Frjáls verslun - 01.06.1974, Síða 13
Þjóðhátíð 1974:
Varanlegar minjar og framkvæmdir
vegna 1100 ára afmælis íslandsbyggðar
Indriði G. Þorsteinsson, ræðir við séra Eirík Eiríksson, þjóð-
Þegar fréttamaður FV heim-
sótti Indriða G. Þorsteinsson,
framkvæmdastjóra Þjóðhátíð-
arnefndar 1974, í skrifstof’u
nefndarinnar að Laugavegi 13,
var þar mikið um að vera.
Stöðugur stra.umur fólks kom
á skrifstofuna, til þess að afla
sér upplýsinga, fá Iausn á
ýmsum vandamálum varðandi
þjóðhátíðarhald víða ’um
land, eða ráðgast við fram-
kvæmdastjórann um ýmis
framkvæmdaatriði varðandi
hátíðarhöldin á Þingvöllum
28. júlí n. k.
Indriði hafði ekki mikinn
tíma til þess að svara spurn-
ingum fréttamanns FV, vegna
þess að fundur Þjóðhátíðar-
nefndar var um það bil að
hefjast, en strax eftir fundinn
fór Indriði austur á Þingvelli,
til að ræða við menn, sem
unnu við undirbúningsfram-
kvæmdir þar.
— Verður þetta fjölmenn
þjóðliátíð á Þingvöllum?
— Já, við búumst við fjölda
landsmanna, þeir koma akandi
til Þingvalla eftir þremur leið-
um, þ. e. a. s. eftir Þingvalla-
veginum frá Reykjavík, af
Suður- og- Austurlandi kemur
fólk nýja Gjáþakkaveginn,
sem 'hefur opnað nýtt sjónar-
svið á Þingvöllum og loks
koma menn að vestan og norð-
an um Kaldadal og Uxa'hryggi.
Um fjöldann er ekki hægt að
spá á þessu stigi málsins, en
engu að síður mó reikna með
a. m. k. 40-50 þúsund manns.
— Er von á fjölda erlendra
gesta?
— Já, þar má fyrst geta sér-
legra boðsgesta íslenzku þjóðr
arinnar, en þeir koma fhá
löndum, sem landnemarnir
komu frá upphaflega og frá
löndum, sem íslenzkir land-
garðsvörð á Þingvöllum.
nemar hafa farið til, þ. e. a. s.
Bandarikjunum og Kanada.
Boðsgestirnir koma frá Noregi,
Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi,
Færeyjum, Álandseyjum og ír-
landi. Auk þess koma hingað
sendiherrar a. m. k. 19 ríkja,
auk sendiherra og sendifull-
trúa 12 erlendra ríkja, sem
hér eru staðsettir. Sumir þess-
ir sendiherrar koma frá fjar-
lægurn löndum, eins og t. d.
Bangladesh, Brasilíu, Egypta-
landi, Japan, Tanzaníu og
fleiri löndum.
Mikill fjöldi Vestur-íslend-
inga kemur hingað í tilefni
þjóðhátíðarinnar og sumir
þeirra eru þegar komnir. Þá
er von á fjölda íslandsvina frá
allmörgum löndum og ekki má
gleyma erlendum fréttamönn-
um, sem ætla að fylgjast með
hátíðahhöldunum á Þingvöll-
um og víðar um land.
— Hvað verða margir út-
lendingar hér í sambandi við
1100 ára afmælið?
— Það er ekki neinn vegur
að gera sér grein fyrir því, en
við vitum að hér verður
margt um manninn. Við höf-
um með aðstoð flugfélaganna
dreift upplýsingum um afmæl-
ið um allan heim. Fjöldi er-
lends fólks verður í heimahús-
um, þ. á. m. Vestur-íslending-
arnir, en maður vonar að
engir verði frá að hverfa
vegna plássleysis í kringum
28. júlí. Reynt verður að hafa
tiltækt gistirými í skólum
fyrir það fólk utan af landi,
sem vill vera í Reykjavík vik-
una 29. júlí til 3. ágúst.
— Hvað getur þú sagt okk-
ur í stuttu máli um fram-
kvæmdir í tilefni þjóðhátíðar?
— Nú, það var snemma á-
kveðið að framkvæma ýmis-
legt í sambandi við 1100 ára
afmælið, en þær framkvæmdir
skiptast í tvennt: Varanlegar
minjar og framkvæmdir vegna
þjóðhátíðaihalds, jafnt á Þing-
völlum sem annars staðar. Þar
má fyrst nefna þjóðar-
bókhlöðuna, sem er á vegum
FV 5-6 1974
13