Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1973, Page 31

Frjáls verslun - 01.09.1973, Page 31
Mlkil þörf fyrir iðjuþjálfara — segir Haukur Þórðarson, yfirlæknir á Reykjalundi Upphaflega miðaðist starf- semin að Reykjalundi við end- urhæfingu berklasjúklinga og gátu þeir einir fengið vist á vinnuheimilinu. Loks var svo kornið, að berklasjúklingar þurftu ekki lengur á öllu vist- rými heimilisins að halda, þar sem veikinni var nær útrýmt, og var því ákveðið að taka að Reykjalundi almenna öryrkja til tímabundinnar dvalar, og er nú tilgangur reksturs og starfsemi Reykjalundar að endurhæfa öryrkja, líkamlega og andlega. í viðtali við FV sagði Haukur Þórðarson, yfirlæknir á Reykja- lundi, að nú væru starfandi þrír læknar á vinnuheimilinu. Þá væru ennfremur starfandi 5 hjúkrunarkonur, 3 sjúkraþjálf- arar og margt af öðru starfs- fólki. Læknanemar væru þar starfandi á sumrin og á haustin. Sagði Haukur að skortur væri á sérmenntuðu starfsliði í end- urhæfingu í landinu og þá einn- ig á Reykjalundi, sérlega vant- ar sjúkraþjálfara og iðjuþjálf- ara. Nú eru 145 vistmenn á vinnu- heimilinu, en í þessum mánuði verða tekin í notkun 27 rúm, og enn fleiri á næsta ári. Um 160-70 manns eru á biðlista eftir dvöl á heimilinu, þar af voru um miðjan setptember 63, sem þörfnuðust vistar eins skjótt og auðið væri. Vistrými Reykjalundar hefur aukizt yfir árin. Um fjörutíu vistmenn rúmuðust þar fyrstu fimm árin, sem Reykjalundui var starfræktur. Þegar aðal- byggingin var byggð um 1950 jókst rýmið um helming. í árs- lok 1966 gátu 115 vistmenn dval- izt á heimilinu, en frá því 1970 hafa 145 pláss að jafnaði verið til reiðu á Reykjalundi. Gerð var skrá yfir fjölda inn- ritaðra vistmanna að Reykja- lundi árin 1967-1971 og voru vistmenn með sjúkdóma í mið- taugakerfi flestir eða 27%. Þá voru vistmenn með gigtarsjúk- dóma næst fjölmennastir eða 19.6%. Vistmenn með meðfædd- ar bæklanir eða bæklanir eftir slys voru 17.6% og vistmenn með geðsjúkdóma voru 14.6%. Aðrir sjúkdómar voru m. a. lungnasjúkdómar, hjartasjúk- dómar. Þeir vistmenn, sem koma að Reykjalundi, að sögn Hauks koma af sjúkrahúsum, frá fé- lagsmálastofnunum, endurhæf- ingarráði, Öryrkjabandalagi ís- lands, og svo eru sumir lagðir inn samkvæmt tilvísun lækna. Að Reykjalundi var opnuð æf- ingastöð árið 1963. Starfa þar sjúkraþjálfarar, sem vinna við líkamlega uppbyggingu vist- manna og reyna að endurheimta líkamsburði, hreyfingar og orku. Sagði Haukur, að mikil þörf væri á að fá iðjuþjálfara til starfa á vinnuheimilinu, en þeir vinna að líkamlegri þjálfun Sundlaugin að Reykjalundi. FV 9 1973 31

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.