndar. Heilbrigðiseftirlit: Flest neyzluvörufyrirtæki þurfa stöðugt aðhald Heilbrigðiseftirlit Reykja- víkurborgar flokkaði um s.l. áramót í þrjá flokka 451 stað, er fæst við framleiðslu, sölu og dreifingu neyzluvara í Reykjavík. í fyrsta flokk fóru þau íyrirtæki, sem til fyrir- myndar eru varðandi hrein- læti, umgengni og meðferð neyzluvöru. í annan flokk fyrirtæki, er stöðugt aðhald þurfa, en framkvæma fyrir- mæli eftirlitsins um úrbætur yfirleitt án lítilla tafa. í þriðja flokki eru hins vegar staðir, þar sem reglur um góða umgengni eru meira eða minna brotnar og illa gengur að fá eigendur þessara fyrirtækja til þess að bæta úr ágöllum. Ó- hæfilega mikill tími, að dómi eftirlitsins, fer til eftirlits með þessum lélögu stöðum. Niðurstaða flokkunarinnar var sú, að í 1. flokki reyndust vera 32% af þessum 451 stað, í 2. flokki 55-58% og í 3. flokki 10-13%. í skýrslu heilbrigðiseftirlits- ins kemur fram, að í fyrra voru tekin samtals 243 sýni af kjöti og kjötvörum og reynd- ust 100 af þeim aðfinnsluverð. Af gerilsneyddri mjólk 181 sýni og af þeim voru 29 aðfinnslu- verð f/g af salötum og majo- nesi voru 44 sýni aðfinnslu- verð af 120, sem tekin voru. Eftir kröfu heilbrigðiseftirlits- ins var eytt tæpum tveimur tonnum af kjötvörum í fyrra. Alls bárust eftirlitinu 258 kvartanir í fyrra og reyndust 94 þeiT-ra vera vegna gallaðrar neyzluvöru, meðferðar mat- væla o.fl. FV 9 1973 15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.