Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1974, Side 52

Frjáls verslun - 01.06.1974, Side 52
30 sinnum á áii í Politiken og Berlingske Tidende en reynsl- an hefur sýnt, að tímaritið Det bedste er áhrifaríkasti auglýsingamiðill okkar, enda eru þar á ferðinni fallegar en dýrar litauglýsingar, sem hafa mikið að segja, þegar verið er að laða gesti að náttúrufegurð íslands. AMATÖRAR f SÖLU- MENNSKU. F. V.: — Einhverra hluta vegna virðist það orð hafa legið á, að íslandsfarar á Norð- urlönd'um væru fólk með hýsna skringilegan smekk svo að jaðraði jafnvel við sér- vizku. Finnst þér farþcgar ykkar skera sig þannig úr að einhverju leyti? V. G. — Langflestir Norð- urlandabúar fara til íslands af því að þeir þurfa að fara að hitta starfsbræður sína á ráð- stefnum og í selsköpum, eða til að verja nokkrum dögum með gömlum skólabræðrum og félögum. Flestar ferðir til fs- lands af þessum slóðum eru þannig til komnar. En hinir ósviknu ferðamenn héðan frá Danmörku eru ríkt fólk, sem hefur prófað margt annað, far- ið ótal sinnum til Suðurlanda og er búið að fá andstyggð á sólskini og hitamollu — í bili alla vega. Og víst er, að Norð- urlandabúar, sem koma til ís- lands, hvort sem það er til ráðstefnuhalds eða náttúru- skoðunar skilja allir eftir sig slóða af peningum, að kannsfei ungu fólki í útilegu einu und- anskildu. Og þá kem ég að því, hvað við íslendingar erum miklir amatörar í að selja. „Sem bet- ur fer,“ myndu einhverjir segja, og til þess er tekið af hálfu útlendinga, að þeim finnst ekki vera troðið á sér á fslandi eða að þeir séu hundeltir af vælandi minja- gripasölum. En þarna má nú á milli vera. Ég á við það, að á þessu dásamlega hóteli úti á landi, sem hefur með mikl- um herkjum fengið vínveit- ingaleyfi, ber saklaus skóla- stúlkan í hlutverki þjónust- unnar fram stóreflis könnur af ísköldu og heilnæmu, fersku og freyðandi íslenzku vatni á hvert borð en hefur falið vínlistann einhvers stað- ar uppi á hillu. Hér í Dan- mörku þætti sjálfsagt, að þjón- ustustúlkan byrjaði á að spyrja, hvaða áfenga drykki mætti bjóða fyrir matinn og svo væru gestirnir beðnir að velja af vínlistanum og séð til þess að aldrei væri tóm flaska á borðinu. VANTAR DÆGRA- STYTTINGU. F. V.: — Af margra ára reynslu veizt þú vel, hvar skórinn kreppir í ferða- mennsk'unni heima. Þú hefur líka. heyrt umsagnir fjölda út- lendinga og hefur góðan sam- anburð við önnur lönd. Hvaða vankanta telurðu versta á ís- lenzkum ferðamálum? V. G. — Ég reyni oft að vera túristi sjálfur, þegar ég kem heim. Og sorglegast finnst mér, hvað smástaðirnir úti um landið hafa litið á boðr stólum fyrir gesti sína. Þetta eru allt þrifalegir staðir og búa yfir mörgu, sem ferða- fólki finnst aðlaðandi, en samt skortir geysilega á tækifæri til einhvers konar dægrastytt- ingar. f þessu efni finnst mér að yfirvöld staðanna verði að koma til skjalanna, geri ein- staklingar það ekki. Það þarf kannski ekki meira en að gera gestum fært að skrepoa rétt út fyrir höfnina á vé1- báti eða að leigja sér bíl til að aka um nærliggjandi sveit- ir. Þegar ferðafólk kemur á flesta staði úti á landi má segja að dauðinn og djöfullinn blasi við að því leyti, að það er hreinlega ékkert við að vera nema þamba kaffi inni í veitingaskála staðarins og mæla göturnar. Ef menn byðu nú upp á stuttar veiðiferðir á trillum eða leigðu út bíla til aksturs á þessum stöðum, myndu ferðamenn skilja eftir mun meiri peninga en ella og verða ánægðari um leið. Bátarnir eru til á þessum stöðum og bílarnir sömuleið- is en samt yppta heimamenn bara öxlum og brosa vand- ræðalega, þegar gerðar eru fyrirspurnir um svona dægra- styttingu, eins og kominn væri vitleysingur í plássið, sem þvældist þar fyrir á götunum. F. V.: Undan hverju kvarta ferðamenn helzt eftir heim- sókn til Islands. Eða er ferðin bara dans á rósum þannig að allir komi himinlifandi heim aftur? V. G. — Okkur hafa stund- um borizt mjög ákveðnar kvartanir frá fólki, sem dval- izt hefur á íslenzkum sumar- hótelum og gramizt einhæfn- in í matarframboði. Þetta er réttmæt gagnrýni, því að matargerðarfólk heima leggur sig alls ekki nógu fram um fjölbreytni í matargerð, og kunnáttuleysi er þess vald- andi, að gestirnir fá helzt ekki annað að borða en læri, brúnaðar karöflur og sultu, sem vel að merkja er prýðis- góður sunnudagsmatur, en fólk vill samt ekki borða nema tvisvar sinnum í einni og sömu vikunni. Skortur á upplýsingum og þjónustumiðstöðvum háir ferðamennsku á íslandi lika allmikið. Margir hafa áhuga á að reyna fyrir sér í silungs- veiði. Oftast þarf að heim- sækja viðkomandi bónda til þess að kaupa veiðdleyfi og svo að það megi takast þarf að þekkja sveitina og rata um hana og náttúrulega tala ís- lenzku líka. f þessum tilfell- um vantar miðstöðvar, sem selja leyfin og vísa á vötnin eða árnar. Veyðileyfi þurfa líka að ná til stærri svæða og ékki bara til einnar smá- snrænu. Því þarf samræmdar aðgerðir til að ná árangri og bæta þjónustuna. F. V.: — Telur þú, að sér- stakir viðburðir eins oe lista- hátíð á íslandi eða þióðhátíð- in í ár, laði ferðafólk frá Norðurlöndum til fslands? V. G.: — Ég hef litla trú á listahátíð á íslandi, nema sem þætti í menningarlífi lands- manna sjálfra. Þess konar há- tíðir eru haldnar svo víða os það eru fáir, sem fara að elta vissa listamenn til ís- lands. Þessir heimsfrægu eru mikið á ferðinni og áhuga- fólk má búast við, að þeir verði í næsta nágrenni við sig innan skamms tíma. Hátíðahöld á borð við 800 ára afmæli Kaupmannahafnar fyrir nokkrum árum ollu ekki neinni áberandi aukningu í komum ferðamanna hingað og það held ég að verði ek'ki heldur á íslandi í sambandi við þjóðhátíðina. F.V.: — Eru fyrir hendi ein- hverjir nýir markaðsmöguleik- ar í ferðamálum, sem við höf- um lítið scm ekkert notað? 52 FV 5-6 1974

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.