Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1973, Page 92

Frjáls verslun - 01.09.1973, Page 92
Jafnan eru gerðar strangar kröfur um gæði þeirra gagna, sem véltekin eru. Þar gildir regl- an rusl inn — rusl út, sem þýðir að gæði úrvinnslunnar og rétt- leiki verður aldrei meiri en þeirra gagna sem notuð eru til grundvallar (reyndar eru flest- ar vitleysur, sem tölvum er kennt um, þannig til komnar, að inntaksgögnum hefur verið ábótavant). Af þessum sökum er það venja að prófa réttleika véltök- unnar. Þessi aðgerð hefur verið kölluð endurgötun, sem reyndar er tæplega réttnefni við 3740 vélina. Hún framkvæmir próf- unina á þann hátt, að tiltekin skrá er lesin, atriði fyrir atriði og borin saman við innslátt í annarri umferð. Villur sem finnast eru leiðréttar jafnharð- an. Við vélina má tengja IBM 3713 prentvél, sem getur prent- að upplýsingar af segulskifunni, annað hvort um leið og skráð er á hana eða síðar. Velja má hvaða upplýsingar skuli prenta og unnt er að kommusetja upphæð- ir. Af öðrum aukabúnaði má nefna vartöluprófun, safntelj- ara og aðra segulskífu til við- bótar. IBM 3741 gerð 2 er að öllu leyti eins og gerð 1 nema hana má tengja við símalínur og nota til móttöku og/eða sendingar upplýsinga, þar sem viðeigandi búnaður er tengdur við hinn enda línunnar. Getur það verið t. d. önnur 3741 gerð 2, IBM system/3 eða 370 og fleiri tæki. IBM 3742 er vél með tveim lyklaborðum til gagnaskráning- ar og tveim segulskifum. Hún er þannig í raun tvær vélar byggðar í sama borð og nota að nokkru sama rafeindaútbúnað. Við þessa vél er ekki unnt að tengja fjarskiptaútbúnað eða prentara. Hún er fyrst og fremst ætluð sem afkastamikil og hag- kvæm skráningarvél. Hver afköst þessa kerfis eru, miðað við venjulega götun, fer að sjálfsögðu eftir eðli hvers verkefnis, en dæmi eru um frá 20 til 70% afkastaaukningu. Munar þar mest um það, að ekki þarf að bíða eftir því, að spjald sé fært í rétta stöðu, en einnig verkar vitneskjan um það, hve auðvelt er að leiðrétta villur, hvenær sem þær finnast, þann- ig á vélstjórnandann, að hræðsla við að gera villur hverfur. Sá þáttur hefur oft mikil áhrif á hraðann. Hálfdán Helgasson s.f.: OZHJM, lofthreinsarl og lykteyðir OZIUM, sem hefur verið not- aður með sívaxandi árangri um alla Norður-Ameríku á undan- förnum 25 árum, er lyktarlaus lykteyðir, sem fjarlægir tóbaks- reyk. Jafnframt því að eyða lykt og reyk fækkar OZIUM þeim bakteríum i loftinu, sem valda særindum á hálsi, kvefi og in- fluenzu o. s. frv. Þannig getur OZIUM fækkað fjarvistum á skrifstofum, verksmiðjum, skól- um o. s. frv. OZIUM er algjö' - lega skaðlaus, þegar hann er notaður samkvæmt leiðbeining- um. OZIUM hæfir alls staðar, þar sem fólk er að starfi eða leik. Sögu OZIUM má rekja aftur til seinni heimsstyrjaldarinnar. Beiðni barst frá stjórn Church- ills um, að útvegaður yrði árang- ursríkur, skaðlaus lofthreinsir til að hindra sjúkdóma, eyða lykt og reyk í loftvarnabyrgj- unum. Þessi beiðni leiddi til upp- finningar OZIUM. Lofthreinsa þá, sem notaðir höfðu verið áður, var ekki hægt að nota í jafnríkum mæli, vegna þess hve slæm áhrif þeir gátu haft á þol- endur. OZIUM er hægt að fá í 3 stærðum. Einnig er hægt að fá sjálfvirkan úðara, OZIMATIC, sem úðar OZIUM á hálftíma fresti og viðheldur þannig stöð- ugt hreinu, fersku og heilsusam- legu lofti. ALLS KONAR BRAUÐGERÐAR- KAUPFÉLAG VÖRUR. BERUFJARÐAR, EFNAGERÐ Djúpavogi LAUGARNESS, sími 19166, pósthálf 938, Reykjavík. 92 FV 9 1973

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.