Frjáls verslun - 01.09.1973, Page 33
Kona á Reykjalundi raðar
Lego-kubbum í umbúðir.
vistmanna líkt og sjúkraþjálfar-
ar, en þeir gengju að verki með
öðrum hætti, og nota vinnu-
aðferðir við að þjálfa vistmann-
inn upp.
Á æfingastöðinni eru ýmis
tæki, sem þjálfararnir nota við
þjálfun vistmanna. Má þar
nefna ýmis hjálpartæki, göngu-
tæki, rafmagnstæki og enn-
fremur var í júlí tekin í notkun
ný sundlaug fyrir vistmenn.
Minni sundlaug hafði verið áð-
ur, en nýja sundlaugin er stærri
og sniðin fyrir vistmenn.
Á Reykjalundi eru nú aðeins
þrjátíu berklasjúklingar. Hafa
sumir þeirra verið á vinnuheim-
ilinu í mörg ár og einn allt frá
fyrstu tíð. Margir vistmannanna
á heimilinu vinna í plastgerð-
inni og þiggja þeir laun fyrir.
Þá er læknastöð á staðnum og
að sögn Hauks er þörf á að
stækka hana vegna fjölgunar
vistmanna og aukinnar fjöl-
breytni í starfsemi heimilisins.
Með stækkun aðalbyggingarinn-
ar vex einnig þörf á starfsliði.
Ennfremur er mikil þörf á að
stækka æfingastöðina vegna lít-
ils húsrýmis.
Rannsóknarstofa hefur verið
starfrækt á Reykjalundi frá
1987 fyrir almennar þvag- og
blóðrannsóknir. Sálfræðingur
hefur starfað þar undanfarin ár
og annast prófanir á sviði hæfni.
greindar og andlegs atgervis.
Á árunum 198 7-19 M komu.
678 konur á vistheimilið. en 765
karlar. Af þessum fjölda fóru
sama ár af vistheimilinu 750
konur og 671 karlmaður.
Fyrirtæki - Atthagafélög
Starfsmannahópar
Kynnið ykkur þær breytingar og auknu möguleika er
skapazt hafa við stækkun á Átthagasal hótelsins.
Getum nú annazt allt frá 10-190 manna veizlur, fundi o. fl.
í þessum sal og móttökur fyrir allt að 300 manns.
Félagasamtök og starfsmannahópar er haldið hafa árshátiðir
sínar í Átthagasalnum undanfarin ár eru vinsamlega
beðnir að hafa samband við okkur sem fyrst.
HÓTEL SAGA, sími 20600.
HOTELSAGA
sími 20600
FV 9 1973
33