Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1973, Side 85

Frjáls verslun - 01.09.1973, Side 85
leika, sem þeir hafa til betri þjónustu en erlendir framleið- endur. Ég vil leggja áherzlu á, að framleiðendur láti ekki glepjast af hinni miklu eftir- spurn og vanræki að búa sig undir framtíðina. Verðlagsþróunin hefur ekki orðið iðnaðinum eins hagstæð og sjávarútvegi og landbúnaði og nú er svo komið að iðnaður- inn er kominn í verulegan vanda vegna þessarar þróunar. Ég vil ekki öfundast yfir velgengni í sjávarútvegi og fiskiðnaði. Þó hefur ekki farið hjá því, að verð- lagsþróunin þar hafi haft, og muni nú á næstunni hafa veru- leg áhrif á þróun kaupgjalds al- mennt og verðlag þjónustu, þar sem fiskur ræður enn mestu um efnahagsþróun á Islandi. Iðn- aðurinn verður svo að fylgja þeirri þróun, hvort se-m honum líkar betur eða verr. Það segir sína sögu að skoða tölur um verðhækkanir árið 1972. Landbúnaðarvörur hækk- uðu meir en 18%, fiskur og fisk- afurðir um nærri 18%, húsnæði og þjónusta um 14%, innfluttar neyzluvörur um 12%, en inn- lendar neyzluvörur, þ. e. al- mennar iðnaðarvörur, um að- eins 10.4%. Á þessum tíma varð iðnaðurinn að taka á sig yfir 25 % kauphækkanir og miklar hrá- efnahækkanir. Það er því knýjandi nauðsyn, að stjórnvöld auðveldi iðnaðin- um að bregðast við núverandi aðstæðum, svo hann geti gegnt því hlutverki að hleypa fleiri stoðum undir íslenzkt efnahags- líf og gera það þannig óháðara verð- -og aflasveiflum. Það þarf nú þegar að létta af iðnaðinum þeim kvöðum, sem á honum hvíla, umfram erlenda framleiðendur. Það er í fyrsta lagi að afnema tolla af vélum, hætta að innheimta söluskatt af þeim og fella nú þegar niður tolla af hráefnum. Þá þarf einn- ig að leysa iðnaðinn undan því að greiða launaskatt eins og þegar hefur verið gert við sjáv- arútveg og landbúnað. Þær hug- myndir, sem komið hafa fram um hækkun launaskatts eru því iðnaðinum stórhættulegar. Til þess að jafna að nokkru samkeppnisaðstöðu útflutnings- iðnaðarins, þarf að finna leiðir til þess að endurgreiða honum allan þann söluskatt, se:n hann hefur þurft að greiða af rekstr- arvörum og aðföngum, til sam- rærnis við það, sem gert er með- al þjóða, sem nota virðisauka- skatt.“ Ullarflíkur frá Álafossi. í bás nærfatagerðarinnar Artemis voru ýmsir fallegir náttkjólar sýndir. Yfirhafnir frá Sjóklæðagerðinni og Max. FV 9 1973 85

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.