Frjáls verslun - 01.03.1975, Blaðsíða 27
IATA- reglur stundum og stund-
ium ckki.
Erlendur diplómat lenti í
sömu vandræðum, þegar hann
breytti flugfari milli kínversku
borganna Kanton og Peking,
innan 48 klst. tímamarkanna.
Þegar hann spurði starfsmenn
CAAC hvaða heimild þeir
hefðu til að hækka fargjaldið
um 25%, sýndu þeir honum
reglur alþjóðasamtakanna
IATA. Kínverska félagið CAAC
er ekki aðili að IATA, en starfs-
maður þess sagði diplomatinum,
að félagið myndi eflaust gerast
aðili fyrr eða síðar og þætti
því rétt að nota IATA-reglur.
Daginn sem umræddur maður
átti að fara og hafði beðið lengi
eftir brottför vélarinnar í Kan-
ton var tilkynnt, að búið væri
að fresta ferðinni vegna veðurs.
Hann fór því þess á leit við
félagið, að það greiddi gistihús-
reikningin sinn meðan hann
biði eftir næstu ferð, eins og
gert er ráð fyrir samkvæmt
reglum IATA. Þá benti starfs-
maður CAAC honum á, að fél-
agið ætti ekki aðild að IATA og
færi því ekki eftir reglum þess.
„Þú verður að finna þetta sjálf-
ur, góði.“
Aðrir útlendingar eru
óánægðir með það, að CAAC er
eina flugfélagið í Kína, sem sel-
ur þeim farmiða fyrir viðkom-
andi flugfélög til útlanda. Þetta
hefur komið sér illa fyrir ferða-
menn. Oft á tíðum segist fólk
vera beitt misrétti í þessum efn-
um. Útlendingar sem hringja til
söluskrifstofurnar og panta
farseðla, eru beðnir um að koma
sjálfir þangað og fara í gegn-
um áætlunarskrá IATA til að
finna réttar flugleiðir til að
komast á leiðarenda. Fyrir
ókunnuga er óætlunarskrá
IATA líkust dulmálsbók, sem
erfitt er að skilja svo að vel
eigi að vera. Flugmiða verður
fólk að greiða með kínversk-
um peningum, en CAAC notar
sína eigin gengisskráningu og
tekur ekki tillit til opinberrar
gengisskráningar kínverska
seðlabankans. Þannig fær fél-
agið 10-15% hærra verð fyrir
miðana, miðað við gengi doll-
arans, sem lækkaði fyrir
skömmu þar í landi.
Farþegar neyddir með CAAC.
CAAC reynir að láta alla far-
þega sem fara frá Kína til ann-
arra landa, fara með sínum
eigin vélum. Oft á tíðum koma
óánægðir útlendingar inn á
skrifstofur erlendra félaga
í Peking, eins og t.d. Air
France, og segja að Kínverjar-
nir hafi neitað að bóka þá með
franska félaginu. Þetta skýrir
m.a. hvers vegna flugvélar Air
France eru ætíð hálftómar, þeg-
ar þær fara frá Peking. Þar
ofan á bætist, að kínversk
sendiráð erlendis veita ferða-
löngum vegabréfsáritanir sem
fela í sér, að viðkomandi verð-
ur að koma til Kína á ákveðn-
um dögum, og svo undarlega
vill til, að það er eimitt á áætl-
unardögum CAAC þegar önnur
félög fljúga ekki á sömu flug-
leið. Auk þess er ferðamönn-
um góðfúslega bent á, að ef
þeir fari með CAAC frá Peking,
þurfi ekki að greiða fyrir yfir-
vigt fyrir farangur, eins og hjá
öðrum félögum.
Rauð kver og ávextir.
Ekki er þjónustan mun betri,
þegar vélar CAAC eru loks
komnar á loft. Flugfreyjur
neita t.d. að selja farþegum
áfenga drykki um borð og bjóða
í staðinn gosdrykki. Matur er
fátíður, en í stað þess fá farþeg-
ar sælgæti eða ávexti. Sumir fá
meira að segja Rauða kverið
margfræga. CAAC á bæði Bo-
eing 707 þotur, sem fljúga til
Tókíó og Parísar og Ilyushin
62, sem fljúga á Moskvu-leið-
inni. Erlendir flugmenn, sem
þjálfað hafa kínverska flug-
menn, segja að Kínverjarnir
hafi allir verið í kínverska flug
hernum og séu góðir flugmenn.
Aftur á móti hafi þeir litla
reynslu í að skipuleggja flug-
áætlanir véla sinna milli staða
erlendis og eru dæmi um það, að
þeir hafi áætlað flug inni á flug-
svæðum, sem eru lokuð, eins og
t.d. þegar Kýpurdeilan stóð. Þá
ætluðu þeir að fljúga yfir
hættusvæðin, sem Grikkir
höfðu lokað fyrir almennri flug-
umferð af öryggisástæðum.
Kaupfélag
Héraðsbúa
Samvinnuverzlun
og
þjónusta á
Egilsstöðum,
Seyðisfirði,
Reyðarfirði
og
Borgarfirði Eystra.
Ferðavörur
gott úrval.
Kaupfélag
Hérabsbúa
FV 3 1975
27