Frjáls verslun - 01.06.1974, Síða 59
fara í fjallgöngur um nágrennið eða í dags-
ferðir um Vestfirðina.
Forstöðumaður: Daníel Ólafsson.
Hotel Mánakaffi,
Mánagötu 1, ísafirði, sími 94-3777.
Gisting: Á hótel Mlánakaffi eru fjögur 2ja
manna herbergi, tvö eins manns 'herbergi og
tvö 3ja manna herbergi. Hægt er að koma við
svefnpokaplássi sé þess óskað. Ennfremur get-
ur hótelið útvegað herbergi í bænum. Opið er
allt árið. Verð á eins manns herbergi er kr.
1.050.-, tveggja manna herbergi kr. 1.650.-.
Morgunverðurinn kostar kr. 250.-, en kr.
300.-, þegar hlaðborð er. Hádegisverður með
kaffi kostar frá kr. 460,- en kvöldverðurinn
kostar frá kr. 720.-. Veitingasalurinn er opinn
daglega frá kl. 8.00 — 23.30. í veitingasalnum
eru einnig seldir allir algengir grillréttir s. s.
hamborgarar, franskar kartöflur o. fl.
Dægrastytting: Djúpbáturinn Fagranes siglir
á þriðjudögum og fimmtudögum frá ísafirði til
ýmissa hafna við Djúpiði og aftur til ísafjarð-
ar samdægurs. Aðra tvo daga vikunnar siglir
hann m. a. til Bolungarvíkur, Önundarfjarðar
og Súgandafjarðar.
Á sjálfu hótelinu er setustofa með sjónvarpi.
í bænum er sundlaug og vinsælt er að fara í
dagsferðir til ýmissa staða á Vestfjörðum.
Einnig kjósa margir að fara í lengri ferðir út á
Hornstrandir.
Hótelstjóri: Bernharð Hjaltalín.
Hótel Edda,
Reykjum, Hrútafirði, V.-Húnavatnssýslu, sími
um Brú.
Gisting: 74 rúm eru í 37 tveggja manna
herbergjum. Einnig er svefnpokapláss í skóla-
stofum. í þeim eru kojur með dýnum. Hótelið
hefur orðið fró 1. júní — 31. ágúst. Verð á eins
manns herbergi er kr. 990.-, en á tveggja
manna herbergi kr. 1.325.-. Morgunverðarhlað-
borðið er á kr. 325.-. Verð á hádegis- og kvöld-
verði er samkvæmt matseðli.
Dægrastytting: Eins og á flestum hótelum er
setustofa með sjónvarpi, 'gestum til afþreying-
ar. A Reykjum er einnig sundlaug með gufu-
baðstofu. Sömuleiðis er þar minjasafn Hún-
vetninga. Allt umhverfið er skemmtilegt til
gönguferða og margt að skoða þar um slóðir.
Hótelstjóri: Bjarni Bjarnason.
Staðarskáli,
Hrútarfirði, sími 95-1150.
Gisting: 5 gistiherbergi eru í Staðarskála, en
ekkert svefnpokapláss. Opið er allt árið. Verð
á eins manns herbergi í Staðarskála er kr.
790.-, verð á tveggja manna herbergi er kr.
1.620.-. Morgunverðurinn er á kr. 350.-, en
aðrar máltíðir frá 350.- — 600.-. í Staðarskála
eru framreiddir grillréttir og smáréttir, ýmis
konar allan daginn.
Hótelstjóri: Magnús Gíslason.
Hótel Edda,
Húnavöllum við Reykjabraut, A.-Húnavatns-
sýslu, sími um Blönduós.
Gisting: Á hótelinu eru 40 rúm í 22 her-
bergjum eins og tveggja manna. Einnig er
svefnpokapláss í skólastofum. Verð á eins
manns herbergi er kr. 990,- en á tveggja manna
herbergi kr. 1.325.-. Opið er frá 21. júní — 31.
ágúst. Morgunverðurinn kostar kr. 325.-, en h&-
degisverðurinn og kvöldverðurinn er sam-
kvæmt matseðli. Matsalurinn er opinn daglega
frá ki. 8.00 — 23.30.
Dægrastytting: í setustofu er sjónvarp og
við hótelið er sundlaug. Ýmsir þeir, sem dvelj-
ast á hótelinu nota einnig tækifærið til að
veiða í Svínavatni. Urhhverfi hótelsins er fag-
urt og hentugt til gönguferða.
Hótelstjóri: Helga Helgadóttir.
Hótel Höfn,
Lækjargötu 10, Siglufirði, sími 96-71514.
Gisting: 32 eins, tveggja og þriggja manna
herbergi með baði á gangi eru á Hótel Höfn.
Hægt er að útvega svefnpokapláss eftir 1. júlí.
Opið er allt árið og kostar eins manns her-
bergi kr. 920.-, tveggja manna kr. 1.640,- og
þriggja manna kr. 2.240.- Morgunmaturinn er á
kr. 275,- en hádegisverður kostar frá kr. 335,-
(fiskmáltíð) og frá 525.- (kjötmáltíð). Veitinga-
salur hótelsins er opinn frá kl. 8.00 að morgni
og þar til kl. 23.00 að kvöldi.
Dægrastytting: í bænum er margt markvert
að skoða m. a. gömlu síldarverksmiðjurnar og
bryggjurnar frá sildarárunum. Á Siglufirði er
sundlaug, gufubað og golfvöllur. Hægt er að
fara í skemmtilegar gönguferðir upp í Hvann-
eyrarskál, en þaðan er fagurt útsýni og sést til
Grímseyjar. Að sumarlagi er einnig hægt að
stunda skíðaíþróttina. Daglega fara áætlunar-
bifreiðar frá Siglufirði til Akureyrar og koma
aftur til baka á kvöldin. Hótelið getur útveg-
að veiðileyfi í Miklavatni og er farið þangað
að, morgni með langferðabíl, en komið aftur að
kvöldi. Hótelið útbýr nestispakka fyrir gesti
sína til að hafa með í veiðiferðina.
Hótelstjóri: Steinar Jónasson.
FV 5-6 1974
59