Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1973, Page 69

Frjáls verslun - 01.09.1973, Page 69
fjölmennir hópar þingað hér í sumar. Líka er athyglisvert, hvað Ey- firðingar og Þingeyingar sækja hingað í helgarferðir. Slíkt þekktist tæpast fyrir fáeinum árum. — Er það veðráttan, sem laðar fólkið hingað? — Hún á eflaust sinn þátt í að fólk leggur leið sina hingað. í júlí og ágúst hygg ég að hafi ekki rignt nema í u. þ. b. 10 daga, og júnímánuður var frem- ur þurr en kaldur. Þegar líða tók á sumarið varð miklu hlýrra í veöri og hefur verið yfir 20 stiga hiti dögum saman. Hér er veðursælla en á flestum öðrum stöðum á landinu. — Sýnist þér, að ferðamenn- irnár séu að spilla landinu? — Nei, síður en svo. Hall- ormsstaðaskógur er mjög vin- sæll áningarstaður ferðafólks og þar verðum við ekki varir við nein spjöll að ráði. Útlendingar ganga líka yfirleitt betur um en landinn og sé ég þetta bezt á meðferðinni á bílunum, sem ég leigi út. — Hvers konar ferðalangar eru það einkanlega, sem koma að snæða hjá þér í Vegaveit- ingum? — Bróðurpartinn af viðskipt- unum gerir fólk úr fjórðungn- um. Ég hef alltaf reynt að stilla verði í hóf og þess vegna fengið hingað stöðug viðskipti fólks, sem vill ekki fara inn á hótel til að snæða þar dýrari mat. Þetta eru innlendar fjölskyldur á ferðalagi, ungir útlendingar, sem ferðast á „puttanum", fólk af öllum stéttum. Hópferðabíl- arnir, sem hér eiga leið um með útlenda ferðamenn, stanza oft hjá mér til að taka benzín og farþegarnir fá sér kaffibolla á meðan. í fyrra stækkaði ég skálann þannig að nú komast hér í sæti milli 60 og 70 manns og þegar mest er að gera verða gestirnir stundum 500-600 yfir daginn. Skálinn er aðeins opinn 5 mán- uði ársins en á veturna eru hér haldin einkasamkvæmi og fund- ir. — Hér á matseðlinum eru boðnar hreindýrakótilettur, sem fáir aðrir staðir geta lík- lega státað af. — Já, hreindýrasvæðið er skammt undan, svo að hrein- dýrakjöt er eðlilega á borðum. Hreindýra'horn og skinn eru líka mjög eftirsóttir minjagrip- ir í verzluninni úti í flugstöð. — Þessi starfsemi, sem þú FV 9 1973 hefur nefnt er mjög bundin vdð sumarmánuðina. Ekki leggst Þráinn Jónsson í dvala yfir veturinn? — Nei, ekki alveg. En væri hér eilíft sumar er enginn vafi á að maður væri kolvitlaus orð- inn. Yfir sumarmánuðina er maður kominn í fullan gang fyrir klukkan átta á morgnana og linnir ekki látum fyrr en um tvöleytið á nóttunni. Þá hætta menn að hringja í símann. A veturna er miklu rólegra yfir öllu og bá sný ég mér af alefli að umboðunum. Ég sel hjólbarða og er umboðsmaður Sjóvá auk þess sem ég sel ben- zín og olíur fyrir B.P. Nú, flug- ið gengur líka sinn vanagang og farþegarnir þurfa þjónustu á veturna þó að þeir séu með færra móti. Annars er alltaf mikil umferð um flugvöllinn fyrir jól og páska og nóg að gera í veitingasölunni þar. Þeg- ar færðin er farin að spillast á ég það líka til að hjálpa mönn- um að komast á milli staða með því að setjast undir stýri í jeppa og aka með þá hér um nærsveit- irnar. Má ég ekki annars bjóða þér smávindil? Þetta er Baga- tello-sortin, sem Sveinn á Egils- stöðum reykir. Ég hef selt þá mikið með því að segia frá því. — Jú takk fyrir. Einn Baga- tello. En hvað annars um fram- tíðarmálin hjá þér? — Maður forðast að fara of geyst. Ég reyni þó stöðugt að láta mér detta eitt'hvað nýtt í hug og apa ekki allt eftir öðr- um. Líttu á Pepsi-maskínuna þarna. Ég held að þetta sé fyrsta gosdrykkj avélin, sem sett var upp í veitingastað af þessu tagi utan Reykjavíkur. Hvaða mein- ing heldur þú, að sé í því að vera að flytja vatn og gler á milli landshluta, þegar svona tæki eru til? Ef hugsað er til næstu fram- tíðar vildi ég gjarnan auka þjón- ustu við fólk, sem vill ferðast ó- dýrt, koma hér upp aðstöðu á tjaldstæðum eða ódýru gisti- rými. Margir spyrja mig, hvort þeir geti ekki fengið eitthvert húsnæði til að dveljast í með fjölskylduna yfir sumartímann. Það er líka þörf, sem huga þarf að. Litlar íbúðir fyrir sumarleyf- isfólk gætu orðið mjög vinsælar. — Er ekki býsna erfitt að vera athafnamaður úti á landi og þurfa að sækja margháttaða fyrirgreiðslu til Reykjavíkur? — Ég hef enga minnimáttar- kennd gagnvart Reykjavíkur- valdinu svokallaða og er lítið L upp á það kominn. Það er mest öfund og minnimáttarkennd, sem veldur því að fólk í dreif- býlinu talar um þessa Grýlu fyr- ir sunnan. Það verður þó að við- urkennast, að heldur margir eru saman komnir á höfuðborgar- svæðinu og alltof margir vinna orðið hjá ríkinu, en hafa lítið starfssvið. Það á að láta ein- staklinga reka þessi ríkisfyrir- tæki, sem mörg hver eins og Skipaútgerðin veita litla þjón- ustu en kosta milljónir af al- mannafé í taprekstri. Það ætti heldur að minnka ríkisbáknið og lækka skattana. Þegar farið er að taka 50-60% af tekjum manna í skatta verkar það lam- andi á framkvæmdaþrá fólks. Á henni fljótum við þó enn, sagði Þráinn Jónsson að lokum. Auglýsingastjórar helztu stórfyrirtækja heims velja auglýsingar í viðskiptaritum og öðrum sérritum vegna lesendahóps þeirra. Það eru auglýsingarnar sem selja. Frjáls Verzlun Mest lesna tímarit landsins. G9

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.