Frjáls verslun - 01.09.1973, Blaðsíða 16
Lady Tweedsmuir
Ef íslenzkir ráðamenn
vilja ræða við
okkur, hverfa herskipin af miðunum”
Mikil óvissa ríkti um fram-
hald stjórnarsamskdpta ís-
lands og Bretlands um það
leyti, sem þetta tölublað FV.
fór í prentun. íslenzka ríkis-
stjcrmin hafði sett brezku
stjórninni lokafrest til að kalls
herskip sín úr íslenzkri fisk-
veiðilógsögu. Nokkru áður en
það gerðist mátti draga þá á-
lyktun af viðbrögðum ráða-
manna í London, að þeir
myndu ekki í miklu hreyta
stefnu sinni í landhelgismálinv
þrátt fyrir yfirlýsingar íslenzku
ríkisstjórnarinnar.
Þá er það augljóst, að sumir
ráðamenn í Whitehall í Lon-
don, kippa sér ekki up við
fréttir af þeim umræðum, sem
orðið hafa uin aðild íslands að
NATO vegna yfirgangs Breta
hér við Iand.
Þetta mátti ráða af viðtali,
sem ritstjóri Frjálsrar verzl-
unar átti við Lady Tweeds-
muir, aðstoðarutanríkisráð-
herra í brezku stjórninni í
skrifstofu hennar í Utanríkis-
og samveldismálaráðuneytinu í
London daginn eftir að ís-
lenzxa ríkisstjórnin birti yfir-
lýsinguna um hugsanleg slit á
stjórnmálasambandi milli ríkj-
anna.
LÚTT YFIR LAFÐINNI
Lady Tweedsmuir var ný-
komin úr sumarleyfi, þegar
viðtalið fór fram og það var
greimlegt á ásjónunni og kaffi-
brúnum fótleggjunum, að lafð-
in haíði verið á sólríkum
slóðum í orlofi. Það var létt
yfir henni og hún svaraði
greiðlega spurningum um land-
helgismálin, þó að í sumum
tilfellum þyrfti hún að leita
nánari upplýsinga hjá Mr.
Fowcett, sem er starfsmaður
Vestur- Evrópudeildar ráðu-
neytisins og var viðstaddur er
samtalið fór fram. Hann er
greinilega Breti af gamla skól-
anum, þó að ekki virðist hann
nema tæplega miðaldra, og
samkvæmt frásögnum af fyrri
Lady Tweedsmuir, aðstoð-
arutanríkisráðherra Breta,
hefur stjórnað samningavið-
ræðum við Islendinga um
landhelgismálið. Engar við-
ræður hafa nú farið fram í
fimm mánuði, en Lady
Tweedsmuir gerði grein fyrir
afstöðu brezku stjórnarinnar
til málsins í viðtali við rit-
stjóra FV, sem fram fór í
London fyrir nokkru.
samningaviðræðum íslendinga
og Breta út af landhelgismál-
inu hefur umræddur Mr. Fow-
cett verið óblíður og óbifan-
legur i einstrengislegri afstöðu
sinni til málsins.
í upphafi samtalsins rifjaði
Lady Tweedsmuir upp nokkur
atriði í sambandi við ferðir
sínar til íslands og var ekki
annað á henni að heyra en að
henni hefði þótt skemmtileg
tilbreyting að koma til lands-
ins og rómaði hún einkanlega
haustferð sína þangað. En eins
og ætlunin var snerist talið
fljótlega að sambúð íslendinga
og Breta og var Lady Tweeds-
muir fyrst spurð að því, hver
viðbrögð ráðamanna í London
væru við yfirlýsingu íslenzku
rikistjórnarinnar um slit stjórn-
arsamskipta.
— Forsendurnar fyrir þess-
ari yfírlýsingu eru gjörsam-
lega úr lausu lofti gripnar, sagði
Lady Tweedsmuir. Það er ekki
aðeins trúa mín heldur veit
ég, að yfirmenn brezku her-
skipanna hafa aldrei átt frum-
kvæðið í þeim árekstrum, sem
orðið hafa á miðunum við ís-
land. Hverjum getur komið til
hugar, að yfirmenn í flota
hennar hátignar ætli sér að
sigla á íslenzk varðskip?
spurði lafðin og hló við. —
Það eru duglegir skipstjórar,
sem stjórna íslenzku varðskip-
unum, hélt hún áfram, og þeir
hafa lagt sig fram um að
„stríða“ okkar mönnum.
Mér fyndist það í sjálfu sér
mjög kjánalegt, ef islenzka rík-
isstjórnin sliti stjórnmálasam-
bandi, því að þar með væri
komið í veg fyrir áframhald-
andi tilraunir til að finna bráða-
birgðalausn á þessu deilumáli
okkar. íslenzka samninganefnd-
in vildi ekki semja í maí en
við lögðum þá fram tillögur í
mörgam liðum, sem við höfum
beðið eftir svari við. Það bólar
ekkert á því, þó að rúmir fjór-
ir máuðir séu liðnir. Við hefð-
um getað verið búin að leysa
lfi
FV 9 1973