Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1973, Page 21

Frjáls verslun - 01.09.1973, Page 21
Stóru iðnaðarfyrirtækin í Noregi, þar sem starfsmenn eru fleiri en 100, framleiða helming iðnað'arframleiðslunnar. 80% dðnfyrirtækja hafa færri en 20 starfsmenn. Af þessu leiðir ekki að Norð- menn ætli að draga úr starfsemi sinni á sænskum markaði, held- ur koma áhrifum sínum á fram- færi annars staðar í Svíþjóð en í Stokkhólmi og nágrenni, með því að halda vörusýningar, sem fari stað úr stað. VEIKLEIKI OG STYRKUR. Litlar iðnaðarþjóðir eins og Norðmenn og íslendingar hafa af smæð sinni bæði veikleika og styrk. Veikleikinn er 1 því fólg- inn að auðlindir beggja þjóð- anna eru takmarkaðar séu þær bornar saman við hinar miklu iðnaðarþjóðir, og á þetta bæði við aðstoð hins opinbera og getu hvers einstaks fyrirtækis. Þau fyrirtæki, sem standa ein sér, hverfa í margmenninu á al- þjóðlegum vörusýningum. Á hinn bóginn hafa smáfyrir- tæki á íslandi og í Noregi þann kost að þau geta komið upp sér- hæfðri framleiðslu á þeim svið- um þar sem alþjóðamarkaður er svo takmarkaður að ekki tekur því fyrir stórfyrirtækin að keppa við þau. Auk þess er hægt að styrkja aðstöðuna með því að vinna saman bæði við fram- leiðslu og markaðsleit. Mörg iðnaðarfyrirtæki og á það jafnt við í Noregi og á ís- landi, hafa lítinn eða engan á- huga á útflutningi. Markaður- inn heima fyrir er þeim til þess að gera vandalaus, og finna þau því enga hvöt hjá sér til þess að ráðast á þau mörgu vandamál, sem leiðir af markaðsleit á al- þjóðlegum vettvangi. í Noregi hefur samt sem áður orðið vart við aukinn áhuga á útflutningi hjá smáum fyrirtækjum vegna lækkaðra tolla og frjálsari inn- flu’nings, sem hafa komiðl á stað aukinni samkeppni á heims- markaði. , AFL BRESTUR. Á Útflutningsráði Noregs er einn alvarlegur ókostur, en þar er svo annríkt við vandamál líð- andi stundar, að afl brestur til djúptækari ráðagerða langt fram í tímann. Hér er verkefni, sem ráða verður fram úr og verður það að gerast í samvinnu við útflytjendur. Má þar nefna eitt dæmi til skýringar. Hús- gagnaiðnaður Noregs kom ný- lega með greinargerð, þar sem bent er á að húsgagnaiðnaður- inn verði að auka framleiðsluna verulega næstu árin, ef hann eigi að geta staðið sig í keppn- inni um sérmenntaðan vinnu- kraft. Slík aukning getur því aðeins orðið að útflutningurinn aukizt. Fram til ársloka 1975 verður útflutningur húsgagna- iðnaðarins að aukast úr 200 milljónum króna árið 1971 upp í 500 milljónir króna árið 1975. Sams konar greinargerð þarf að fá um allar iðngreinar og má síðan hafa hana að grundvelli framtíðaráætlana. Þá geta Norð- menn seinna meir kveðið á um mikilvægi iðngreinar þar sem það hæfir og þar innt af hendi þá þjónustu sem er takmark þeirra. ÞÉTTITÆKNI H.F. Sendum þéttiefnið í póstkröfu um land allt. Rústfríir aðalvalsar í roðfellivélar. Varahlutir í fisk- vinnsluvélar. • Rennismíði • Nýsmíði • Viðgeröir S. S. Gunnarson hf. SÚÐARVOGI 18. SÍMI 8-50-10. REYKJAVÍK. FV 9 1973 21

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.