Frjáls verslun - 01.06.1974, Blaðsíða 77
fsafjörður:
Hópur sérfræðinga vinnur
stöðugt að því að fullgera
heildar- og deiliskipulag fyrir
ísafjarðarkaupstað eftir sam-
eininguna við Eyrarhrepp.
Unnið er m. a. að skipulagn-
ingu íbúðahverfis í Skutuls-
firði og viðbótarhverfi í Hnífs-
dal. Mjög mikill úhugi er hjá
einstaklingum að byggja ein-
býlishús og Byggingarfélag
verkamanna er að byggja 20
íbúða fjölbýlishús. Bæjar-
stjórnin ráðgerir byggingu
margra leiguíbúða á næstu ár-
um. Keypt hafa verið nokkur
ný einbýlishús, sem eru em-
bættisbústaðir fyrir lækna við
heilsugæzlustöðina og fyrir
héraðslækna.
f framhaldi af gerð smá-
bátahafnar við Sundin, er unn-
ið að dýpkun innsiglingarinnar
um Sundin, og efni það, sem
dælt er upp, er notað til land-
myndunar við Suðurtanga og
verður verulegur landauki af
því. Þá er ákveðið að lengja
viðlegurými við hafskipakant-
inn á næstkomandi sumri.
S. 1. sumar var unnið að
gerð nýrrar stíflu við Fossa-
vatnsvirkjun og verður þeim
framkvæmdum væntanlega
lokið á þessu sumri.
Verið er að gera mikla upp-
fyllingu sunnan eyrarinnar,
heimili og íþróttahús og ráð-
gæzlustöð, sjúkrahús og elli-
heimili. Byrjað verður á bygg-
ingu heilsugæzlustöðvarinnar
síðla sumars og í tengslum
við hana verður byggð tengi-
deild við sjúkrahúsið, þar sem
komið verður fyrir rannsókn-
ar- og þjónustutækjum, sem
verða til sameiginlegra afnota
fyrir heilsugæzlustöðina og
sjúkrahúsið. Elliheimilið verðr
ur byggt með tilliti til þess að
báðar stofnanirnar hafi sam-
eiginlegt eldhús og þvottahús.
Þrátt fyrir að mikið hefur
verið malbikað á ísafirði á
undanförnum árum, eru 30
miljónir króna til slíkra fram-
kvæmda á fjárhagsáætlun
þessa árs.
Verið er að byggja heima-
vistarhús fyrir Menntaskólann
og í framhaldi af því verður
byggt skólahús og íþróttahús.
Bæjarsjóður verður að verja
allmiklu fé til kaupa á lóðum
og húsum til að nægilegt land-
rými verði fyrir byggingar
Menntaskólans.
Mjög mikil uppbygging hef-
ir átt sér stað í atvinnurekstri
ísfirðinga. Keyptir hafa verið
til bæjarins fjórir skuttogarar
og hraðfrystihúsin hafa verið
endurbyggð og stækkuð og eru
tvö þeirra með afkastamestu
frystihúsum landsins.
FV 5-6 1974
77