Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1973, Side 55

Frjáls verslun - 01.09.1973, Side 55
taldir aðilar einir reka vátrygg- inarstarfsemi hér á landi: 1. Innlend félög og stofnan- ir, sem starfa samkv. sérlögum. 2. Innlend hlutafélög og gagnkvæm vátryggingar- félög, sem leyfi hafa feng- ið til slíkrar starfsemi. 3. Erlend félög, sem fengið hafa leyfi til slíkrar starf- semi. Bannað er beinum orðum, að vátryggingarfélag hafi með höndum aðra starfsemi en vá- tryggingar, vátryggingaumboð og tjónauppgjör svo og fast- eignarekstur á þeim fasteign- um, sem það á. Þannig er vá- tryggingarfélagi óheimilt sam- kvæmt lögunum að reka t.d. heildverzlun eða útgerð. Þá er með lögum einn þátt- ur vatryggingarstarfseminnar tekinn út úr, en það eru líf- tryggingar. Skulu líftryggingar reknar af sjálfstæðum félög- um, sem hafa einungis þá starf- semi með höndum. Þó getur tryggingamálaráðherra leyft trygingafélagi að hafa með höndum sjúkra- og slysatrygg- ingar, en þær tryggingar eru á margan hátt skyldar líftrygg- ingum. Er þetta í samræmi við erlend lög. Líftryggingar eru þanmg upp byggðar, að oft er ætlazt til, að vátryggingar- samningurinn gildi um langan tíma og vátryggingarfélagið leggi til hliðar verulegt fé um langan tíma til þess að geta staðið við skuldbindingar sínar. Skaðatryggingar gilda hins vegar um skamman tíma. Algengt hefur og verið, að vátryggingarfélög, sem hafa á hendi alhliða vátryggingar- starfsemi, reki einnig líftrygg- ingarstarfsemi. Slíkt er að margra áliti óheppilegt. Af eðli líftryggingarstarfseminnar leiðir, að fjárreksturs hennar verður að gæta af meiri vand- virkni og athugun en annarra trygginga. Jafnframt er bannað, að vátryggingarfélög taki á sig ábyrgðir eða skuldbindingar, sem ekki eru vátryggingar, nema slíkt leiði af eðlilegum rekstri félagsins. Samkv. þessu er vátryggingarfélögum t.d. bannað að ganga í ábyrgðir fyrir viðskiptaaðila sína, sem nokkuð mun hafa tíðkazt, sam- þykkja fyrir þá víxla eða á- baka þá og annað slíkt. LÁGMARK HLUTAFJÁR Hlutafé í vátryggingar- hlutafélagi skal nú vera hið minnsta 20 millj kr., nema í líftryggingarfélagi, en þar má það vera hið minnsta 10 millj. kr. og þegar um gagn- kvæmt líftryggingarfélag er að ræða, skal það vera minnst 5 millj kr. Við ákvörðun þess, hvert vera skal lágmark hlutafjár í vátryggingarhlutafélagi, er til margs að líta. Ef kröfurnar eru of vægar, er hætta á, að starfandi vátryggingarfélög verði fleiri en hagkvæmt get- ur takizt fyrir þjóðarbúið. Ef félögin eru of mörg, verða þau að sarna skapi smærri og veik- ari. Reynslan hefur sýnt, að félög, sem stofnuð hafa verið af litlum efnum og ekki hafa tryggt sér verulegan markað, hafa átt erfitt uppdráttar og ekki orðið til gagns fyrir trygg- ingamarkaðinn. Á hinn bóginn má ekki reisa of miklar skorður við stofnun nýrra félaga, þar sem það getur leitt til einokunar- aðstöðu og stöðvunar á trygg- ingamarkaðinum. Samkeppni á þessu sviði eins og öðrum, er að nokkru leyti fólgin í því, að nýir aðilar með ný viðho"f og starfsaðferðir hafi tækifæri til þess að komast inn á markaðinn. Það eitt sam- an, að félag sé gamalt og gró- ið, tryggir ekki, að það veiti þjónustu sína með hagkvæm- um kjörum. Stundum vill hlað- ast aukinn kostnaður á félög, þegar þau eldast. Þess vegna má ekki vernda félög, sem fyrir eru, gegn stofnun nýrra félaga nema að vissu marki. í þessu efni þarf að fara meðal- veginn og þess vegna er spurn- ing, hvort 20 millj. kr. lág- mark sé ekki of hátt. Það nýmæli er og í lögun- um, að atkvæðisréttur fylgir ekki eigin hlutabréfum í vá- tryggingarfélögum, en þau mega eiga mest 10% af hluta- fé félagsins. Þá er það ákvæði, að a.m.k. einn stjórnarmanna skuli val- inn með það fyrir augum að gæta hagsmuna vátryggingar- taka og hinna tryggðu. Skal það t.ekið fram í samþykktum félagsins, hvernig hann skuli valinn. Hlutdeild tryggingafélaganna í iðgjöldum helztu trygg- ingagreina 1971. Bruna- Sjóvá- BifreiSa- Aörar Almennar tryggingar trygg. % 15,4 trygg. % 14,1 trygg. % 21,0 trygg. % Brunabótafélagið 24,6 0,5 5,6 6,9 Hagtrygging 0,0 0,0 9,8 0,3 Húsatryggingar Reykjavíkur 28,5 — — — íslenzk endurtrygging 6,5 9,0 1,3 16,2 Samábyrgð íslands — 28,1 — — Samvinnutryggingar 17,1 12,7 35,3 31,3 Sjóvátryggingafélagið 4,7 5,5 19,0 14,6 Trygging 0,8 4,4 1,4 18,3 Tryggingamiðstöðin 1,9 8,7 2,9 10,4 Vélbátaábyrgðafélög — 14,5 — — Önnur x'élög 0,5 2,5 3,7 2,0 Alls 100,0 100,0 100,0 100,0 Skipting iðgjalda af líftryggingum á 6 tryggingafélög: % Almennar tryggingar ........................... . 9,1 Alþjóða líftryggingafélagið ...................... 24,3 Andvaka .......................................... 34,9 Líftryggingamiðstöðin .............................. 9,0 Sjóvátryggingafélagið ............................ 20,5 Vátryggingast. Sigfúsar Sighvatssonar .............. 2,2 Alls 100,0 FV 9 1973 55

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.