Frjáls verslun - 01.06.1974, Qupperneq 67
Sumarhófelið Flúðum,
Hrunamannahreppi, sími um Galtafell.
Gisting: Sumarhótelið Flúðum annast aðal-
lega hópferðamóttöku, en það hefur yfir að
ráða 18 gistiherbergjum. 8 henbergi eru í húsi
Skjólborgar hf., en þau eru öll 2ja manna
með sér baði og útisetlaug fyrir hvert
herbergi. Verð á þessum herbergjum er kr.
1.600.- fyrir nóttina. í barnaskólanum eru aftur
á móti 18 eins, tveggja og þriggja manna her-
bergi. Kostar eins manns herbergi kr. 850.-,
tveggja manna herbergi kr. 1.160,- og þriggja-
manna herbergi kostar kr. 1.350.-, Hvert auka-
rúm í herbergi kostar kr. 200.-. Svefnpokapláss
er ekki fyrir hendi.
Morgunverðurinn kostar kr. 250.-, hádegis-
verðurinn er frá kr. 450,- en kvöldverðurinn
frá kr. 500.-.
Dægrastytting: Frá Flúðum er stutt að
Heklu, Gullfossi, Geysi, í Þjórs'árdal, að Skál-
holti og fleiri sögufrægum stöðum á Suður-
landsundirlendinu. Á Flúðum er sundlaug og á
hótelinu er setustofa með sjónvarpi.
Hótelstjóri: Tryggvi Guðmundsson.
Hótel Þéristún,
Þóristúni 1, Selfossi, sími 99-1633.
Gisting: Hótel Þóristún, sem er eina gisti-
húsið á Selfossi hefur yfir að ráða 17 eins,
tveggja og þriggja manna herbergjum. Átta
herbergjum fylgir bað, en þar sem það er ekki,
er bað á hverjum gangi. Svefnpokapl'áss er
ekkert. Verð á eins manns herbergi án baðs
er kr. 930.-, en með baði kr. 1395.-. Verð á
tveggja manna herbergi án baðs er kr. 1.540,
en með baði kr. 2.325.- Þriggja manna her-
bergi kostar kr. 2.015.- Á hótelinu er veitinga-
stofa, en þar er framreiddur morgunverður á
ki\ 300.-. Aðrar máltíðir eru ekki fáanleg-
ar á hótelinu. Hótel Þóristún hefur opið allan
sólarihringinn allt árið.
Dægrastytting: Ýmsir þeir gestir, sem dvelj-
ast á hótelum kjósa að fara í dagferðir um
næsta nágrenni. Frá Selfossi er stutt að aka
til Heklu, í Þjórsárdai, undir Eyjafjöll eða að
Stokkseyri eða Eyrarbakka. Einnig er hægt
aði velja ýmsar skemmtilegar gönguleiðir út
fr'á Selfossi m. a. upp með Ölfusárbökkum. Þá
er í bænum sundlaug með gufubaði svo og ým-
is söfn m. a. nýtt safnhús. Á hótel Þóristúni
er setustofa með sjónvarni og útvarpi.
Hótelstjóri: Steinunn Hafstað.
Hótel Edda,
Menntaskólanum, Laugarvatni, Árnessýslu.
Gisting: Á Eddu hótelinu í menntaskólanum
eru 114 rúm í 73 eins og tveggja manna her-
bergjum. f skólastofum er svefnpokapláss í koj-
um með dýnum. Eins manns herbergi kostar
kr. 990.-, en tveggja manna herbergi kostar kr.
1.325.-. Eins og á öllum öðrum Eddu hótelum
kostar morgunverðurinn kr. 325.-, en það er
hlaðiborð. Verð á hádegis- og kvöldverði er
samkvæmt matseðli. Veitingasalurinn er op-
inn daglega frá kl. 8.00 — 14.00 og 18.30 —
21.30.
Dægrastytting: Setustofa með sjónvarpi er á
hótelinu, og gefst gestum jafnframt tækifæri
til að sjá íslenzka kvikmynd á kvöldin. Á
staðnum er sundlaug og gufubað. Eddu-hótelið
að Laugarvatni er miðsvæðás í Árnessýslu. Það-
an er stutt að aka til Þingvalla, Gullfoss, Geys-
is, Skálholts, Heklu og fleiri sögufrægra staða.
Hótelstjóri: Erna Þórarinsdóttir.
■
Gistihúsið, Héraðsskólanum
Laugarvatni,
Árnessýslu, sími 99-6113.
Gisting: Gistihúsið í Héraðsskólanum býður
upp á 40 tveggja manna herbergi, en einnig er
hægt að fá þau sem eins manns herbergi. Verð
á tveggja manna herbergi er um kr. 1000.-.
Gistihúsið hefur ekki yfir að ráða svefnpoka-
plássi. Opið er frá 20. júní og fram í miðjan
ágúst. Morgunverðarhlaðborðið er á kr. 325.-,
en verð á hádegis- og kvöldverði er samkvæmt
matseðli.
Dægrastytting: í gistihúsinu er setustofa með
sjónvarpi. Sundlaug er á staðnum með gufu-
baði, sem er í umsjón Héraðsskólans. Frá gisti-
húsinu er stutt til Þingvalla, Gullfoss, Geysis,
Skál'holts og Heklu og fara margir í dagsferðir
til þessara staða. Einnig má t. d. benda á dags-
ferðir til Hveravalla eða til Hagavatns við
Vatnajökul. Gistihúsið getur útvegað bíla i
þessar ferðir, en einnig er hestaleiga á Laug-
arvatni.
Hótelstjóri: Bergsteinn Kristjónsson.
Hótel Edda,
húsmæðraskólanum, Laugarvatni, Árnessýslu,
sími 99-6154.
Gisting: Á hótelinu eru 27 tveggja manna
herbergi. Verð fyrir einn í herbergi með baði
er kr. 1.690.-, en fyrir tvo kr. 2.240.-. Hótelið
hefur opið frá 8. júní — 31. ágúst. Morgun-
verðurinn kostar kr. 325.-, en verð á hádegis-
og kvöldverði er samkvæmt matseðli.
Dægrastytting: Á hótelinu er m. a. setustofa,
bar og sjónvarp. Einnig er þar saunabað ásamt
hvíldarherbergi. Fundarsalur með hátalarakerfi
er á hótelinu, en sá salur rúmar um 80 manns.
Veitingasalurinn er opinn daglega frá kl. 8.00
— 23.30.
Hótelstjóri: Huld Hilmarsdóttir.
FV 5-6 1974
67