Frjáls verslun - 01.09.1973, Qupperneq 65
þess er þegar fyrir hendi nokk-
ur vísir að byggingavöruverzl-
un. Sagði Sveinn Árnason að
ætlunin væri að efla þann þátt
til muna, ef aðstæður leyfðu.
Sagði hann að fjármagnsskortur
væri mjög tilfinnanlegur og eina
fyrirgreiðslan, sem hægt væri
að fá hjá bankastofnunum, væru
yfirdráttarlán með allt að 15%
vöxtum. Hvergi erlendis myndi
slík fásinna tíðkast og væri því
ekki nema eðlilegt að innlend
iðnfyrirtæki stæðu höllum fæti
í samkeppni við erlenda aðila.
Iðnaðarhúsið þar sem fram fer starfsemi skóverksmiðjunnar
Agila, prjónastofunnar Dyngju og byggingarfélagsins Brúnáss.
Skóverksmiðjan Agila
Sigurður Magnússon, fram-
kvæmdastjóri skógerðarinnar
Agila, tjáði okkur, að það fyrir-
tæki hefði verið stofnað 1969
með þátttöku á þriðja hundrað
hluthafa.
Upphaflega var Agila í sam-
bandi við hollenzka skóverk-
smiðju, sem veitti ýmsa aðstoð
til að koma rekstrinum af stað
og síðan hefur Agila notið að-
stoðar frá Hollandi við efnis-
kaup og er hönnuður skófatnað-
arins t. d. Hollendingur.
Hjá Agila starfa nú um 20
manns að jafnaði og þar eru nú
framleiddar um 50 mismunandi
gerð'ir af skóm. Fyrst 1 stað
voru það mest barnaskór en að
sögn Sigurðar eru tegundir nú
orðnar helzt til margar, en
grundvöllur virðist samt ekki
vera fyrir sérhæfingu.
Framleidd eru milli 60 og 70
pör af skóm á dag og er reynt
að halda framleiðslunni jafnri
allt árið en aðalframleiðslan fer
þó, fram á tímabilinu maí-júní
og október-nóvember. Af allri
sölu fara um 60% fram í októ-
ber og nóvembermánuðum og er
geysimikilvægt, að pantanir
liggi fyrir áður en framleitt er,
því lager er dýr í þessari vöru.
Nú þegar er búið að selja allt,
sem framleitt verður fram til
jóla. Er stefnt að því að koma
því fyrirkomulagi á, og að hægt
verði að selja hálft ár fram í
tímann og panta þar með efni
eftir söluhorfum. í september
eru erlendir framleiðendur yfir-
leitt að selja skó, sem koma á
markað vorið eftir.
Sigurður sagði að árangur
hefði orðið góður af þátttöku
verksmiðjunnar í kaupstefnunni
íslenzkur fatnaður síðustu tvö
skipti en breyta þyrfti tímasetn-
ingu á þeim, svo að í október
væri hægt að kynna vörur fyrir
vorið og í maí fyrir haustið. Þá
væri algjörlega ófært að á tveim
stöðum á landinu væri efnt til
slíkrar meiriháttar kynningar
samtímis eins og gert var í
haust, þegar Iðnstefna sam-
vinnufélaganna fór fram á Ak-
ureyri um leið og kaupstefnan.
Það er heildverzlun H. J.
Sveinssonar í Reykjavík sem
selur skóna frá Agila á svæði
frá Vík í Mýrdal til Akureyrar
en um aðra landshluta sér verk-
smiðjan sjálf. Hlutur Agila á
markaðinum hefur stækkað
undanfarið og er reynt að vera
með aðrar tegundir en Iðunn á
Akureyri, sem er aðalsamkeppn-
isaðili hér innanlands. Annars
er tæpast hægt að tala um sam-
keppni milli innlendra aðila,
miðað við allt það magn,
sem flutt er inn af skóm og tel-
ur Sigurður, að aðeins 2-3% af
skóm landsmanna séu innlend
framleiðsla. Viðhorf manna til
innlendrar skóvöru væri ekki
hún eigi að vera á lægra verði
en útlendir skór. En hér er
vinnukostnaður geysihár, en
þrátt fyrir það er verðið sam-
bærilegt og í ljós hefur komið að
innlend skóframleiðsla stendur
hinni erlendu ekkert að baki
bæði í verði og gæðum.
Unnið við eina af skógerðarvélunum hjá Agila.
FV 9 1973
65