Frjáls verslun - 01.09.1973, Síða 28
hús, sem nú eru orðin 18 að tölu.
Verkið gekk mjög vel því flutt
var inn í 5 húsanna og rekstur
Reykjalundar hafinn 1. febrúar
1945, eða tæpu ári eftir að fyrsta
skóflustungan var tekin. Það
voru 20 vistmenn sem fengu
þarna inni til að byrja með og
notuðu þeir braggana, sem áður
var sagt frá, sem vinnustofur,
sem í fyrstu voru bundnar við
sauma, járnsmíði og trésmíði.
Má meðal annars geta þess að
þó nokkur fjöldi vistmanna hef-
ur stundað nám og lokið prófi í
trésmíði frá verkstæðinu á
Reykjalundi. Oddur Ólafsson
læknir var strax ráðinn sem
yfirlæknir og jafnframt fram-
kvæmdastjóri og gegndi hann
báðum þeim störfum til ársins
1948, en þá var Árni ráðinn til
að gegna framkvæmdastjóra-
stöðunni með honum. Oddur
gegndi yfirlæknisstöðunni til^ ,
ársins 1970 en vann þó lengur '
við vinnuheimilið.
Árið 1946 voru vistmannahús-
in orðin 11 talsins, og var þá
byrjað að reisa aðalbygginguna,
3ja hæða hús, sem tekið var í
notkun 1. febrúar 1950 og komst
vistmannatalan þá upp í 85
manns. Árið 1949 fengust sam-
þykkt á Alþingi lög sem heim-
iluðu S.Í.B.S. að starfrækja
flokkahappdrætti, sem hefur
verið rekið síðan og verið aðal
fjáröflun S.Í.B.S. Ágóði af
happdrættinu hefur verið not-
aður til framkvæmda á Reykja-
lundi, eingöngu, en hann var
á síðasta ári tæpar 10 milljón-
ir króna. Þórður Benediktsson
var framkvæmdastjóri happ-
drættisins frá upphafi til 1968,
en þá tók Ólafur Jóhannesson
við og gegnir hann því starfi
enn. Slík happdrættisleyfi eru
veitt til 10 ára í senn, þannig að
S.Í.B.S. hefur tvisvar fengið
sínu leyfi framlengt og gildir
það núna til 1979.
Árið 1951 var hafin bygging
3ja vinnuskála og húss fyrir
skrifstofur, læknastofur og
fleira. Þessi hús voru tekin í
notkun á árunum ’53-’60 og þeg-
ar nýju vinnuskálarnir voru
teknir í notkun breyttist jafn-
framt starfsemin í þeim, því þá
voru keyptar vélar frá tveimur
plastiðjum í Reykjavík og þær
settar upp á Reykjalundi. Jón
Þórðarson var þá ráðinn verk-
smiðjustjóri og gegnir hann því
starfi enn. Plastiðjan hefur síð-
an vaxið mikið og vélakostur
hennar verið aukinn og fram-
leiðslan gerð fjölbreyttari með
ári hverju. Fyrstu árin voru ein-
Nýhygging að Reykjalundi,
fyrir verksmiðjurnar.
göngu framleidd á Reykjalundi
leikföng og búsáhöld úr plasti.
Og enn byggja Reykjalundar-
menn, því eins og áður sagði, er
verið að byggja við, bæði auka
húsnæði fyrir sjúklinga þannig
að um 40 rúm munu bætast við
þegar viðbyggingunni við aðal-
húsið er lokið og einnig mun að-
staða fyrir lækna og annað
starfsfólk batna að mun. Vonast
er til að það verði árið 1975.
Með viðbyggingu við eða ofan
á skrifstofuhús myndast aðstaða
fyrir sjúkra- og sjúkraiðjuþjálf-
ara. Einnig er í byggingu á
Reykjalundi 800 fermetra verk-
smiðjubygging.
BERKLAR í RÉNUN.
Það var í kringum árið 1956,
sem berklasjúklingum fór veru-
lega að fækka hérlendis og það
ár voru fyrst gerðar undantekn-
ingar með að taka aðra örorku-
sjúklinga til dvalar á Reykja-
lundi en þá sem voru berkla-
veikir. í dag eru berklasjúkling-
ar í miklum minnihluta og má
nefna það að Geðverndarfélag
íslands leggur nú fram fé og
mun eiga 10 rúm af þeirri við-
bót, sem nú er í byggingu. Það
félag byggði og á einnig 3 af
litlu vistmannahúsunum, sem
áður voru nefnd.
Fastráðnir læknar á Reykja-
lundi eru nú 3 talsins og er
Haukur Þórðarson yfirlæknir.
Hann réðist þangað árið 1962
og starfaði ásamt Oddi Ólafssyni
sem yfirlæknir til ársins 1970
þegar Oddur hætti og tók þá
Haukur einn við starfinu. Auk
800 fermetra viðbótarhúsnæði
þessara 3ja lækna starfar þar að
hluta héraðslæknir Álafosslækn-
ishéraðs, en hann hefur húsnæði
og vinnuaðstöðu á Reykjalundi
og vinnur fyrir vinnuheimilið
ákveðinn hluta af starfsdegi sín-
um.
VISTFÓLK UM HELMINGUR
STARFSKRAFTA
REYKJALUNDAR.
Hjá Reykjalundi starfa nú um
100 manns, auk vistfólksins, en
af því eru oftast 80-90 manns
sem vinna á vinnustofum heim-
ilisins. Enn eru starfræktar þar
saumastofur og járnsmíða- og
trésmíðavinnustofur en plastiðj-
an og mótagerð fyrir hana er
lang stærstur hluti vinnunnar í
dag. Á síðasta ári voru seldar
plastvörur frá Reykjalundi fyr-
ir 117 milljónir króna. Vistfólk-
ið, sem stundar vinnu á Reykja-
lundi fær greitt 60% af launa-
taxta og fer vinnustundafjöldi
eftir getu hvers og eins, frá 2
upp í 6 tíma á dag. Eins og önn-
ur sjúkrahús á Reykjalundur
við að glíma skort á hjúkrunar-
fólki og sagði Árni að útlitið í
þeim efnum væri ekki gott og
kviði hann því þegar viðbótar-
byggingin verður tekin í notkun
og þörfin eykst að mun. Vist-
menn á Reykjalundi eru nú 145
talsins.
Stjórn Reykjalundar skipa
nú eftirtaldir menn: Ástmundur
Guðmundsson, formaður, Bald-
vin^ Jónsson, ritari, Höskuldur
Ágústsson, Njáll Hermannsson
og Finnur Sigurjónsson.
28
FV 9 1973