Frjáls verslun - 01.09.1973, Side 97
Afsakið. Ég hélt, að þetta
væró herbergi númmer 6.
— * —
— Vill herrann fá eitthvað
á andlitið eftir raksturinn?
— Eí þér hafið ekkert á
móti því, þá vildi ég gjarnan
fá í nefið.
Eiginmaðurinn var að lýsa
fyrir kunningja sínum, þegar
kona hans ól fyrsta barnið.
— Fyrst heyrði ég hljóð, líkt
og eggjahljóð í hænu, þar næst
komu hljóð af öllum tegund-
um en síðan datt allt í dúna-
logn, enda var athöfnin á enda.
— ★ —
Það var í heimstyrjöldinnö.
Gufuskip hafði fengið skot í
skrokkinn og var að sökkva.
Allir farþegar voru komnir
upp á þilfar og stóðu þar með
björgunarbeltin, tilbúnir til að
henda sér í sjóinn um Ieið og
skipunin væri gefin.
Það var steinhljóð stundar-
korn, en allt í eimun heyrðist
Skoti segja:
— Er nokkur hér sem vill
kaupa gullúr með tvöfaldri
gullfesti.
— ★ —
Gamall maður, sem alltaf
hafði átt venjulega bíla, kom
einhverju sinni heim akandi á
nýjum Mustang. Hann sýndi
konu sinni hreykinn nýja bíl-
inn, en hún ekur ekki bíl.
Hann var ákafur að fá henn-
ar álit að hún sagði: — Fyrst
voru rúmin skilin í sundur, þá
fluttum við í sitt hvort her-
bergið og nú eru sætin í bíln-
um skilin í sundur.
— ★ —
Gunni litli var orðheppinn
og fljótur að átta sig á hlutun-
um. Gárungarnir höfðu gaman
af að erta hann, og eitt sinn,
þegar Gunni var að ganga út
úr herbegi, kallaði Bjössi
vönnumaður á eftir honum.
— Heyrðu Gunni. Það er
gat á rassinum á þér. Gunni
sneri sér við í dyrunum og
svaraði að bragði: — Já þetta
sama og er á þér og öllum
öðrum.
— ★ —
FV 9 1973
97