Frjáls verslun - 01.06.1974, Page 31
Barinn í Hótel Reynihlíð hefur ekki valdið neinum vand-
ræðum, sem sýsluyfirvöld þó óttuðust um skeið.
þetta fer mjög vel saman
hvort tveggja. Baldur Bjarna-
son, þjónn, hefur verið 'hjá
mér tvö sumur og eru þeir
Júníus prýðisstarfskraftar.
Annars er mjög erfitt að fá
góða menn á sumarhótelin og
vissulega er þjálfun margra
starfsmanna, sem sumarhótel-
in verða að byggja á, allmik-
ið ábótavant. Þeir Júníus og
Baldur hafa kennt okkar
fólki mikið en oft gengur erf-
iðlega að fá skólafólk til að
semja sig að þjónustustörfum
og sýna leikni og lipurð í
þeim.
Veitingareksturinn á mjög
erfitt uppdráttar og það er
brennandi spurning, hvort
ekki verður nauðsynlegt að
draga hér úr allri þjónustu og
setja uop kaffiteríu með sjálfs-
afgreiðslu í staðinn. Manni
þykir það súrt í brotið, þegar
reynt hefur verið að bagsa við
þetta árum saman. Sjoppur
með benzínafgreiðslu virðast
hagkvæmar í rekstri en hér
höfum við verið með um 30
manna starfslið á háannatíma.
f fyrra námu laun starfsfólks-
ins samtals 6 0 milliónum og
nú er svnt að launakostnaður
verður 40% hærri. Við faum
ekki biónustufólk úr þessu
nema að borga bví svo mikið,
að enginn getur keypt þjónust-
una.
Því er svo við að bæta, að
nú nýverið hefur hagur okkar
enn versnað í þessu efni, því
að Alþýðusamband Norður-
lands leyfir okkur ekki að
greiða laun samkvæmt samn-
ingum Sambands veitinga- og
gistihúsaeigenda. í vissum
launaflokkum er mjög mikill
munur þar á, allt að 5000 kr.
á mánuði hjá sumum starfs-
mönnum.
F. V.: — Veitingamönnum
úti á landi hefur verið legið á
hálsi fyrir að einhæfni sé of
mikil í matargerð, að ferða-
fólk fái ekkert að éta nema
lamb, brúnaðar kartöflur og
grænar ba'unir, og svo hins
vegar, að verðlagning sé allt-
af miðuð við það, sem verist á
dýrustu veitingastöðum fyrir
sunnan. Hverju vilt þú svara
þessum fullyrðingum?
Arnþór: — Þessi gagnrýni
er kannski að sumu leyti rétt.
Lambakjöt er mjög oft borið
á borð fyrir útlendinga, og að
mínu viti oftar en æskilegt
væri, vegna þess að hráefnið
er ódýrt og ekki völ á neinu
sambærilegu nema fiski, sem
líka er framreiddur handa
gestum veitingastaðanna hér.
En þetta er gert samkvæmt
óskum ferðaskrifstofanna, sem
alla áherzlu leggja á að halda
verðinu á ferðum sínum niðri
og biðja þvi um ódýrasta mat-
inn, þegar hann á að vera
innifalinn í ,,pakkanum“ eins
og það er kallað.
Ég vil hins vegar alveg mót-
mæla þeirri staðhæfingu, að
verð á mat sé óeðlilega miklu
hærra úti á landi en gerist á
veitingastöðum syðra. Hins
vegar ber í því sambandi að
hafa í huga. hve hráefnisöflun,
er oft miklu dýrara en í
Reykjavík. Af kartöflum,
sem nú kosta 9 krónur kíló-
ið með síðustu niðurgreiðsl-
um, þarf ég að borga 8 kr. á
hvert kíló í flutningskostnað.
Þetta er aðeins eitt af mörgu,
sem hefur áhrif á verðlagning-
una hjá okkur.
F. V.: — Eftir mikla fvrir-
höfn tókst ykkur !oks að fá
leyfi sýslunefndar til vínveit-
inga hér á hótelinu. Hefur sú
biónusta reynzt gestum og lífi
os: limum fólksins í nágrenn-
inu jafnhættulev oc sumir
vildu meina fvrirfram?
Arnþór: — Okku’- var tví-
”e°;s neitað um vínveitinga-
levfí. þó að hér væri fyrsta
flokks aðstaða. Fyrir þremur
árum fengum við svo leyfið
np- þinpað til hafa enffar kva’’t-
anir borizt frá yfirvöldum. Ég
hef einmitt innt sýslumann og
eftirlitsmann ríkisins eftir
þessu en þeir hafa engar at-
hugasemdir heyrt. En einmitt
vegna andstöðunnar í upphafi
höfum við haft vakandi auga
með að farið væri í einu og
öllu eftir settum reglum og
haft aðhald mjög strangt. Mál-
ið er mjög vandmeðfarið, þar
sem þetta er eini staðurinn í
sýslunni, er veitir vín. Heima-
fólk sækir barinn afarlítið en
erfiðleikar eru þeir einir að
halda unglingum frá barnum.
Þegar böil eru í nágrenninu
þurfum við að kveðja til dyra-
vörð til að meina þeim inn-
göngu.
F.V.: — Nú hefur flugfélag-
ið Vængir hafið fastar áætlun-
arferðir liingað úr Reykjavík
og býður m. a. udd á helgar-
ferðir hingað. Hvaða tækifæri
bíða fólks, sem hingað kemur
til slíkra heimsókna um helg-
ar?
Arnþór: — Já. Það er okkur
mikið fagnaðarefni, að Vængir
ir hafa tekiði upp flugferðir
bingað, sem eru stundum tvær
á dag. I sambandi við bær er
hoðið udp á skoðunarferðir um
Mývatnssveitina með sínu fjöl-
b’'pvtilega og sérstæða lands-
lagi. Þá er hægt að komast í
skoðunarferðir héðan t.il Öskiu
og alltaf er hægt að stunda
veiðiskan í vatninu. Það eru
nokkur áraskioti af fiski í
vatninu en stofninn er nú
greínilega vaxandi. Árabáta
er hægt að fá leigða í Reykja-
FV 5-6 1974
31