Frjáls verslun - 01.06.1974, Blaðsíða 35
Greinar og uiðlöl
Samkeppni í lofti
Eftir Dr. Guðmund IVIagnússon, prófessor
Hlutur hins opinbera er
stór í samgöngumálum hér á
landi. Vegagerð, hafnarfram-
kvæmdir, flugvallargerð og
strandferðir eru að mestu á
vegum hins opinbera. Hins
vegar eru flutningar á landi
og í lofti nær eingöngu á
ve'gum félaga og einstaklinga.
Ef litið er til nágrannaþjóð-
anna virðist sem járnbrautir
og áætlunarflugfélög séu að
mestu leyti í eigu hins opin-
bera. Hins vegar er hlutur
einkaaðilja stór í leiguflugs-
markaðnum.
Hér stundar nú eitt flugfé-
lag áætlunarflug milli landa
og fáir aðiljar starfrækja
millilandasiglingar. Þar til ný-
verið hefur aðeins eitt flugfé-
lag stundað átælunarflug inn-
anlands.
AF HVERJU EINN EÐA
FÁIR.
Sagt er, að allir vilji sam-
keppni — við aðra en sjálfa
sig. Tvískinningurinn í afstöð-
unni til samkeppni hefur
komiði glöggt í ljós í sam-
bandi við deilu Loftleiða og
annarra flugfélaga á Norður-
Atlantshafsleiðinni. Samtímis
því sem íslendingum hefur
þótt sjálfsagt, að þeir fengju
að keppa á erlendum markaði,
hefur ríkisvaldið verndað ís-
lenzku flugfélögin fyrir er-
lendri og innlendri samkeppni.
Nú geta verið gildar ástæð-
ur fyrir því, að takmarka
þurfi flugrekstrarleyfi og að
einingar þurfi að vera tiltölu-
lega stórar til að bera sig.
Kemur 'hér bæði til hag-
kvæmni stórrekstrar og fjár-
magnsfrek uppbygging véla-
kosts og endurnýjun hans.
Nauðsyn getur borið til að
koma í veg fyrir offjárfest-
ingu og tvíverknáð.
En ekki er nema von að
sourt sé, af hverju meina á
einkaaðiljum að verja eigin
fé til flugreksturs, ef þeir lúta
tilteknum leikreglum. Enda er
slíkt nú leyft hér á landi í
ríkara mæli en áður. Flugfé-
lagið Vængir starfrækir áætl-
unarflug til ýmissa staða á
landinu og Ferðaskrifstofan
Sunna hefur flugrekstrarleyfi.
ERLEND SAMKEPPNI
f LEIGUFLUGI.
Eins og kunnugt er, hafa
dómstólarnir enn ekki tekið
afstöðu í máli Sunnu gegn
fiármálaráðherra og sam-
göngumálaráðherra fyrir hönd
ríkissjóðs, en Sunna höfðaði
mál gegn þessum aðiljum
vegna boðunar um sviftingu
flugrekstrarleyfis á sínum
tíma. Stefndi vill hins vegar
meina, að um brot á flugleyf-
inu hafi verið að ræða.
Hvað sem rétt verður talið í
því máli, haggast ekki sú stað-
reynd að hérlendum yfirvöld-
um var ekki stætt á því að
svnia erlendum aðiljum um þá
flutninga, sem deilt var um.
SAMKEPPNI HOLL í LOFTI
SEM ANNARS STAÐAR.
Þeirri staðhæfingu verður
ekki kyngt, að samkeppni í
lofti sé skaðlegri en á láði.
Þannig veita leiguflugfélög
starfsfélögum sínum í áætlun-
arflugi aðhald með því að
bióða lægra verð með eldri
véium eða ferðum með öðru
sniði. Markaðurinn er sam-
settur af margs konar kauo-
endahópum, sem hafa mis-
miklar tekjur, eru mismikið
að flýta sér og líta gæði mis-
iöfnum augum. Meðan einn
vill vera á undan klukkunni
milli tímabelta, kýs annar að
fá sér lúr til að vakna að
morgní á áfangastað.
Ef flugfélap fengi að haga
vélakauoum sínum og verði að
vild í skjóli einkaleyfis, er
hætt við, að það þýði endur-
nýjun vélakosts á röngum
tíma og þar af leiðandi dýrari
rekstur og dýrari ferðir fyrir
almenning til lengdar.
ÚTVÍKKUN
STARSEMINNAR
Ekki er óalgengt, að fram-
leiðslufyrirtæki yfirtaki sölu
á vöru eða hefji framleiðslu á
millistigsafurðum. Það er því
að ýmsu leyti eðlilegt, að flug-
félag íhugi að hefja rekstur
ferðaskrifstofu, hótels o. fl.
Sömuleiðis kann ferðaskrif-
stofa að telja hagkvæmt —
miðað við tiltekin umsvif —
að hefja eigin útgerð flug-
véla. Einnig geta markaðsað-
stæður beinlínis knúið fyrir-
tæki til að færa út kvíarnar
til að þurfa ekki að vera um
of upp á einkasala komið.
Á hinn bóginn er til þess að
líta, að sé afrakstur fyrirtæk-
is að miklu leyti til kominn í
skjóli einkasölunnar, verður
að teljast hæpið, að það eigi
að fá að ráðskast með hann
að vild og kaupa upp fyrirtæki
á öðrum sviðum.
Á sviði flugrekstrar hafa
stóru flugfélögin tvö nú sam-
einast. Eimskip á stóran hlut
í fyrirtækinu og rekur ferða-
skrifstofu. Félagið á hótel og
bílaleigu. Auk þess er útvíkk-
un starfseminnar í hótelmál-
um og ferðaskrifstofurekstri
á döfinni. Þessi samsteypa
er sennilega næst Sambandi
íslenzkra samvinnufélaga að
veltu. (Sala sjávarafurða á
erlendum markaði og þar með
sjávarútvegsdeild Sambands-
ins og Sölumiðstöð 'hraðfrysti-
húsanna sleppt.)
LEIKREGLUR SKORTIR.
Þeir sem eru málsvarar
frjálsrar samkeppni, ættu
jafnframt að beita sér fyrir
því, að settar verði samkeppn-
isreglur. Þetta er vandasamt
verk, en vart fer á milli mála,
FV 5-6 1974
35